Eyjólfur hressist og Finnbogi skiptir um gír
Nú verða sagðar fréttir
~^~^
Já. Ég er fluttur á Falkestrasse, 107 Dreittes Reichewich.
Mjög flott íbúð, þó við komum til með að þurfa að breyta ýmsu þar, mála, skipta um fataskáp og innréttingarhurðir og svoleiðis. Þetta er samt alveg svaðalega næs íbúð. Suðurveggurinn er einn stór gluggi og svalir og allt er ljómandi á þessum stað.
Fröken Yoda flytur svo inn í kvöld og er búist við miklu fagnaðarmjálmi.
~^~^
Sætafín er uppi á Kárahnjúkum að moka mat í Pólverja eins og áður hefur fram komið. Hún er væntanleg aftur í siðmenninguna eftir eitthvað um 9 daga eða svo. Sem er laangt. Það er ekki laust við að maður sé farinn að sakna hennar, og þó sérstaklega á síðkvöldum.
~^~^
Afi var jarðaður á föstudaginn frá Kópavogskirkju. Það var að mér skilst önnur fjölmennasta jarðarförin þar síðastliðin 16 ár, geri aðrir betur.
~^~^
Lappsterinn er að flytja búferlum á morgun, hann flyst til Sándtékklands. Það er bara kúl þar sem hann verður þar á tæplega þreföldum verkamannalaunum við nám.
~^~^
Halli Bowie bjallaði í mig í gær, það fer væntanlega að líða að því að hann raupi og bauli fyrir mig inn á band slagarann 'Cats are nice' sem kemur til með að verða á óþemuðu plötunni sem við erum að vinna að.
~^~^
Coburn komu fyrir á sjónvarpsskjám landsmanna á Fimmtudaginn. Það tók enginn eftir því. Ef einhver á upptöku af FK Nörd frá því á Fimmtudaginn er sá hinn sami/lappi/finni beðinn að hafa simbindi.
~^~^
Lag dagsins er Sunday Morning með Velvet Underground.