miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Farvel, kæri vinur



Pétur Andreas Þorsteinsson Maack 1919-2006.
Hvíl í friði.




Hann afi minn, Pétur gekk á vit feðranna í dag.

Afi minn var ein af þessum hetjum vanþakkláts samfélags. Hann skilaði góðu dagsverki, fór mikinn á sinni löngu ævi og ég er þakklátur og stoltur yfir því og fyrir það að vera afkomandi hans. Verst er þó að ég náði ekki að kveðja hann, hann hefði jafnvel verið sáttur við það að nú er ég stuttklipptur, en við áttum það til að skjóta á hárvöxt hvors annars, hann á lubbann minn og ég á augabrúnir hans.

Afi kunni vel að koma frá sér því sem á hjarta hans og huga lá og ef menn fóru illa að ráði sínu þá lét hann þá svara fyrir því, því var afi oft umdeildur, en ég sem barnabarn hans man hann sjaldan nema brosandi hlýju brosi, sem einhvernvegin gaf manni staðfestingu á því að hann var stoltur af okkur. Jú, og bismark brjóstsykur að launum fyrir það að vera stilltur og góður. Ég man það líka að á hverju ári æsku minnar, keypti afi af mér skottið sem ég lét vaxa í hnakkanum (þetta var 80 og eitthvað..) og ég man að hann geymdi ljósrauða fléttu af mér, innrammaða hjá mynd af fálka sem ég teiknaði, stoltur handa sjálfstæðismanninum afa mínum.

Afi minn var sveitastrákur austur á fjörðum þegar seinni heimstyrjöld brast á og sögurnar sem hann sagði mér kveiktu hjá mér áhugann á þessu tímabili sögunnar. Afi var litríkur karakter sem sagði sögur sem oft voru kryddaðar hetjudáðum hans.
Afi minn varð líka efnaður maður þónokkru seinna, og er það til marks um hjartalag hans, að þegar líða fór að jólum, fór hann með matarkassa og gjafir í hús fátæklinga í Kópavogi og gaf þeim sem minna máttu sín sitthvað til jólahaldsins - segja má að hann hafi gefið þeim jólin sem ekki höfðu til hnífs eða skeiðar.

Afi og Amma á sokkabandsárunum

Hann afi minn var maður orða sinna. Hann var þekktur fyrir drenglyndi og kjark. Ef við skoðum forna merkingu orðsins 'heiðinn', þá var hann það réttilega. Heiðarlegur, sterkur, orðheldinn, ættrækinn, kraftmikill og djarfur. Hann hafði allt það til að bera sem getur sæmt íslenska hetju - og hann kunni heldur betur að svara fyrir sig.

Það er því athyglivert, hvað hann afi sagði við hana Öglu ömmu mína í gærkvöldi þegar hún var að fara af spítalanum.

Afi sagðist ekki munu eyða öðrum degi á þessum spítala.*

Ég held hann hafi ekki gert sér grein fyrir því hversu satt það yrði, en það er í anda þessa öðlings að standa við orðin á þennan máta. Hjarta afa Maack gaf sig í dag klukkan að nálgast 15:00. Það tók skamma stund og hann kvaldist ekki og er hugarfró fyrir okkur aðstandendur að hann þurfi ekki lengur að þjást að þeim sjúkdómum sem elli kerling hafði á hann lagt. Samt sem áður skilur hann eftir sig skarð sem við verðum eftir fremsta megni að reyna að fylla í. En menn eins og afi minn deyja aldrei í senn - dagsverk hans lifir áfram hjá okkur afkomendum, og þeim sem hann hjálpaði á sinni löngu ævi.

Hvíl í friði.

Auf wiedersehn Großvater. Auf wiedersehn mein Freund. Sie waren unser Held.

Lag dagsins er eftirlætis lag afa Maack, Edeilweiß.

*Afi tók það þó sérstaklega fram að honum liði vel á spítalanum og að hann nyti góðrar aðhlynningar, svo ekki ber að misskilja það, hann langaði bara heim.

Uppeldi



Ég held að uppeldi hafi ýmislegt með það að segja hvernig einstaklingur maður verður á fullorðinsárunum.
Það er hinsvegar, að ég tel, fáránlegt þegar fullorðið fólk lætur við aðra fullorðna einstaklinga (sem það þekkir ekki) eins og það séu börn sem þarf að ala upp.

Í morgun var maður, sem var n.b. dónalegur til að byrja með, að reyna að fá mig til þess að segja 'gjörðu svo vel'.

Ég er einfaldlega þannig alinn upp að ég gef respect þegar respect er áunnið og er ekki til þess fallinn að láta eins og aumingi ef einhver er dónalegur við mig. Ég ætlaði nú ekkert að vera dónalegur við hann, en mér fannst það ekki vera virði þess að segja 'gjörðu svo vel' við mann sem stendur fyrir framan skilti sem á stendur 'Sýnið tillitssemi - Ekki tala í GSM síma' með GSM síma og talar í hann. Mér fannst það einfaldlega ekki virði þess.

Að svona líka dóni ætli að vera með þann derring að hann ætlist til þess að ég verði kurteis og láti hann ala mig upp á meðan hann er með yfirgang og dónaskap! Fucking hell. Ég er alltaf að komast nær því að biðja um leyfi frá framkvæmdastjóra Kynnisferða til þess að fá að hella mér yfir þá einstaklinga sem eru dónalegir við mig.. þá get ég líka bara farið úr peysunni og bent á að ég sé kominn í kaffi og sé ekki í vinnuni lengur!!

Talandi um uppeldi, þá eru ekki allir þeir kúnnar sem hingað koma dónar og fífl.

Verbinski mæðgur, þær Claire og *Mama* Verbinski, systir og móðir Gores V. komu hér og geymdu farangur sinn hjá mér. Voru þær báðar afspyrnu kurteisar og ljúfar og tipsuðu mig um 500 kall og Trópí flösku. (Ólíkt þeim hundruðum sem hlaupa hérna fram og aftur og varla brosa...) Verbinski Grrls, you rock :D.

Eins kom hingað æðislegur náungi, Appolo frá NY. Hann lét mér eftir vinylplötur tvær og smáskífur á geislaformi sem ég kom í nokkrar mismundandi hendur, innihalda þær skífur upptökur af söngli hans við hið aldagamla Jiddíska þjóðlag 'Hava Nagila'. Mjög gaman að þessu. Kannski ekki beint tónlist eins og ég myndi skapa, eða útsetja, en smekkur manna er jú misjafn, og þetta er alveg andsk. hressandi. Set upp link seinna, og þá mynd sem prýðir umslag plötunnar, en þar sést hinn æðislegi Appolo íklæddur Keffyeh klúti, Davíðsstjörnum, krossum, Rastasvitabandi og gervilim (ekki nef), Hitler-skeggi, furðulegu augnmeiki og svo framvegis... Appolo, you the man!

Þegar mér er hugsað til þess hvað þetta fólk var alltsaman afspyrnu kurteist og skemmtilegt og Bílstjórafávitinn í morgun leiðinlegur, þá verð ég að segja að oft eru Íslendingar skítapakk...

Jæja..

Nóg í bili.

Kynþáttafordómar


Já. Ég lenti í svoleiðis um daginn, í fyrsta skiptið sem ég hef svo mikið sem heyrt af mismunaði annar Íslendingur mér fyrir það að vera Íslendingur (en þeir ku jú vera óalandi og óferjandi) á Íslandi.

Maður þessi var búinn að lofa mér íbúð á Vatnsstíg til leigu en svo komu upp einhver vandamál og hann vildi ekki leigja mér á þeim forsendum að það væri í rauninni óþolandi hvað Íslendingar settu miklar kröfur, krefðust þess að eitrað yrði fyrir kakkalökkum, hiti og rafmagn séu til staðar etc. Með öðrum orðum var þessi mörður að koma sér hjá því að uppfylla þær skildur sem hann hefur gegn leigjendum sínum með því að hafa þá alla útlenska og mátulega kúgaða. Svört leiga og samningslaus.. og engum skildum gegnt. Hálfviti. Ég ætla að fara og veggfóðra nágrenni hússins með þýðingum á leigendaréttindum á Pólsku og Portúgölsku til þess að kynna íbúum hússins réttindi þeirra, svo að helvítið komist ekki upp með það að brjóta svona svívirðilega á fólki.

Aftur á móti skilst mér að ég sé kominn með íbúð á Fálkagötu. Það er alveg tussukúl. Flyt væntanlega um helgina :-D

Wezzide.

Við kisa viljum fá svona í innflutningsgjöf, enda löngu kominn tími til þess að hún fái húsgögn sem líta ekki út eins og... væminn kani hafi hannað þau.

Annars er allt gott að frétta. Það gengur vel hjá okkur Sætufínni (koddadýrið mitt... ekki köttur, mennsk :P), hún er reyndar að fara uppá Kárahnjúka að moka mat í Pólverja, og ég verð grasekkill á meðan. Það er allt í lagi. Mér þykir gras og annar gróður skemmtilegur. Hinsvegar er leiðinlegt að ég kem aðeins til með að hitta hana 12 hvern dag, í 6 daga í senn... en jæja. Við ætlum að skella okkur til útlanda í vor og þá er gott að hún sé með hellings tekjur þangaðtil...

Vonum bara að hún láti Slavek í friði.. ;-P

föstudagur, ágúst 18, 2006

Vegna morgunsalernisferða


Hef ég ákveðið að birta hérmeð ljóð Grunthos viðreks, þjóðskálds Vogona í þýðingu yðar einlægs.

Óður til lítillar grænnar leirklessu sem ég fann í handarkrika mínum einn miðsumarsmorgun.



Leiri. Leiri. Leirileir.
Grænn Leir - Lænn Greir.
Grandarkrikaeir - Morgunn!
Liðsumars - Grorgun Eir!
Uppgötvun..... Óh!.
Leir?..... Kriki?
Handarkriki..... Leir.
Og ekki einusinni sérstaklega
viðkunnalegur skuggi græns.

Zen og listin að fara á salernið



Róaðu hugann
Róaðu líkama
Róaðu þarma
Róastu.
Ekki detta.
Þér eruð ský.
Þér eruð að rigna.
Ekki rigna
Meðan lest
Stendur á stöð
Færist með vindinum.
Biðjist forláts þegar við rekur.

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Bombefly



Ég vil vekja athygli ykkar á snillingum miklum frá Norðurvegi, 'Gatas Parlament' sem eru einatt þekktir fyrir skemmtilegt pólitískt rapp og andstöðu við Bandaríkjastjórn og hernaðarstefnu vesturveldanna. Heimasíða þeirra er Hérna.

Hér fylgir texti (og titill hans hlekkur á) lags þeirra

Bombefly.



Så sender de ned bombefly mot fattigere land
Fordi de æ’kke lydige nok for amerikanerne
Så kaller de det hele for demokrati
Så du kan si vi lever i en spennende tid
Og da snakker vi om folkemord og okkupasjon
De får testa ut no'n bomber de får droppa kondom
Og media får bilder av en råbra krig
Mens alle ser at freden renner over av lik

Yo yo, hvor lenge blir det til neste gang
Den neste krigen starter
De sender bomber og granater
Som etterlater digre krater i andre stater
Hva tror du er årsaken til at hat gror?
En irakisk diktator eller rett og slett nye NATO?
Det er aldri i Midt-Østen de tar ranere
Sender pedagogiske raketter og myrder barnebarnehagene
Hva f*** er det med ranerne neste uke skal de ta iranerne
For de flyr av banene med mord for å sikre tilgang til oljekranene
Så vil de ha med noen norske soldater på de planene
Og Kjell Magne Bondevik suger pikken av amerikanerne
Imperalisme, krig med terror eller hva f*** de kaller det
charles manson går som der, kommer de neste dagene (?)
I sjukehuskorridorene kan de treffe en tiåring
Det er derfor de kaller det for kirurgisk krigføring
De sprenger av fattigdom fordi de hater onder
Bomber universitet med smarte bomber

Så sender de ned bombefly mot fattigere land
Fordi de æ’kke lydige nok for amerikanerne
Så kaller de det hele for demokrati
Så du kan si vi lever i en spennende tid
Og da snakker vi om folkemord og okkupasjon
De får testa ut no'n bomber de får droppa kondom
Og media får bilder av en råbra krig
Mens alle ser at freden renner over av lik

De sier de baserer krigen på krigens folkerett
Der denne resten av verden ikke klarer å tolke rett
Voldta rettferdighet, voldta menneskerettigheter
Retter retning leter etter fetterne til Saddam Hussein
Etter dette heter det ikke krig lenger det heter militære
operasjoner som stopper nasjoner fra det de trenger
Hvite engler på korstog ikke en drit teller med forsvar
For oss tar på tordag etter forslag fra Bush-far
Og bombefly har den egenskapen at den nedgraver
I den andre enden artikkelsyken ikke får preger av den
Man blir meget av direkte kan du se mitt navn og leder
Av den frie verdens meget behagelig glede av det
Så vi rapport på gata til å slutte å hate dyret
Å påstå at de skal få innført et demokratisk styre
Det æ’kke sånn at USA liker å myrde
Langt ifra, det er den hvite manns byrde

Så sender de ned bombefly mot fattigere land
Fordi de æ’kke lydige nok for amerikanerne
Så kaller de det hele for demokrati
Så du kan si vi lever i en spennende tid
Og da snakker vi om folkemord og okkupasjon
De får testa ut no'n bomber de får droppa kondom
Og media får bilder av en råbra krig
Mens alle ser at freden renner over av lik

föstudagur, ágúst 11, 2006

Tollheimtumenn



Ég er alltaf að átta mig meira og meira á því að mér er meinilla við 'innheimtuþjónustur' sbr Intrum, Gjaldheimtuna og svo frv.

Ég er alltaf að verða hlynntari handrukkurum. Hversvegna? Jú.

A. Handrukkarar virka.
B. Handrukkarar eru ekki að fela sig á bakvið háskólagráður, þeir eru rukkarar og viðurkenna það, þósvo að þeir hafi flestir fallið í stafsetningu og svoleiðis þá eru þeir effectívari en helvítis háskólaprófshandrukkararnir.
C. Handrukkarar eru ekki að láta eins og að maður eigi að velkomna þá.
D. Handrukkarar þurfa ekki að auglýsa í sjónvarpi að maður eigi 'ekki að gera ekki neitt' heldur láta þeir DV um að auglýsa sig.
E. Handrukkarar eru ekki glottandi á síðum séð og heyrt, nema Anni, en hann var með Mikka Torfa sem ímyndarsmið (sbr Hamingjusami Handrukkarinn myndina sem er í sífellu birt á síðum DV..)
F. Þú getur rætt við flesta handrukkara eins og heilbrigða einstaklinga, og þeir leggja sjaldnast meira en 25%-50% ofan á skuldina - ólíkt td intrum sem leggur allt að 600% á vídjóskuldir!
G. Það er harla ólíklegt að handrukkarar hringi í þig og láti eins og þeir séu einhverjar heilagar kýr og trufli þig við vinnu vegna skulda sem eru ekki þitt mál.


Annað sem fer geigvænlega í taugarnar á mér eru fullorðnir menn, í viðskiptum, sem láta eins og 5 ára lúserar í þykjustuleik sem segja 'ég var annar kall - ég er með aðra kennitölu núna!!'.

Þannig menn eiga að fá að hitta menn eins og ég talaði um hér að ofan.

mánudagur, ágúst 07, 2006

360°



Hefði frá fjölmörgu að segja eftir hringferð helgarinnar, skondin ferð.
Hef fjölmargar spurningar útí lífið og tilveruna.
Hef margt að læra.
Hef þetta lag fast í hausnum á mér.

Baker St.



Winding your way down on Baker Street
Light in your head and dead on your feet
Well another crazy day, you’ll drink the night away
And forget about everything.

This city desert makes you feel so cold
It’s got so many people but it’s got no soul
And it’s taken you so long to find out you were wrong
When you thought it held everything.

You used to think that it was so easy,
You used to say that it was so easy
But you’re tryin’, you’re tryin’ now.
Another year and then you’d be happy
Just one more year and then you’d be happy
But you’re cryin’, you’re cryin’ now.

Way down the street there’s a light in his place
He opens the door, he’s got that look on his face
And he asks you where you’ve been, you tell him who you’ve seen
And you talk about anything.

He’s got this dream about buyin’ some land
He’s gonna give up the booze and the one night stands
And then he’ll settle down, in some quiet little town
And forget about everything.

But you know he’ll always keep movin’
You know he’s never gonna stop movin’
Cause he’s rollin’, he’s the rollin’ stone.
And when you wake up it’s a new morning
The sun is shining, it’s a new morning
But you’re going, you’re going home.

miðvikudagur, ágúst 02, 2006

Halló


Ég fór í bæinn í dag og fékk mér varanlegt.


Ég á hvíta strigaskó með topplúgu



Ég er að fara að flytja bráðum.

Er kominn með íbúð á Whazzteek. Eða Vatnsstíg. Man ekki hvort.

Það verður í hæsta máta hressandi. Þá getur maður farið að gera eitthvað af viti.... og gengið í og úr vinnu.

Veit einhver um hlaupahjól sem þarf nýjan eiganda, eða hvar ég gæti fengið varadekk á mitt eigið? Það myndi stytta vinnuför mína um alveg 5 mínútna labb...

Ennishús. Ég kem til með að halda smáteit þegar við kisa verðum búnað koma okkur (og vonandi sem oftast Sætufínni, stúlkunni sem ég hef minnst á í fyrri færslum..) fyrir.