miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Zionazi


Í nótt hélt nágranni minn fyrir mér vöku með því að hafa sjónvarpstöðina 'Krossinn' í botni inni hjá sér. Þar var Óli Jóhanns að tala um fyrirmyndarríkið Ísrael og hvað Palestínumennirnir/Filistear væru nú vondir, og að við hefðum Biblíuna til þess að sýna okkur að Ísraelsmenn ættu fullan rétt af þessu landi.

Óli er fínn kall, vann með honum fyrir nokkrum árum. En Gunnar Gunnarsson var líka fínn kall, þrátt fyrir furðulegt vinarþel hans til 3ja Ríkisins.

Mér reis löngun til þess að banka að næstu dyrum og kvarta yfir þessum hávaða, þar sem það hljómaði eins og Ólafur væri ekki aðeins inní stofu hjá mér, heldur sæti á rúmi mínu og segði mér sögur af því hversu góðir Íraelsmenn nú eru; en ég ákvað að sleppa því þar sem hægt væri að skjóta því til baka að granninn fílaði ekki 'Floyd og því hefði ég ekkert að segja í þessu máli, og ef ég ætlaði að kvarta þá þyrfti ég að gjöra svo vel að setja hljóðkúta á þær stelpur sem hjá mér gista... (allar 3 íbúðirnar á 3ju hæðinni á Fálkagötu eru skipaðar piparsveinum).

Mér varð hugsað til þess ef ég færi nú og bankaði og hótaði að skella 'Triumph des Willens' eftir Leni Riefenstahl í græjurnar, en mér hreis nú hugur við því þó að ég gæti verið sakaður um Semítaandúð, þrátt fyrir það að ég beri Keffyeh klút Palestínumanna (sem eru jú líka Semítar, ólíkt flestum gyðingum sem eru Azkenazhy gyðingar; afkomendur Khazara frá Armeníu, eða Japhetar og því ekki Hebrear, en Khazarar snérust til gyðingdóms á 9 öld okkar tímatals.), þar sem ég lúkkaði svolítið í hlutverkið í nótt, íklæddur hlýrabol, tattúveraður með norrænum táknum....

Nei. Þess í stað ákvað ég að sofna út frá talandi höfuði Ólafs sem boðaði fagnaðarerindi naZíonismans útfrá hinni góðu bók, Biblíunni.*

Mér varð ósjálfrátt draumgengt um hvað þriðja ríkið og það fjórða, fyrirgefið, 'Landið Helga**' eiga sameiginlegt. Bæði eru útvíkkunarríki, sem hafa sterk tengsl á milli ríkisbálknsins og auðugra samsteypa. Bæði hafa tákn sem álitin eru sér-X tákn af þeim þjóðum sem tákn þessi sér eigna, í miðju sinna þjóðfána. Bæði ríkin eru/voru af meirihluta skipuð þjóðum sem var/er vorkun vegna e-s, Þýzkalandi var vorkun vegna slæmrar útkomu Versalasamninganna og Ísraelum er/var vorkun vegna verulegra slæmrar hegðunar hinna. Bæði ríkin innihéldu einnig stóran minnihlutahóp sem farið er virkilega illa með, og þeir minnihlutahópar báðir lokaðir í Ghettóum, á bakvið múra.
Bæði ríkin krefjast landssvæðis vegna sögulegs eignarréttar, Ísrael skírskotar í Biblíuríkið, sem er talsvert óræð stærð, á meðan 3ja ríkið skírskotaði til hins Heilaga Rómverska Keisaradæmis (sem var ekkert rosalega Rómverskt btw.), sem þó eru til sögulegar heimildir fyrir, utan trúarrita, og stendur okkur talsvert nær í veraldarsögunni.
Bæði ríkin voru ætluð til þess að standa í 1000 ár (YEAH RIGHT! miðað við mannkynssöguna eru 100 ár bara talsvert miklu meira en gott..)

Mér er spurn. Ef ég kæmi fram á einhverri trúarsjónvarpsstöð og afsakaði 3ja ríkið með því að við Germanir værum jú Herraþjóð (eða 'Guðs útvalda þjóð) og skírskotaði í einhvert trúarrit mér til stuðnings, segði öll 'Júðsk' áhrif neikvæð fyrir okkar fólk og að þeir væru jú glæpamenn upp til hópa sem dræpu börn; væri mér ekki stungið inn?

Ég er ekki að segja að Ólafi skuli stungið inn, né nágranna mínum (fyrir að vera það mikill andlegur dvelli að finna sér ekki betra sjónvarpsefni klukkan fjögur að morgni), nei, ég er bara að spyrja hvort að þetta eigi rétt á sér? Er einhver munur á kúki og skít? Er nokkurntíman réttlætanlegt að koma fram í sjónvarpi og útvarpa fordómum gagnvart hópi fólks sem stendur höllum fæti, og hæla kúgurum þeirra?

Mér er spurn?

*Ég er ekkert að segja að hún sé verri en hver önnur bók, hún hefur hinsvegar helling af loopholes og er mis og rangtúlkuð hægri vinstri, til að mynda af mörgum kirkjunar mönnum, sem trúa bara á Nýja Testamentið, en ekki á það gamla, þegar Bilbó stelur hringnum...

** Það er mjög ljótt að rugla Landinu Helga við Landið Guðbjart.

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Varist reykingar


Ég er ekki reyklaus, og held að ég hafi takmarkaðan áhuga á því að verða reyklaus í bráð, sérstaklega þar sem fólk sem hættir að reykja breytist í sjálfumglaða, dómharða fasista. Reykurinn er fíkn, og fíkn er jú sjúkdómur.
Svo er víst að fíkn er oft meðhöndluð af réttarkerfinu sem glæpur þegar fíknin er í ólöglega hluti, en það sem vekur mér furðu er það að Lýðheilsustöð, Tóbaksvarnarráð og Heilbrigiðsráðuneytið hafa jú ákveðið að tóbaksfíkn sé hálfglæpur, enda eigum við reykingamenn oft erfiðara með heilsuna, sérstaklega þegar á efri ár dregur. Því erum við sektaðir daglega í formi aukinna skatta og álags á tóbak, til þess að við getum greitt niður þann 'gífurlega' kostnað sem við völdum ríkinu árlega vegna reykinga okkar.
Ég skil þó ekki hví sykurvara og feitur matur er ekki einnig notuð sem tekjulind fyrir ríkið þar sem feitir eru jú alveg jafn stór böggull á þjóðinni og við reykingamenn. Nú eða bílsstjórar, enda spæna þeir malbik upp í andrúmsloftið, keyra á fólk og hluti og valda mengun og slysum sem ekki eru minni skaðvaldar.
Af hverju reykleysi? Því hræsnararnir sem ríkja hér á Íslandi í okkar félagslega bálkni gera þig að annars flokks einstaklingi ef þú reykir.
Hversvegna reykleysi? Vegna þess að þú neyðist til þess að borga heilbrigðisþjónustu undir feitt fólk sem borðar óhollan mat, drekkur mikið og stundar einstaklega óheilbrigðan lífsstíl, keyrir um beltislaust og veldur stórslysum á sjálfum sér og öðrum sökum þess að þú reykir.
Hví reykleysi? Vegna þess að heilbrigðisfasistar á Íslandi ætla að leggja niður alla skemmtistaði á Íslandi með því að meina reykingar á einkalóðum, sem samkvæmt öllu réttu kæmu ekki ríkinu við.
Afhverju ættir þú að hætta að reykja? Vegna þess að ríkið vill skipta þér að sjálfsákvörðunarrétti þínum sem þú öðlaðist við það að verða fullorðinn einstaklingur og meina þér og hindra þig frá því að neyta löglegrar vöru sem ríkið sjálft flytur inn, því væri best ef þú hefðir aldrei byrjað.
Hversvegna ætti enginn að byrja að reykja? Vegna þess að ef áfram horfir eins og nú með vaxandi heilbrigðisfasisma í Íslenskum stjórnvöldum, gætu reykingamenn endað í útrýmingabúðum í Vestmannaeyjum fyrir það eitt að kveikja sér í löglegri vöru sem þeir borga nánast allt heilbrigðiskerfið með (og það er ekki eins og við reykingamenn borgum ekki tekjuskatt).

Nei. Mín skoðun er sú að það eigi fólki að vera í sjálfsvald sett hvort að það reyki, en það er heimskulegt að byrja á því í dag, úrþví að við vitum af skaðlegum áhrifum reykinga. Nefnilega sviftingu sjálfstæðis, persónufrelsis og réttar til einkalífs af völdum gerræðissinnaðra stjórnvalda. Ég vildi að ég hefði aldrei byrjað að reykja, því ég er fíkill í tóbak, en fíkn mín er orðinn hálfglæpur og næst á ég von á því að ég megi ekki reykja nema undir teppi, með ljósin slökkt.

þriðjudagur, nóvember 07, 2006

TEMPVS FUGIT - Fuckit?


DOLORVM IPSVM QVIA.
Naflaskoðun.

Já.. eins og einhverjir hafa tekið eftir hef ég ekki verið að tjá mig neitt sérstaklega mikið undanfarnar tvær vikur eða svo. Það er ýmislegt að frétta.
Ég er víst orðinn einhleypur aftur. Sem er ömurlegt, en það er lítið sem ég get gert í því nema máské óska Sætufínnar hamingju og ástar hvar sem hún mun finna hana, ég hef því miður ekki ennþá lært að stjórna frjálsum vilja eða tilfinningum fólks án þess að vera með leiðindastæla og/eða leiki sem vart teldust heiðarlegir gagnvart einstaklingum sem maður hefur mjög sterkar tilfinningar gagnvart.

Ég er einn á ný, og ekkert sérstaklega sáttur við það.
;Hver getur læknað kramið hjarta- hver getur límt saman brotna sál?; raupaði Valgeir Guðjónsson inn á plötu sína 'Ég held ég gangi heim' fyrir einhverjum tæpum 2 áratugum síðan. Hver skildi það nú vera sem getur læknað og límt brotin og brákuð líffæri ástarlífsins? Það skildi þó aldrei vera tíminn?
Tja. Nú veit ég hreinlega ekki. Tíminn á að lækna öll sár segja þeir, en ég held reyndar að fólk sé að gefa þeirri breytu sem tíminn er furðulega mikið kredit. Persónulega held ég að það séum við sjálf sem læknum okkar eigin hjartasár og brotnu tilfinningar. Hinsvegar sé tíminn ómæld vegalengd sem við þurfum að fara á meðan við læknum okkur.

Skondið þó. Hún segir að við náum ekki þeirri tengingu sem þarf fyrir samband. Það má vera. Ég veit það ekki. Ég hef aldrei tengst neinni manneskju á þann máta sem hún talar um. Ég er ekki skyggn, ég les ekki hugsanir, kann varla að lesa mínar eigin tilfinningar, hvað þá annars fólks. Það er hálf vandræðalegt hvað ég á erfitt með að tjá hugsanir mínar í órituðu máli. Ég kann ekki að koma orðum yfir þær tilfinningar sem bærast í brjósti mér nema þear ég sit við lyklaborð einhverskonar, teikniborð eða strengi - það virðist gefa mér einhverja sálarfró sem ég fæ ekki úr mæltu máli.

Við höfum bæði neikvæðan farangur á bakinu. Eins og allir. Hvernig á að vinna í þeim farangri er eitthvað sem ég á ennþá erfitt með að skilja, en ég vænti þess og vona að það hljóti nú að takast einhvern daginn. Minn farangur er margfaldur og þykkur, nánast óþekktur, stór yfirbreiddur bakpoki sem ég á erfitt með að teygja mig í. Hún hefur miklu meira en nóg á sínum herðum líka.

HIC JACET MEA CVLPA MAXIMA - MORTEM MMVI ANNO DOMINI.


Mig langar að geta losað mig við þennan bakpoka. Ekki það að það sé sérstaklega auðvelt, en eins og kenningin um að tíminn lækni öll sár gefur uppi - þar sem að það erum við sem læknum okkar sár, ellegar okkar reynslur, microcosm, sem lækna okkar sár.
Nú er ég enginn læknir, en ég hefði haldið að þegar tvær manneskjur með skuldbindingarótta sökum slæmra reynslna af því að vera yfirgefin eru saman þá sé það máské ekki það að yfirgefa sem hjálpar. En kann ske er það þó þannig að ég hafi einfaldlega rangt fyrir mér, manneskjur í þessum sporum geti ekki hjálpað hvort öðru með tillfinningafarangur. Kann ske að það bezta hafi verið að flýja áður en þetta hefði verið of erfitt, flýja áður en ég hafði tækifæri til þess sama. Ekki það að ég hefði viljað það, ég á erfitt með að skiljast við fólk, það er minn farangur að þola illa vinslit og sambandsslit og fleira. Máské sökum þess það er fátt sem ég sé verr eftir en það þegar fólk hverfur yfir móðuna miklu og ég hafði ekki tækifæri til þess að umangast þessar manneskjur undir það síðasta, til þess að tjá huga minn gagnvart þeim einstaklingum og kveðja sáttur. Hver veit. Ég þoli ekki viðskilnað. Máské þess vegna sem mér þykir einatt bezt að vera einn og án allra... Þá er getur enginn yfirgefið mig eða sært. Kannski að ég sé bara væmin frekja, væluskjóða og pissudúkka.
Eða jú bara að ég sé svona andskoti Emo.

Þó held ég að litli kúturinn Butters úr South Park hafi hátt ágætis rök fyrir því að leggjast ekki í frekara þunglyndi:

I love life...Yeah, I'm sad, but at the same time, I'm really happy that something could make me feel that sad. It's like...It makes me feel alive, you know. It makes me feel human. The only way I could feel this sad now is if I felt something really good before. So I have to take the bad with the good. So I guess what I'm feeling is like a beautiful sadness

föstudagur, nóvember 03, 2006

November Rain

.
When I look into your eyes
I can see a love restrained
But darlin' when I hold you
Don't you know I feel the same
'Cause nothin' lasts forever
And we both know hearts can change
And it's hard to hold a candle
In the cold November rain
We've been through this
Such a long long time
Just tryin' to kill the pain
yeahh..
But lovers always come
And lovers always go
And no one's really sure
Who's lettin' go today
Walking away
If we could take the time
To lay it on the line
I could rest my head
Just knowin' that you were mine
All mine
So if you want to love me
Then darlin' don't refrain
Or I'll just end up walkin'
In the cold November rain

Do you need some time
On your own
Do you need some time
All alone
Everybody needs some time
On their own
Don't you know you need some time
All alone

I know it's hard to keep an open heart
When even friends seem out to harm you
But if you could heal a broken heart
Wouldn't time be out to charm you

Sometimes I need some time
On my own
Sometimes I need some time
All alone
Everybody needs some time
On their own
Don't you know you need some time
All alone

And when your fears subside
And shadows still remain
I know that you can love me
When there's no one left to blame
So never mind the darkness
We still can find a way
'Cause nothin' lasts forever
Even cold November rain

Don't ya think that you
Need somebody
Don't ya think that you
Need someone
Everybody needs somebody
You're not the only one
You're not the only one

Don't ya think that you
Need somebody
Don't ya think that you
Need someone
Everybody needs somebody
You're not the only one
You're not the only one

Don't ya think that you
Need somebody
Don't ya think that you
Need someone
Everybody needs somebody
You're not the only one
You're not the only one

Don't ya think that you
Need somebody
Don't ya think that you
Need someone
Everybody needs somebody