miðvikudagur, október 26, 2005

Afmæli


vill einhver útskýra hvernig þessi:

varð svona :

mánudagur, október 24, 2005

Kitl


Hún Þóra mín kitlaði/klukkaði mig þannig að ég verð að birta einhver 5 atriði um mig...

1) Ég hef rosalega gaman af því að príla.. ég veit ekki afhverju, en ég hef alltaf þurft að vera uppá húsþökum, hangandi útaf björgum eða að sveifla mér í trjám síðan ég man eftir mér.

2) Ég er með árátturaskanir á stundum, ég átti mjög erfitt með mig þegar ég var í FÍH þurfti ég að berjast við sjálfan mig til þess að raða ekki burstum í burstamottu fyrir utan sal FÍH þar sem burstunum var ekki raðað symmetrískt.

3) Mér líður illa ef ég sef með höfuðið í Austurátt, ég er ekki að grínast.
Ég sef helst með höfuðið í Vestur eða Suður.

4) Eins klisjulega og það hljómar þá er ég berdreyminn og á það til að sjá atburði fyrir. Það er geðveikt leiðinlegt og ekkert líkt því sem maður sér í bíómyndum. Yfirleitt þegar ég fæ martraðir eru þær sérstaklega leiðinlegar og óspennandi.

5) Ég fæ hálfvitahroll í hvert skipti sem ég hugsa um eitthvað sem ég var að gera, eða sagði eða svo framvegis, hausinn á mér er ekki alltaf í takt við það sem ég vildi hafa, ég sé samt sjaldnast eftir nokkru, bara þegar ég brýt reglurnar tvær sem ég lifi eftir (= a) ekki níðast á öðrum á neinn þann máta sem komist verður hjá. b) berðu virðingu fyrir sjálfum þér...)


Ég ætla að klukka Guðjón Guðjón Guðjón Guðjón Gudjohns Guðjónsson Z8n

Haust



Jú. Það eru víst komin Októberlok.
Sem þýðir að.

Pablo Picasso á afmæli.
Ég á afmæli.
Geiri stönt á afmæli.
Ingvar Valgeirs á afmæli..

fullt af fólki á afmæli.

Ég óska þeim sem eiga afmæli í kringum afmælisdaginn minn (eða á hann) til haf-mykju og þeim sem eiga ekki afmæli á þessum tíma, ekki.

Ég ætla að vera rosalega upptekinn af sjálfum mér á miðvikudaginn og þeir sem vita hversu sjálfhverfur ég get verið.. ættu að átta sig á því að ég nenni ekki að standa í neinum samræðum þá sem ekki fjalla um miiiiig!

talandi um mig..

ég er að spá í að leggja niður störf sjálfur klukkan 11:32 (að morgni) á þann 26/10 til þess að fagna 24 ára Afmælis Einarsvakningarinnar miklu á fæðingardeildinni og útaf því að það eru 24 ár frá því að ég kom út úr mömmu minni, ætla ég að halda niður á Ingólfstorg og þruma út ræðum... aðallega þó til að minna á að til eru hærra launaðir menn en ég í ýmsustu störfum, og að menn eru líka konur, í það minnsta vill vinnufélagi minn einn halda því fram að hann sé líka slík.

Ég er nú ekki alveg það kaldur að halda því fram, en aftur á móti vil ég vekja athygli á því að

það sökkar að vera gagnkynhneigður hvítur karl!


akkuru? jú.. því sama hvernig litið er á það þá ráða þeir heiminum og ég, einn af þessum láglauna lúserum sem ekki ráða heiminum get ekkert fengið neitt minnihlutakredit nema kannski það að ég er rauðhærður, græneygur og með mjólkurofnæmi...

Konur.. sem eru rétt um helmingur mannkyns eru jú minnihlutahópur, asíubúar, þar á meðal kínverjar og indverjar, sem hvor þjóðin telur um 1.000.000.000 manna eru minnihlutahópur á meðan ég er það ekki, þó ég sé rauðhaus með græn augu, kuldaexem og mjólkurofnæmi, áhuga á heimspeki og löngum göngum eftir ströndinni (!) sem að mér telst að séu kannski 100.000 stykki af í heiminum, og svo ekki sé talað um íslensk þannig eintök, sem eru færri, er ekki minnihlutahópur, þar sem ég er ekki nógu kúgaður...


~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^
í öðrum fréttum.

Drepið þetta fólk

föstudagur, október 14, 2005

Laufin falla


eða: Five Leaves Left


ég sit hérna í vinnunni, hálflasinn, of stoltur til þess að játa að það ami eitthvað að mér og mér leiðist.

mér líður betur en í upphafi vikunar.
kannski vegna þess að ég ætla ekki að láta utanaðkomandi aðstæður trufla huga minn og sál. kannski vegna þess að ég er örlítið hvíldari, eftir að ég tók miðvikudagskvöldið snemma og hoppaði snemma i bólið.

Laufin falla stanslaust fyrir utan gluggann. Hálfnaktir stofnarnir standa sem minnisvarðar sumars, sumars sem aldrei kom.
vá hvað þetta var dramatísk setning
það er að mörgu að hyggja þegar vetur nálgast, einhvernvegin finn ég mig ekki knúinn til þess að gera neitt.
Ég held ég hreinlega bara nenni því ekki.

River Man


Drake

Betty came by on her way
Said she had a word to say
About things today
And fallen leaves.

Said she hadn't heard the news
Hadn't had the time to choose
A way to lose
But she believes.

Going to see the river man
Going to tell him all i can
About the plan
For lilac time.

If he tells me all he knows
About the way his river flows
And all night shows
In summertime.

Betty said she prayed today
For the sky to blow away
Or maybe stay
She wasn't sure.

For when she thought of summer rain
Calling for her mind again
She lost the pain
And stayed for more.

Going to see the river man
Going to tell him all i can
About the ban
On feeling free.

If he tells me all he knows
About the way his river flows
I don't suppose
It's meant for me.

Oh, how they come and go
Oh, how they come and go

þriðjudagur, október 11, 2005

Non, Je ne Regrette rien 42†


eða: Ranghugmyndir


Já, í dag eru 42 ár frá því að spörfuglinn litli, Édith Piaf (1915-1963) andaðist, sama dag og vinur hennar Jean Cocteau (1889-1963).
magnað alveg.

Ég er alveg að fara yfirum sjálfur, Blóm og kransar afþakkaðir, í mér skiptast á hugrekki og hugleysi, rétt og rangt, ranghugmyndir og réttsýni, illska og gæska, ást og fæð og sama hversu vel ég reyni að halda jafnvægi, þá verða alltaf sveiflur til hægri og vinstri, upp og niður og í allar mögulegar áttir, ég reyni mitt besta til þess að virkja þetta, en fólk verður að gefa mér rými, ég verð að fá tíma fyrir sjálfan mig, ég er alveg að verða geðveikur á stanslausum heimsóknum fólks sem koma bara í sama tilgangi eins og góðveðursvinir.. ..ekki svo að ég vilji vera einn alltaf, ég vil bara fá næði til þess að vera einn og semja, svo ég tali nú ekki um að mig vantar næði til þess að hvíla mig.

Mig vantar útrás, ég er orðinn dauðleiður á því að ég þurfi að bíða eftir þessu eða hinu til þess að geta gert það sem ég þarf að gera til þess að halda geðheilsunni.

Ég þarf að fara að spila bráðum, eins fljótt og auðið er.
Goddamnitt.


Je ne Regrette



Non, Rien De Rien, Non, Je Ne Regrette Rien
Ni Le Bien Qu`on M`a Fait, Ni Le Mal
Tout Ca M`est Bien Egal
Non, Rien De Rien, Non, Je Ne Regrette Rien
C`est Paye, Balaye, Oublie, Je Me Fous Du Passe


Avec Mes Souvenirs J`ai Allume Le Feu
Mes Shagrins, Mes Plaisirs,
Je N`ai Plus Besoin D`eux
Balaye Les Amours Avec Leurs Tremolos
Balaye Pour Toujours
Je Reparas A Zero


Non, Rien De Rien, Non, Je Ne Regrette Rien
Ni Le Bien Qu`on M`a Fait, Ni Le Mal
Tout Ca M`est Bien Egal
Non, Rien De Rien, Non, Je Ne Regrette Rien
Car Ma Vie, Car Me Joies
Aujourd`hui Ca Commence Avec Toi

föstudagur, október 07, 2005

Farvel Bast


Bast litla er farin aftur til mömmu sinnar, ég gat ekki haft hana lengur, enda nógu erfitt að reyna að halda heimili með einn kött í svo lítilli íbúð.

Í sumar er ég búinn að vera að semja mjög mikið og núna nýlega lauk ég texta við lag sem Haraldur nokkur Davíðsson úr Mogadon mun væntanlega flytja með Coburn.

Cats are Nice



It's Just a fact, Life may not seem all its made out for.
People Die, you carry on regardless to the pain.
You'll get hurt, and theres nothing you can do to stop it
As it is, you can only try and find your way

Alone, and all you've got ist just memories,
and fear, and grief,
still you'll be standing through the maelstrom.

When life seems empty, all seems banal,
and all that you remember, tells you nothing more;
But Cats are Nice
^~~^~^

Dont Despair, You will find that things will all sort out-
for the best, cause panic is the toil of Satan's work.
Please smile. Well that's the way you look your best.
Even tears, shouldnt break you when you're standing all

-Alone, theres more to life than memories,
and grief, and fear,
and you shall stand through gale and maelstrom.

When life seems empty, all seems banal,
and all that you remember, tells you nothing more;
But Cats are Nice.
~^~^~^~^~^

Mjög skemmtilegt og smekklegt lag. Eyvindi Karlssyni er bannað að tjá sig um þetta,
kettir eru víst ekki næs fyrir honum, hann er bara hrifinn af nagdýrum og hérum, sem ég er reyndar líka, frábær með BBQ sósu.
^~^~^~^

Mig dreymdi allsvakalega í nótt. Stúlka úr fortíð minni sótti all svakalega á mig, og í fyrsta skipti, ever, öskraði ég á hana, reyndar í svefni, en ég náði að pústa út óuppgerðri fortíð, án þess að láta hana vita.. nema að hana hafi dreymt sama draum, þá má hún alveg láta mig vita, þetta var frekar intense.
~^~^~^~

Anyhew.
Samdi Ballöðu um daginn, svolítið dramatíska, en.. fuckitt, eins og ég sagði í áðurnefndum draumi, já ég er tilfinninganæmur, já ég er dramadrottning og á það til að setja upp puppyeyes.. sem láta mig fyrirlíta mig á stundum, en ég er bara eins og ég er.

Months



Would you mind it terribly,
if I were to take my leave,
of abscence from this world?
Its just that I am too tired,
to wait another four months dry,
forgotten by your love..

It seems to me, that everytime
you find the time to spend some on me
you break me down and burst my dreams
and I dont know if I can wait
and I dont know if I can wait..

Would it raise your views on me,
if I stood here heroically,
while you turn the world?
Im just to tired to pray,
that maybe next time you would stay,
and maybe state your word.

It seems to me, that everytime
you find the time to spend some on me
you break me down and burst my dreams
and I dont know if I can wait
and I dont know if I can wait..

Would you miss me if I're gone,
would you notice it at all
just like every other forgotten song
but four months take a while to fall.
^~^~^~^~^


eitthvað í þá áttina

þriðjudagur, október 04, 2005

Hestur segja Ho! -Kusa segja MÖÖK! -Kindin segja Meh!

KISI SEGJA #@%$#!!!



Já. Rosalega gaman.

Einhver kom til mín klukkan 03:40 í gærnótt (semsagt að morgni þess 3/10) og dinglaði bjöllunni.
Ég nennti enganvegin til dyra, enda er ég latur og hef engan áhuga á því að láta trufla svefn minn utan þess þegar neyð stafar að.

Ég lagði semsagt höfuð mitt aftur til hvílu þartil ég heyrði háværasta fret í heimi og upp gaus skítafýla ein mikil.
Ég bjóst við því að einhver fáviti hefði skitið inn um gluggan hjá mér til þess að hefna fyrir það að ég kom ekki til dyra...
Ég skal ekki segja, en ég stóð upp og svipaðist um, og þá hafði ást mín og yndi, hún Yoda litla hraunað all hressilega á gólfið, væntanlega vegna einhvers sem hún hefur étið eða einhverja veikinda eða eitthvað.. Ég lét ekki hennar eftir liggja heldur þreif það og fór rakleitt með hana til Dagfinns Vetinari (fjarskyldur Lord. Havelock Vetinari í Ankh Morpork) á Skólavörðustígnum, þar sem hún dvaldi í gær.

Hefði einhver ekki verið með fávitaskap og dinglað hjá mér, hefði ég líkast til drepist úr kattaskítsfílu skömmu síðar, en við björguðum því.
Hinsvegar liggur mér á hjarta að fólk komi ekki og dingli þegar ég er augljóslega sofandi ef ég er heima.
Það sést alveg ef það er ljós, annars er ég ekki vakandi.


Yoda er öll miklu skárri og komin á meltingarlyf.

Bast (sem heitir Sóley þegar hún er ekki hjá mér) lét sér fátt um finnast.