föstudagur, júlí 28, 2006

Emotional Blackmail



Ég var að lenda í athygliverðu atviki hérna í vinnuni.

Þýzk kona um fimmtugt kom hingða með frauðkassa fylltan fiski og spurði mig hvort hún gæti geymt kassa þennan (7,9kg að þyngd) til klukkan 11.

Ég jánkaði og sagði henni að það kostaði 400 kr.

Sem er ekkert sérstaklega ódýrt, en það er standardverð.

Kona þessi sagðist eiga 250kr, og fyrir flugrútunni, enda hefði hún gefið 'ein kinder' síðasta peninginn sinn. Ég sagði henni að ég gæti því miður ekki breytt lágmarksverðinu sem mér væri sagt að rukka fyrir geymslu.

Þá muldraði þessi kona fyrir sér eitthvað á Þýzku um ástand heimsins og kaldlyndi fólks. Ég ranghvolfdi augum*.

Hún tók kassann sinn, kjökrandi og gekk að borði sem er fyrir framan pakkamóttökuna þar sem ég vinn. Þar tók hún um höfuð sér og kjökraði.

Ég hef mjög takmarkaðan áhuga á því að hafa grátandi túrista fyrir framan borðið mitt þegar ég er að reyna að líta út fyrir að vera að gera eitthvað, svo ég hóaði í hana og bauðst til að geyma kassan til hliðar hjá mér (ekki í geymslunni) endurgjaldslaust. Hún tók gleði sína á ný og tók að segja mér sögur frá því að þetta væri 5 húsbílaferðin hennar til Íslands og hélt áfram að babla um Norrænu, flugrútuna, sprautur á Landsanum og svo framvegis. Ég hélt áfram að reyna að spila Tetris óáreittur.

Kona þessi spurði mig hvort ég seldi miða í flugrútuna sem ég kvaðst ekki gera, benti henni á réttan bás og færði mig út í reyk á meðan, svo hún hlífði mér frá frekari sögum. Ég tók svo eftir því að hún hafði tipsað mig persónulega um heilar 250kr sem hún hafði falið í límmiðarúllu sem ég hef mér til handagagns ef fávitar halda að þeir komist upp með að senda pakka ómerkta á rútuna (og hringja svo daginn eftir í mig og væla viðstöðulaust yfir því að pakkinn týnist).

Ég áttaði mig skömmu eftir á því að ég hafði látið glepja mig í tilfinningalega fjárkúgun að hætti 5 ára barna. Mér þykir þetta afar fyndið, en ég hafði engin önnur úrræði, ekki gat ég farið að rukka fólk fyrir að koma til mín og horfa á miðaldra Berlínarkonu gráta.

^~^~^~^~^~^
Skömmu síðar kom til mín Bresk kona sem spurði mig.

UK"Do you speak English

ÉG"Yes, incidentally, I do.

UK "Oh, great, are you English?

ÉG "Look at my teeth and ask me that again"**



*as you do...

**Ekki alveg.. en hafa skal það sem fyndnara reynist.

mánudagur, júlí 24, 2006

Arbeit macht Trockene...



Eða eitthvað í þá áttina.

Ég sit hérna fyrir allar aldir (árið 08:43 F.Kr.) og er eitthvað með hálfgerðan hroll hérna í kuldanum á BSÍ. Túristarnir flykkjast hérna um eins og skuggar hver af öðrum, ýmist eldri grænmetisætur frá Þýzkalandi eða ungir krakkar með Keffyeh klúta um háls sér sem hafa mikinn áhuga á landi og þjóð, Íslenska hestinum og útrýmingu Alþjóðlega Gyðinglega Kommúnistasamsærisins.
Eða eithtvað í þá áttina.

Stöku Bretar þvælast á milli. Einn eldri maður sem líkist mest af öllum Prof Hubert Farnsworth úr Futurama, (nema bara hvað að hann er með 'Upper Class Twit' hreim)stumrar um og Íslensk stelpa með sterkan Bjarkarlegan hreim snýst í kring um hann og virðist svo vera að hún haldi að lækningin við útlensku sé sú að tala bara hærra.

Titturinn sem ég vinn með (16 vetra fótboltagæðingur) er úti að týna rusl, sólin lætur sakna sín og kuldinn er eiginlega orðinn þreytandi. Börn sem minna einna helst á Reichskinder sökum litarhafts síns hlaupa í hringi fyrir framan deskinn á meðan Amerísk kona með afspyrnu ljótan hatt hleypur framhjá, hún hljómar eins og Eddie Murphy. Hún er samt augljóslega ekki hann.

Mér líður hálfpartinn eins og ég sé landamæravörður í hinu eilífa stríði efnishyggju og andans. Handan salarins sé ég Fljótt og Gott bjóða upp á líkamlega næringu (Matareitrun með Majonesi og sultu), á meðan miðadeskurinn mér við hlið býður andlega næringu, exkúrsjónir og ég veit ekki hvað og hvað. Ég er hinsvegar hérna við deskinn í þeim tilgangi að færa fólki böggla og bréf, töskur og annað eins sem því berst í pósti og að sama skapi taka við sendingum sem ég sé til að rútubílstjórarnir fari nú örugglega með á sinn rétta áfangastað.

Mér skilst að ég eigi möguleika á íbúð á næstunni niðrí bæ. Mikið ætla ég að vona fast og innilega að ég fái þá íbúð. Ég er alvarlega kominn með ógeð á því að vera útá Álftanesi, þó svo að ég kunni ágætlega við allt sem þar er, staðsetingin er hinsvegar alveg útúr kortinu og ég þarf að sjálfsögðu líka mitt næði.

Encore avec sentiment!


Ég er búnað vera að daðra undanfarið við stúlku sem hefur komið við sögu í lífi mínu áður. Ég veit að þeir lesendur mínir sem eitthvað þekkja mig vita hverja ég er að tala um, þið hin; það kemur í ljós seinna.

Ég hef hugsað ótrúlega mikið um hana undanfarið; mig langar að bæta henni það upp hvað ég var leiðinlegur við hana. Virðist vera að ég hafi erft það frá formóður minni Guðrúni Ósvífursdóttur að fara illa með þá sem ég síst skildi, en ég er sem betur fer fæddur einum 1011 árum eftir Guddu langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langa-langömmu minni og sem betur fer las ég Laxdælu í menntó (þó það hafi kannski ekki sést á prófi) og er ég því vonandi af kynslóð sem er búin að læra eitthvað.

Stúlka þessi sem ég hef verið að renna hug mínum til á nefnilega allt hið besta skilið, og ég er ekki viss um að ég hafi hegðað mér sem skildi í hennar garð þegar við áttum síðast samleið í umferðarþunga lífsins. Ég held að ég hafi reyndar gert allt annað.

Hinsvegar verður maður að gera sér grein fyrir því einhverntíman á lífsleiðinni að maður hefur ekki alltaf rétt fyrir sér, maður verður að gleypa stolt sitt. Maður verður að vera óhræddur. Sjáið til; Lífið er ekki svo ósvipað Jazz-standard. Nú veit ég að margir sem lesa þetta hugsa 'Jazz er leiðinlegt lag' en það er líka alveg málið hjá mörgu fólki, sumum þykir jazzinn leiðinlegur, sumir spila illa út því sem þeir hafa í höndum sér, aðrir ná ekki hljómaganginum, og enn á ný eru aðrir ekki viss um að banjó og sítar* passi vel saman í cool jazz fíling.
En lífið er spuni sem við framkvæmum jafnóðum. Lífið er ekki spurning um leiðinleg lög eða útsetningu. Lífið er spurning um að koma sínu til skila. Láta melódíu hjarta síns og hugar koma fram. Stundum eru hljóðfærin ekki stillt, og þá þarf að taka smá tíma frá til þess að bæta úr því. Stundum þarf maður að ýta á pásu til þess eins að komast aftur í góða sveiflu.

Ég vona að ég nái því að stilla strengi mína þetta skiptið. Það er búið að hamast talsvert á þessum gítar, rétt eins og gígju þeirri sem ég er að reyna að tóna við, það getur kostað þolinmæði að vinna úr stillingum, stundum þarf maður bara einfaldlega að stoppa við og hlusta á sjálfan sig og það hljóðfæri sem maður óskar sér að stilla við. Svo má reyna aftur, með fíling.



*Mig hefur alltaf dreymt um að semja og útsetja tónverk fyrir Harmónikku, Sítar, Banjó og Theremin...

laugardagur, júlí 22, 2006

Kvót



Um daginn leiddist mér og ég ákvað að senda inn færslu með ýmsum tilvitnunum sem ég póstaði á rifrildisþræði á myspace.. ákvað að birta þetta hérna.

~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~


Each religion has got their own way of making you feel like a victim. The Christians say 'you are a sinner', and you better just zip up your trousers and give the money to the pope and we'll give you a room up in the hotel in the sky. -Dr.T.Leary

Monotheism is the primitive religion which centers human consciousness on Hive Authority. There is One God and His Name is ------- (substitute Hive-Label). If there is only One God then there is no choice, no option, no selection of reality. There is only Submission or Heresy. The word Islam means 'submission'. The basic posture of Christianity is kneeling. Thy will be done.
Dr.T.Leary


~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~


The Christian resolution to find the world ugly and bad has made the world ugly and bad. ~ Nietzsche

Independence is an issue that concerns very few people: it is a prerogative of the strong. And even when somebody has every right to be independent, if he attempts such a thing without having to do so, he proves that he is probably not only strong, but brave to the point of madness. He enters a labyrinth, he multiplies by a thousand the dangers already inherent in the very act of living, not the least of which is the fact that no one with eyes will see how and where he gets lost and lonely and is torn limb from limb by some cave-Minotaur of conscience. And assuming a man like this is destroyed, it is an event so far from human comprehension that people do not feel it or feel for him: and he cannot go back again! He cannot go back to their pity again! -Nietzsche

The very word 'Christianity' is a misunderstanding in truth, there was only one Christian, and he died on the cross. - Nietzsche


~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~


He was free, free in every way, free to behave like a fool or a machine, free to accept, free to refuse, free to equivocate; to marry, to give up the game, to drag this death weight about with him for years to come. He could do what he liked, no one had the right to advise him, there would be for him no Good or Evil unless he thought them into being -Jean Paul Sartre


~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~


The first thing you have to do if you want to raise nice kids, is you have to talk to them like they are people instead of talking to them like they're property -F.Zappa

The biggest threat to America today is not communism. It's moving America toward a fascist theocracy, and everything that's happened during the Reagan administration is steering us right down that pipe ... When you have a government that prefers a certain moral code derived from a certain religion and that moral code turns into legislation to suit one certain religious point of view, and if that code happens to be very, very right wing, almost toward Attila the Hun... -F.Zappa 1986

So, when Adam and Eve were in the Garden of Eden, if you go for all these fairy tales, that "evil" woman convinced the man to eat the apple, but the apple came from the Tree of Knowledge. And the punishment that was then handed down, the woman gets to bleed and the guy's got to go to work, is the result of a man desiring, because his woman suggested that it would be a good idea, that he get all the knowledge that was supposedly the property and domain of God. So, that right away sets up Christianity as an anti-intellectual religion. You never want to be that smart. If you're a woman, it's going to be running down your leg, and if you're a guy, you're going to be in the salt mines for the rest of your life. So, just be a dumb fuck and you'll all go to heaven. That's the subtext of Christianity
...
The essence of Christianity is told to us in the Garden of Eden history. The fruit that was forbidden was on the Tree of Knowledge. The subtext is, All the suffering you have is because you wanted to find out what was going on. You could be in the Garden of Eden if you had just kept your fucking mouth shut and hadn't asked any questions. -F.Zappa

What's the ugliest part of your body? Some say its your nose, some say its your toes, but I think its your mind. -F.Zappa



~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~


What do you say we lighten things up and talk about abortion? You know, I feel like I'm losing some of you here, and I want to win all of you back with this one. Let's talk about abortion. Let's talk about child killing and see if we can't get some chuckles rippling through the room here. Let's talk about mass murder of young, unborn children and see if we can't coalesce into one big, healthy gutlaugh. Ha ha ha ha!

Boy, I've never seen an issue so divisive. It's like a civil war, isn't it? Even amongst my friends, who are all very intelligent; they're totally divided on abortion. It's unbelievable. Some of my friends, for instance, think these pro-life people are annoying idiots. Other of my friends think these pro-life people ... are evil fucks. How are we going to come to a consensus? You ought to hear the arguments around my house: 'They're annoying, they're idiots.' 'They're evil, they're fucks!' Brothers, sisters, come together! Can't we once just join hands and think of them as evil-annoying-idiot-fucks? I beseech you. But that's me ...- Bill Hicks


~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~


Christianity will go. It will vanish and shrink. I needn't argue with that; I'm right and I will be proved right. We're more popular than Jesus now; I don't know which will go first - rock and roll or Christianity. Jesus was all right, but his disciples were thick and ordinary. It's them twisting it that ruins it for me - J.Lennon



~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~


My whole soul rebels against the idea that Hinduism and Islam represent two antagonistic cultures and doctrines. To assent to such a doctrine is for me a denial of God. -Mohandas Gandhi

I like your Christ. I do not like your Christians. Your Christians are so unlike your Christ. - Mohandas Gandhi

The most heinous and the most cruel crimes of which history has record have been committed under the cover of religion or equally noble motives. -M.Gandhi

I consider western Christianity in its practical working a negation of Christs Christianity - M.Gandhi


~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~


Great spirits have always encountered violent opposition from mediocre minds. The mediocre mind is incapable of understanding the man who refuses to bow blindly to conventional prejudices and chooses instead to express his opinions courageously and honestly. - Albert Einstein


~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~


In Christian ethics.... animals are seen as mere things. They can therefore be used for vivisection, hunting, coarsing, bull-fights and horse-races and can be whipped to death as they struggle along with their heavy carts of stone. Shame on such a morality that fails to recognise the eternal essence that exists in every living thing and shines forth with inscrutable significance from all eyes that see the sun. -Schopenhauer

(Music)...stands quite apart from all the others. In it we do not recognize the copy, the repetition, of any Idea of the inner nature of the world. Yet it is such a great and exceedingly fine art, its effect on man's innermost nature is so powerful, and it is so completely and profoundly undertood by him in his innermost being as an entirely universal language, whose distinctness surpasses even that of the world of perception itself, that in it we certainly have to look for more than that exercitium arithmeticae occultum nescientis se numerare animi (an unconscious exercise in arithmetic in which the mind does not know it is counting) which Leibniz took it to be. -Schopenhauer


~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~


I found one day in school a boy of medium size ill-treating a smaller boy. I expostulated, but he replied: 'The bigs hit me, so I hit the babies; that's fair.' In these words he epitomized the history of the human race*. - Bertrand Russell

The most savage controversies are those about matters as to which there is no good evidence either way. Persecution is used in theology, not in arithmetic, because in arithmetic there is knowledge, but in theology there is only opinion. -B.Russell

No nation was ever so virtuous as each believes itself, and none was ever so wicked as each believes the other. B. Russell**

*Israel?
**USA?

~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~

Og svo vildi ég setja upp hlekk á yfirlýsingu sem skrifuð var fyrir 51 ári síðan, en á alltof vel við ennþá daginn í dag.
The Russell-Einstein Manifesto.

miðvikudagur, júlí 12, 2006


S Y D
R.I.P.


Roger Keith Barrett 1946-2006



Einn af þeim tónlistarmönnum sem á hvað skemmstum tíma hafði hvað mest áhrif á tónlistarsöguna lést þann 7/7 síðastliðinn af völdum sykursýkistengdra veikinda. Syd Barrett stofnandi og upprunalegur söngvari og aðallagahöfundur Pink Floyd er allur.

Ég get ekki sagt margt um það, þótt Syd hafi verið eitt af mínum eftirlætum úr tónlistarsögunni og mikil sköpunarleg fyrirmynd, þá held ég að hann sé kominn á betri stað núna. Eða ekki. Í það minnsta er hann ekki að kveljast lengur.


Smellið á stafina, en þó bara einn í einu, nema ef þið viljið gera einhverskonar furðulegt cacófónískt'tribute'.

S

Í eigin orðum


Y

Af vörum vina


D

og aðdáenda.

miðvikudagur, júlí 05, 2006

Hvað skal segja



Mér líður eiginlega of vel. Ég er fylltur einhverskonar tilhlökkun sem orð hafa væntanlega ekki dýpt og fyllingu fyrir. Tilhlökkun sem einkennist af sérstakri spennutilfinningu sem ég get eiginlega ekki orðað sem annað en 'Freude'.

Á stundum væri lífinu best lýst sem hugrenningu manns sem bundinn er framan á BMW í eigu þýzks adrenalínfíkils sem keyrði misjafna vegi. Oft er eins og maður renni eftir Autobahn, aðrar stundir er maður að hrökklast á einhverjum austantjalds malarvegum. Mér líður samt, held ég best, eins og að ég hafi náð að losa mig úr böndum þessa ökuníðings, eins og ég hafi náð að standa upp og rífa manninn úr bílnum og taka stjórn sjálfur.

Sem er andskotanum skemmtilegra.

Samt áttar maður sig á því að það er ekkert skemmtilegt ævintýr, þrátt fyrir stórbrotinn söguþráð, það ævintýr sem ekki hefur merkingu. Tilbreytingarleysi óreiðunnar er mér mikið hugarefni þessa dagana, því fátt er tilbreytingarlausara en að horfa á snjókomu á sjónvarpsskjánum og algjört frelsi mitt undanfarna daga lætur mig þyrzta í að gera eitthvað stórfenglegt.

Það er nú samt sem áður ekki þar með sagt að ég sé að fara að gera eitthvað..

Talandi um að gera eitthvað.
Um daginn var ég að glápa á DVDmynd heima hjá félaga mínum þegar ég rak augun í og meiddi mig. Svo tók ég eftir því að ég þekkti eina aukapersónuna, eða svona hér um bil.

Anyhue.
Hérna er mynd af sagðri aukapersónu og í það minnsta bróður hans.