mánudagur, febrúar 27, 2006

Imitation of life



Tölvuleikir.

Mér þykja tölvuleikir sennilega það barnalegasta drasl sem til er.
Ég leik mér sjálfur mjög mikið í tölvu - aðallega við samskipti við annað fólk, photoshop og fl. Ég er að leika mér per se, en ég er ekki í tölvuleik - ég er að leika mér að tæki sem ég nota til samskipta við annað fólk og halda úti vefsíðum til þess að auglýsa hluti í mínu eiginlega lífi.

Ég þekki mann sem á 10 bila. Hann eyðir frítíma sínum í tölvuleikjum við það að keyra.

Mér þykir það svipa til þess að fara á netið til þess að leita að porni þegar kynlíf með fullkomlega aðlaðandi manneskjum stæði til boða - og með vali úr 10 manneskjum jafnvel!

Það má þó segja að tölvuleikir bjóði uppá hraðakstur sem ekki væri jákvæður á götum borgarinnar.. en ég leyfi mér að efast um að ég sé einn um það að þykja dapurlegt þegar fullorðnir menn eyða tíma sínum í einhverja barnaleiki.

Það síðasta sem ég myndi nokkurntíman gera væri að leika mér í tölvuleik sem gengi útá gítarleik. Það gæti verið gaman jú, en til hvers að gera það í tölvu þegar maður á kick-ass gítar og getur spilað í alvöru....

æji ég veitekki..
pirr....

Endalok



Sérstaklega þykir mér miður að fólk leikur sér í tölvuleikjum þegar ýmislegt annað er til boða - og lífið þetta stutt.
Ég sat íbygginn í gær og horfði á sjónvarpsþátt og að mér sótti stuggur. Það var andskoti mikið um lík og dauða í þessum þætti sem fjallaði reyndar um lögreglumenn og störf þeirra.. - ekki að það hafi gert þetta neitt skárra.

Ég fór að hugsa aðeins um dauðann og hversu stutt lífið er - hversu valdalaus maður er gagnvart eigin lífi og lokum þess. Maður ræður ekki og veit ekki eigin ævi, og það sem verra er að við vitum ekkert um hvað lífið leiðir af sér - hvert við förum eftir að partíið hérna niðri er búið - þú ert kosinn af plánetunni og allt fer í lokaþátt í kistu.

Við höfum ekki sönnun fyrir neinu framhaldi á þessu lífi. Það er kannski scary- en ef framhald skyldi vera þá vitum við ekki í hvaða formi það yrði. Endurfæðing? Himnaríki? Hreinsunareldur? Helvíti? Valhöll? Olympia? Geimskip?

Þessi ótti sem að mér sótti (poet and didn't knowit) færði mig aðeins á aðra braut hugsunar. Við erum dauð hvort eð er. Það vita allir hvernig þetta borð endar- við verðum game-over að lokum.
Hinsvegar er þetta spurning um hversu sáttur maður getur skilið við þennan táradal.

Mig langar ekki að sagt verði um mig í Jarðarfjörinu sem haldið verður þegar ég dey og heygist " Einar var góður strákur, hékk mikið í tölvuleikjum og gerði aldrei neitt annað - hann var í tölvuleik... " - mér þykir þó ólíklegt að af slíku yrði.. Ég er ekki tölvuleikjafrík.

Það sem ég er að reyna að koma til skila er þetta.

Lífið er stutt. Við höfum ekki sönnun fyrir öðru lífi, vísindalega séð er það ólíklegt - en þau sanna nú svosem bara sitt. Við eigum 75 ár eða svo hérna sem við getum eitt á hvern þann máta sem við viljum.

Ég vil líf. Ég vil lifa. Ég vil ekki imitation of life á einhverjum skjá. Ég vil alvöru líf en ekki stýra sýndarveruleika með lyklaborði - ég vil finna, snerta, bragða, lykta og sjá heiminn eins og hann er - ekki eins og einhver forritaði hann.

Ég vil ekki líf í betri upplausn en raunupplausn.
Ég vil líf en ekki plastískt gerviefni.
Aðrir mega eiga sínar eftirhermur af lífi.

sunnudagur, febrúar 26, 2006

GAAAARG



Mig vantar leiguíbúð sem fyrst. Ég er alveg að klepra hérna.
Hverjum í fjandanum datt í hug að hafa byggð á Álftanesi?

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Loftsteinabelti.



Mig er farið að dreyma stórfurðulega þessa dagana, eins og þið sáuð kannski á færslunni frá því í gær. Engu að síður held ég að draumurinn sem mig dreymdi í nótt hafi verið kannski eilítið eitthvað furðulegri...

Mig dreymdi að loftsteinaregn hófst hér á jörðu. Öllu heldur, sólkerfið okkar fór í gegnum loftsteinabelti. Það var mjög hressandi. Sérstaklega þar sem logandi ís og grjóthnullungar á stærð við einbýlishús hrundu niður í vatnsmýrinni og skólavörðuholtinu. Að sjálfsögðu var þetta fremur órökrétt, þar sem loftsteinn á stærð við Buick myndi nægja til þess að þurrka út meirihluta lífs á jörðinni...

En þetta var allt saman athyglivert, að fylgjast með því hvernig fólk lifði af - sumir leiddu þetta hjá sér í felum (blind gagnvart hættunni) á meðan aðrir reyndu sitt besta til þess að komast á brott. Ég reyndi aðallega að lifa af... Fólk sem varð fyrir áhrifum geislunnar vegna loftsteinanna hóf að verða blátt. Bláir heilalausir geimzombíar.... rosalega hressandi..

Og aðra nóttina í röð þurfti ég að drepa alveg heilan helling af fólki - sem var þó allt í lagi, þar sem þetta fólk var ekki fólk lengur. Afspyrnu dramatískt alltsaman.

Þetta var nefnilega svolítið magnað. Ég held að draumar mínir séu að kalla út dýrseðlið í mér. Ef ég þyrfti að drepa gæti ég það samkvæmt þessum draumum - þósvo að ég vilji í rauninni ekki gera flugu mein - nema ef flugan er með einhvern dólg, þá er sko mér að mæta....!

Engu að síður. Þetta var mjög athygliverður draumur. Skemmtilegt þykir mér líka að ég er farinn að fara útá land í draumum mínum. Þá þarf ég ekki að fara þangað vanandi.

Alrightythen.

Þá vitum við það.




You scored as Gunshot. Your death will be by gunshot, probably because you are some important person or whatever. Possibly a sniper, nice, quick, clean shot to the head. Just beautiful.

Gunshot

100%

Suicide

93%

Disappear

87%

Cut Throat

67%

Posion

60%

Stabbed

53%

Bomb

53%

Suffocated

47%

Disease

47%

Eaten

47%

Accident

40%

Natural Causes

33%

Drowning

27%

How Will You Die??
created with QuizFarm.

mánudagur, febrúar 20, 2006

Learn to swim



Ég veit ekki hvað skal segja. Heimurinn er ógeðslegur. Fullur af kvikindum sem fara illa með hvort annað. Fyrir mér er mannkynið alveg að missa allan sjarma. Maðurinn lenti i 97da sæti yfir vinsælustu dýrategundirnar hjá mér í gær, sæti 96 er skipað amöbum.

Kannski er þetta bara almennur pirringur hjá mér og reiði vegna heimsku og illmennsku jarðarbúa. Fucking vírus í strigaskóm. Flottum Converse kannski, en það breytir ekki grundvallaratriðinu.

Mig dreymdi furðulega í nótt, ég var hundeltur af Kínverjum, Múslimum, Könum og Kirkjunnar mönnum... ég var viðfangsefni mannaveiða af grand skala - ég held ég hafi drepið í það minnsta 45 manns í draumnum - þá sem voru á eftir mér það er að segja... Meðal annars braut ég flösku á höfði Kínversks manns sem kom að mér, stakk félaga hans í hálsinn með stúfnum og snéri hinum rotaða að manni sem skaut járnstöng að mér úr lásboga. Maður má víst ekki reyna að neyða ríkisvaldið til þess að leggja sjálft sig niður með því að koma fyrir kjarnavopnum um allan heim og hafa fjarstýringuna.. þetta var gert í þágu friðar... :-P

Oh well. Þá er það bara að stefna loftstein hingað eða koma stórum Hummer á sporbaug um sólu og breyta stefnu hans - að jörðinni þegar hann er kominn á næga ferð...

Crash!

Vona bara að þið getið synt í burtu mín kæru.

Aenima


Tool

Some say the end is near.
Some say we'll see armageddon soon.
I certainly hope we will.

I sure could use a vacation from this
bull-shit three ring circus sideshow of
Freaks here in this, hopeless fucking, hole we call LA.
The only way to fix it is to flush it all away.
Any fucking time.
Any fucking day.
Learn to swim, I'll see you down in Arizona bay.

Fret for your figure and
Fret for your latte and
Fret for your lawsuit and
Fret for your hairpiece and
Fret for your prozac and
Fret for your pilot and
Fret for your contract and
Fret for your car.
It's a bull-shit three ring circus sideshow of
freaks here in this hopeless fucking hole we call LA.
The only way to fix it is to flush it all away.
Any fucking time.
Any fucking day.
Learn to swim, I'll see you down in Arizona bay.

Some say a comet will fall from the sky.
Followed by meteor showers and tidal waves.
Followed by faultlines that cannot sit still.
Followed by millions of dumbfounded dipshits.
Some say the end is near.
Some say we'll see armageddon soon.
I certainly hope we will
I sure could use a vacation from this
stupid shit, silly shit, stupid shit...
One great big festering neon distraction,
I've a suggestion to keep you all occupied.
(Learn to swim, Learn to swim,Learn to swim)
Mom's gonna fix it all soon.
Mom's comin' round to put it back the way it ought to beeeeeeeee.

(Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim,
Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim)
Fuck L Ron Hubbard and Fuck all his clones.
Fuck all these gun-toting Hip gangster wannabes.
(Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim,
Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim)
Fuck retro anything. Fuck your tattoos.
Fuck all you junkies and Fuck your short memory.
(Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim,
Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim)
Fuck smiley glad-hands with hidden agendas.
Fuck these dysfunctional, insecure actresses.
(Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim,
Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim, Learn to swim)
Cuz I'm praying for rain
and I'm praying for tidal waves
I wanna see the ground give way.
I wanna watch it all go down.
Mom please flush it all away.
I wanna see it go right in and down.
I wanna watch it go right in.
Watch you flush it all awaaaaaaaaay.

Time to bring it down again.
Don't just call me pessimist.
Try and read between the lines.
I can't imagine why you wouldn't
Welcome any change, my friend.
I wanna see it come down.
(Suck it down. Suck it down)
Flush it down.

fimmtudagur, febrúar 16, 2006

.. Bókasafn



Ég var að hugsa um svolítið sem vinkona mín sagði við mig fyrir ca 1-2 árum síðan.
-Að ég ætti helvíti lítið af bókum miðað við annars vel lesinn einstakling.

Mig minnti að eitthvað af þessum bókum væru hérna á Álftanesinu og ég hafði engar áhyggjur af þvi.

Svo fór ég að spékúlera..

Ég hef alla tíð verið þannig maður að ég hef lánað bækur. Bækur eru nytsamlega fyrir hvern sem er, enda auðga þær vitneskju og ímyndunarafl hvers sem les þær, sama hversu léleg bókin er. Ég hef lesið bæklinga frá Krossinum sem skildu mig samt eftir auðugri þrátt fyrir að vera innihaldssnautt heimsendarúnk.

Bækur sem ég hef lánað hafa hinsvegar haft gott lag á því að skila sér ekki. Mér reiknast að ég eigi um það bil 4-5 kassa af bókum, gefnum út á árunum 1850-2004 sem ekki eru undir mínum höndum. Eru ekki lengur í minni nærveru, eru ekki að koma mér til góða - en ég hef gaman að því að lesa bækur aftur og aftur og aftur og aftur.

Það versta við þetta er að ég er maður sem er með fremur sérstæðan smekk og ég gæti þessvegna alveg eins öskrað á einhvern fyrir það að gefa mér asnalega bók (..ég er erfiður á stundum).

Þessvegna ákvað ég að vera svolítið meira en sniðugur og útbúa hérna góðan lista á Amazon.com með bókum og ýmsu sem ég væri alveg til í að fá gefins ef einhvern langar til að gleðja litla sæta mig, þar sem ég er nú lasinn heima hjá foreldrum mínum og hef fátt til þess að stytta mér aldur við.

annars er ég bara að vera heimtufrekur.

þriðjudagur, febrúar 14, 2006

Iconoclast : Deux ex humanum


Love is the law, love under will


eða: Einar gerist djúpur eftir bleiku færsluna



Mannkynið hefur gott lag á því að trúa á asnalegustu hluti í heimi.
Kalla á skýjum, sem merkilegt nokk líkjast þeim. Mennirnir með öðrum orðum manngera hina ótrúlega venjulegustu hluti, samanber dauðann/Manninn með ljáin, áfengisvímu/Pan- Díóníossos - Bacchus og jafnvel eins venjulega (en ekki sjálfsagða) hluti eins og líf og frjósemi og í rauninni nánast hvað sem manninum hefur við komið í gegnum tíðina hefur verið holdgert á einhvern máta og gefið einhverskonar kunnuglegan blæ. Það gerum við til þess að vera ekki hrædd.

Hversu margir hérna inni tala við tölvuna sína eða bílinn sinn þegar þeirra sköpunarverk mannana virka ekki sem skildi.

Ég nefni gítarana mína kvenmannsnöfnum og tala um þær í kvenkyni.

Ég geri það fyrir betri heppni á einhvern máta, að mér farnist betur að ná tilskildri tilfinningu útúr hljóðfærinu, rétt eins og þegar íþróttamenn neita að skipta um sokka.

Mannkynið hefur lag á því að trúa á ótrúlegustu hluti.

Mannkynið hefur til að mynda óbilandi trú á sjálfu sér, og leyfir sér þann hrikalega hroka að kalla sína eigin tegund Homo Sapiens Sapiens = Maður með viti sem veit. Ég leyfi mér persónulega að efast um almennt vit þeirra einstaklinga sem ætlast virkilega til þess að við séum vitibornasta form í heimi.

Í heimi.

Heimurinn er áætlaður 7.4 × 10 í 23veldi km að stærð. Það eru semsagt 24 núll aftan á þá tölu. 74 000 000 000 000 000 000 000 000 km. Það er semsagt eitthvað um 1.9 × 10 Ljósár í 33 kúbíska tugveldinu til þess að vera sem skýrastur. Ég ætla að leyfa mér að trúa að það sé til (vonandi) eitthvað gáfaðara en við.

Við höfum trú á sjálfum okkur. Við þurfum ekki til þess að gera að efast um að við höfum flest öll vott af ranghugmyndum um hæfni okkar.
Við höfum þætti eins og Idol til þess að votta það að það eru til fleiri þúsundir ef ekki hundruðir þúsunda nay - yfir heiminn leyfi ég mér að álykta að í það minnsta milljón manna í þessum heimi hefur ranghugmyndir hvað varðar söngraddir þeirra sjálfra.

Við erum tegund sem sleppur frá svartnættinu við það að komast upp með smávegis trú á sjálfum okkur. Svartnættið grípur marga einstaklinga sem missa trúna á sjálfum sér, á tilgangi og að það sé í alvörunni eitthvað skárra en við í þessum heimi.

Ég leyfi mér að halda í trúnna á það að kettinum mínum þyki í alvöru vænt um mig, sama hvaða mat ég gef blessuðu læðugreyinu.

Einn valdamesti maður í vesturheimi. Goggi Búsh, er dæmi um mann sem hefur yfirburðaranghugmyndir um sína eigin hæfni.

Það er til fólk sem trúir því að Dóri Ásgríms sé mjög sjarmerandi.

Það er líka til fólk sem heldur því fram að hann sé það ekki.

Það að meirihluti fólks í kring um mig láti leiðast til þess að trúa að það sé til einhver alvitur Jéhófur sem sé ekki sama um það, kemur það mér ekki á óvart. Hvort sem fólkið er múslimar, kristnir, gyðingar eða fylgismenn Baha'u'llah (eða hvernig sem maður á að stafa það - Stafsetning á Arabískum orðum og nöfnum er ekki mín sterkasta hlið), hefur fólkið virkilega trú á því að æðri vera muni hjálpa þessari litlu hræddu veru sem maðurinn er í stórum heimi, sem er þó svo ógnarlítill í stóru samhengi hlutanna, finnst mér það bara fallegt ef það heldur því fyrir sig.

Svo lengi sem það heldur því fyrir sig.

Mér finnst að ákvörðun hvers okkar, hver sem við erum, eigi að vera bundinn við smekk og aðstæður hvers og eins. Við eigum ekki að þurfa að boða okkar sannleika - okkar ástæður fyrir því hver við erum í, í stórfenglegri stærð tómarýmis eimanaleikans, eiga að vera einkamál hvers og eins.

Verstu syndir sem við fremjum eru lygarnar sem við segjum öðrum. Þá er ég ekki að segja um það að við komum með hvítar lygar. Ég er ekki einusinni að
tala um stórar lygar. Ég er að tala um lygar sem eru ekki lygar fyrir þeim sem trúa þeim, ég er að tala um lygar sem framkvæmdar eru á magnformi. Ég er að tala um það þegar við þröngvum skoðunum okkar á stóru samhengi hlutanna á annað fólk.

Við leyfum okkur virkilega að álykta enn og aftur í hroka okkar að segja einhverjum hvað honum eða henni á að finnast.
Hvað sé fegurð. Hvað er gott, hvað er illt. Hvað má og hvað má ekki. Við erum slíkir sjálfspyntendur að við setjum okkur jafnvel reglur sem enginn getur staðið við. Hver einasti maður hefur horft girndaraugum á annars manns konu - ekki hef ég kastað augum mínum út, syndguðum af hór.

Hvað með lygar eins og þær sem felast oft í trúboði og öðrum stjórnmálaáróðri?

Ég leyfi mér að trúa á, óska mér og þrá samfélag þar sem við getum öll unað sátt við okkar- allir hafa nóg að bíta og brenna og enginn þarf að vera reiður - en það er ekki að fara að gerast, ekki í mínum líftíma.

Verstu helvíti jarðarinnar hafa verið sköpuð af mönnum sem sögðu hræddum múgnum hverju ætti að trúa. Ég ætla að segja hvað mér finnst.

Hugsið sjálfstætt. Elskið hvert annað. Trúið á ykkur sjálf. Ekki Kúga aðra.
Allt sagt í boðhætti í mínum eigin ofurvengjulega mennska hroka.
Boðum ekki - elskum - ekki vera hrædd.

Þið þurfið enga leiðtoga, enga nema ykkur sjálf, þið þurfið bara að taka
ábyrgð - en þá fáið þið fullkomið frelsi.

Í von um bjarta framtíð.

E.V.B.M

mánudagur, febrúar 13, 2006


Valentino



Ég veit að Valentínusarhátíðin er mestmegnis tilbúin Amerísk útgáfa af Lupercaliu. En ég ákvað að vera smá væminn og rómó þetta árið. Ákvað að birta hérna stórt Valentínusakort á sænsku, útaf því að þetta er svo sætt, overly dramatískt lag.

Utan dina andatag


Kent
Jag vet att du sover
känner värmen från din hud
bara lukten gör mej svag
men jag vågar inte väcka dej nu

Jag skulle ge dej
allting du pekar på
men bara när du inte hör
vågar jag säga så

Jag kan inte ens gå
utan din luft i mina lungor
jag kan inte ens stå
när du inte ser på
och genomskinlig grå
blir jag
utan dina andetag

Min klocka har stannat
under dina ögonlock
fladdrar drömmarna förbi
inuti är du fjäderlätt och vit

Och utan ett ljud
mitt hjärta i din hand
har jag tappat bort mitt språk
det fastnar i ditt hår

Jag kan inte ens gå
utan din luft i mina lungor
jag kan inte ens stå
när du inte ser på
och färglös som en tår
blir jag
utan dina andetag

Jag kan inte ens gå
utan din luft i mina lungor
jag kan inte ens stå
om du inte ser på
och genomskinlig grå
vad vore jag
utan dina andetag

Vad vore jag
utan dina andetag



By the way... ef þið eruð með Myspace, megið þið gerast vinir Coburn

Surprize!


Skondið, ég var bara að reyna eitthvað útí loftið.. en eins og einhver sagði
Birds of a Feather...

You scored as Loki.

Bragi

100%

Loki

100%

Freyr

70%

Thor

70%

Balder

60%

Hel

60%

Odin

60%

Tyr

50%

Skadi

50%

Freya

50%

Heimdall

40%

Sif

20%

Frigg

20%

Njord

10%

Which Norse God or Goddess are you most like?
created with QuizFarm.com

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Stubby



Já mér var tekið með vigtum (ekki viktum)og mér tjáð að ég líti hamingjusamlega út (kominn með bumbu) þegar ég gekk í Dónabúðina áðan.
Ingvar GTI sagði mig augljóslega vera með meira en 100.000 kr á mánuði - sem ég reyndar er.. þó rétt varla. Ég held samt að það sé ekki því að þakka að ég er með þessi *gríðarlegu* laun sem ég hef bætt á mig. Öðru nær.
Við sem erum með lág laun í þessu þjóðfélagi, erum einhleyp og búum ein þurfum aðeins hærri tekjur en þetta. Það nennir enginn að elda ofan í einn, það er peningasóun. Góður og hollur matur kostar meira en svo að menn geti leyft sér að borða slíkt á hverjum degi.
Þeir sem hafa lág laun hafa líka minni tíma til þess að stunda líkamsrækt, og oft er fólk í störfum þar sem lítil hreyfing fer fram. Ég sit við tölvu alla daga. Ekki mikil hreyfing í því.

Gæti verið að lág laun stuðli að vanheilsu starfsfólks um land allt?
Gæti verið að á meðan fólk lifir af launum sem varla eru mannsæmandi sé það að stuðla að frekari vanheilsu sinni? Gæti það verið að þessi stefna - störf verða aðallega innandyra, lág laun, skyndibitar ódýrasta lausnin - muni leiða til þess að Íslendingar verða jafn feitir og Bandaríkjamenn?

Stuðlum að aukinni hollustu, hækkum laun!

sunnudagur, febrúar 05, 2006

Of mikið



Í dag líður mér ekki vel.
Kannski eðlilegt þar sem ég innbyrgði slatta af öli í gærkveldi, nema hvað að þetta er aðeins djúpstæðara en það.

Mér líður eins og ég sé veikur - ekki bara líkamlega, það er eitthvað sem ég er vanur, ég er eitthvað aumur í dag, á erfitt með fólk og þá sérstaklega sjálfan mig.

Afhverju þarf allt að vera svona flókið? Hversvegna getum við ekki bara verið og sleppt öllum málalenginum? Það er frekar sárt að átta sig á því hversu auðvelt þetta gæti allt verið, en einhvernvegin kemur mannlegt eðli í veg fyrir að einföldustu hlutir haldist einfaldir.

Ég held ég verði bara að vera góður, hegða mér. Ég vil ekki missa fólk frá mér, en ég er bara eitthvað svo fucking erfiður í umgengni núna að ég veit ekki hvað skal gera.
Mig langar ekki að særa neinn, en ég virðist vera kaldur og lokaður þegar tilfinningar eru ræddar - þær eru þarna, ég er ekki innandauður, ég er ekki sálarlaus, ég á bara stundum svolítið erfitt með mig.

Umfram allt held ég að ég verði að opna mig meira - leifa einhverri hamingju að koma með allri reiðinni og biturðinni. Verst að heimurinn býður bara ekki uppá jafn mikla hamingju og hann gerir biturð og reiði. Ef mannfólkið væri betra hvert við annað, ef hlutirnir væru á betri máta - ef ef ef.

Ég er samt á uppleið og ætla ekki að láta þennan öldudal stoppa mig í að stefna hærra en nokkur áður.

Breytir því ekki að þetta verða kannski erfiðir dagar.

Burned out



I just cant seem to hold my own weight anymore
This candescent existance pulling me down
I am dim where once I was ablaze before
Nothing stays the same the whole year round.

Something tells me all things are over
as everything implodes
Im no longer a young supernova
I fell as though I rather might go

And fade out and fade away,
theres nothing here that keeps me burning
Feel so burned out, after all these burdens
I crawl into myself, theres nothing left for yearning.

fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Klukk



hún Beta hans Zatans var að klukka mig.


4 störf sem ég hef unnið við um ævina:


- Plastsmiður
- Símaþræll
- Barþjónn
- Blikksmiður

4 Bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:


- Dr Strangelove
- Boondock Saints
- Terkel i Knibe
- the Life of Brian

4 staðir sem ég hef búið á:


- Grindavík (4 stöðum þar)
- Kópavogi (4 stöðum þar)
- Álftanesi (1 stað þar)
- Reykjavík (4 stöðum þar)

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:


- Threshold
- Family Guy
- Heimildarþættir úr smiðju BBC
- Invader ZIM!!

4 Staðir sem ég hef heimsótt í fríum:


- Skandinavía
- Tékkland
- Austurland
- Ásbyrgi

4 Síður sem ég skoða daglega (Fyrir utan blogg):


- WulffMorgenthaler
- Private.is<- er aktívur á spjallinu þar - deita ekki
- Wikipedia
- Baggalútur

4 matarkyns sem ég held uppá:


- Sterkur Mexískóskur
- Indverskur
- Túnfiskur og Kjúklingur
- allt sem mamma gerir :-)

4 bækur sem ég les oft:


- Discworld bækur Terrys Pratchett
- Snorra Edda e. Snorra Sturluson
- Góði Dátinn Svejk e. Jaroslav Hacek
- Handan góðs og ills e. Friedrich Nietszche

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:


- Á Lanzarote í dekri
- Í rúminu með Angelinu Jolie
- Í Suðaustur-Evrópu í húsi sem ég hef hannað til byggingar þar
- Í Amsterdam

4 Bloggarar sem ég klukka:


- GTI
- Þóra Marteins
- Eyvindur Karlsson
- Razta Bongo - alias Hjalti litli.

miðvikudagur, febrúar 01, 2006

????-> sverðmótað nafn guðs -Ellah

666



V – 5
I – 1
C – 100
A
R
I – 1
V – 5
S

F
I – 1
L – 50
I – 1
I – 1

D – 500
E
I – 1

ERGO – 666

ÓTTIST EIGI


VICARIUS FILII DEI
Það er of seint hvort eð er.

þetta var skrifað fyrir þá sem finnst bloggið mitt alltof nöldurgjarnt