Síolta Teine
Baine na mo is an gamnasunnudagur, desember 11, 2005
Bezt í heimi
Heimsmeistarakeppni í fríðleik
Já.
Á laugardaginn var Unnur okkar Birna valin best í heimi í því að vera sæt.
Gott og blessað.
Erum við ekki alveg orðin nógu þróuð tegund til þess að vera ekki að standa í svona kjaftæðiskeppnum sem ganga útá það að yfirborðsfegurð sé æðsta takmark mannkynsins?
Þegar útlit og líkamlegt atgerfi er orðið aðalatriðið í lífinu þá held ég að það sé kominn tími til þess að við pökkum saman tjaldinu og göngum aðeins afturábak í siðmenningarútilegunni, við erum greinilega á vitlausum stað og hefðum átt að beygja fyrir þónokkru síðan. Furðar fólk sig virkilega á því að sjálfsvitund og sjálfsmynd fólks hefur sjaldan eða aldrei verið lægri þrátt fyrir að við höfum Oprah og dömubindi með vængjum?
Heimurinn, sem við virðust vilja gera að mjúkum klút með lavenderlykt (sem er sér hönnuð af einhverjum Tommy Pullmyfinger) er því miður ekki bómullarbolti og það er ekki nóg að vera bara sætur til að lifa af.
Viljum við heim sem er fullur af litlum Derek Zoolander týpum? Nei, svo sannarlega ekki, allavega ekki ég.
Líkamlegt atgerfi er að sjálfsögðu mikilvægt, en þósvo að það sé rosalega gaman að fólk sem stundar íþróttir fái athygli fyrir að vera spriklandi eins og hálfvitar með bolta, þá er sætleiki ekki íþrótt, sætleiki/fegurð er ekki mælanleg í 14-2, sætleiki er ekki 7,21 metra stökk eða 100 metra hlaup. Fegurð annara einstaklinga er huglægt mat hvers og eins, viðbrögð við aðlaðandi litum eða hvað það nú er, fegurð er ekki mælanleg. Þetta er eins og með tónlist, hvernig í fjandanum fer fólk að því að velja hver er besti söngvarinn? Jú með vinsældakosningum og fegurðakeppnir eru ekkert annað.
Ég held að það sé nóg af einelti í mannlegu samfélagi svo við förum ekki að nudda salti í sár þeirra sem ekki fæðast með fullkomna húð eða hár eða eru ekki með fullkomið útlit að benda þeim á að þau verði aldrei vinsæl ef þau eru ekki sæt og fín... Nei, er ekki best að við höldum áfram að hygla yfirborðshyggjunni og togum í hár og húfur þeirra sem ekki eru sætastir á skólalóðinni, því eftir allt er alveg rosalega mikilvægt að vera sætur.
BTW. ég vil ekki heyra einu orði minnst á það að ég sé bara bitur, afbrýðissamur og með minnimáttarkennd. Ég geri mér grein fyrir því að ég er bitur, það er hollt, ég er ekki afbrýðissamur, mig langar ekki að verða Miss World eða bara SwissMiss yfir höfuð og ég hef ekki fucking vott af minnimáttarkennd, ég er eftir allt fucking gorgeous. Semsagt, bara málefnaleg komment takk.
sagði Jimy Maack


