sunnudagur, júlí 31, 2005

Only Women Bleed


(A. Cooper/D. Wagner)

Man's got his woman to take his seed
He's got the power - oh
She's got the need
She spends her life through pleasing up her man
She feeds him dinner or anything she can

She cries alone at night too often
He smokes and drinks and don't come home at all
Only women bleed

Man makes your hair gray
He's your life's mistake
All you're really lookin' for is an even break

He lies right at you
You know you hate this game
He slaps you once in a while and you live and love in pain

She cries alone at night too often
He smokes and drinks and don't come home at all
Only women bleed

Black eyes all of the time
Don't spend a dime
Clean up this grime
And you there down on your knees begging me please come
Watch me bleed

Only women bleed

Þunnur



vá þetta er alveg svakalegt.. ég hef ekki verið svona þunnur í mööörg ár.
það er alltílagi..
verð þunnur aftur á morgun.
hehe

væri alveg til í að fá feedback.. ef einhver nennir að hanga með mér edrú næstu 3 vikurnar.. edrú= ekki drukkinn... hvað segiði?

föstudagur, júlí 29, 2005

TeleRevenge


Jájájá..

Ég er kominn með ALGERT FUCKING ÓGEÐ á fólki sem talar niður til mín í síma.
Hvað er að Íslensku þjóðinni? Kann fólk ekki lágmarks kurteisi? Kynna sig, nefna erindi og hvern það vill tala við, þá get ég bjargað öllu! (svo lengi sem apinn sem þú vilt tala við svarar símanum)

Ég er með skjá á símanum mínum og ég sé númer nánast allra sem hringja í mig.. og sá næsti til þess að tala niður til mín og vera dónalegur fær heimsókn og þá skal sú manneskja kynnast því hvernig það er að vera meðhöndlaður eins og dyramotta!!! ó já!! sá hinn sami skal kynnast því að vera fucking fótbolti!!!

fimmtudagur, júlí 28, 2005

DV og önnur hrapaleg mistök



í gær var ég að lesa blaðið.. varð pirraður á grein svo ég sendi inn bréf til blaðsins.. án þess að átta mig (sökum anna, ekki þó Annþórs - vinar DV) á því að ég þyrfti að hreinskrifa... sem ég gerði of seint..

og hér birtist því greinin...

Nazistalógó


Ég rakst á grein í dálknum "Ha?" undanfarinn þriðjudag, þann 26/7. Þar var ýjað að því að stílfært einkennismerki Björgúlfs Thors sé nazískt merki og líti því talsvert illa út.


Ég er sjálfur heiðinn maður en enginn kynþáttahatari frekar en meðalmaðurinn, og reyndar öðru nær, en ef litið er til einkennismerkis Ásatrúarfélags Íslands þá sést glögglega að þar er á ferð Sólkross, ekki ósvipaður þeim sem White Pride samtökin hafa gert að sínu, ekki heldur ósvipað því sem merki Björgúlfs er, en stendur fyrir annan hlut.

Ef litið er í gegnum merkjafræði mannkyns má glögglega sjá að mörg tákn hafa fylgt okkar tegund í árþúsundir og má þar telja Hakakrossinn, Sólkrossinn, krossa og hringi, en þessi einföldu form finnast í nær öllum menningarheimum og eru einatt talin verndartákn, nema hvar nazistar stigu niður fæti, því þeir báru með sér ofbeldi og ófrið, en ekki sól og hlýju eins og þessi tákn merkja, eða öllu heldur merktu fyrir fólki áður en áróðursmeistarar þriðja ríkisins tóku þau upp á arma sér og fóru í heljarinnar ófrægingarför um heiminn, sem þekkt er orðið, en þeir sóttu einatt mikið í merkjafræði víkingarúna, og hafa því heiðnir menn og norrænir oft ekki farið varhluta þess, en þess má einnig geta, að sólkrossinn sem merki þetta er byggt á er einnig álitið merki Írlands af þeim sjálfum, og táknar þessi kross þar hin fjögur héruð Írlands og "Mide" ríki Tuatha de Danaan, barna Dönu, álfa og huldufólks.

Eins og ég drap á hér áður hafa ekki eingöngu nazistar hafa þó notað hakakrossinn, hið forna sólartákn, heldur þekkist þetta tákn,ásamt þeim sem ég taldi upp, í öllum heimsálfum. Ekki var nokkurntíman minnst á Hakakrossinn, eldra tákn Eimskipafélagsins, sem nazistatákn, enda væri það frásinna, rétt eins og þá að saka dýrkendur Ganesha á Indlandi um nazisma, þó svo að þeir noti Hakakrossinn mikið sem tákn, enda hefur fjöldi samtaka og fólks í gegnum tíðina notað þetta verndartákn sem tákn sólar, geisla hennar og þess að mótstöðu (skýjum) sé rutt í burtu (sbr. Ganesha, sem er "sá sem fjarlægir hindranir").


Ef við frónverjar þekkjum ekki okkar eigin menningararf og hvernig honum hefur verið stolið af misvönduðum sálum, mun enginn þekkja það í framtíðinni og því verður okkar menning glötuð í höndum barna okkar, sem aldrei munu frædd um arfinn. Ef við látum okkur halda það að tákn, sbr Sólkross, Þórshamar, Hakakross og rúnirnar séu sértákn misvitra einstaklinga sem fannst þetta flott hönnun fyrir um það bil 80-90 árum síðan, þá getum við allt eins farið að undirbúa það að Gyðingar og andfasistar allra landa hætti að verzla við Ísland því Íslendingar borða SS-pulsur.

mánudagur, júlí 25, 2005

Sökkvandi


J. Bundrick
Mary, grab the baby, the river's rising
Muddy water taking back the land
The old-frame house, she can't take-a one more beating
Ain't no use to stay and make a stand
Well the morning light shows water in the valley
Daddy's grave just went below the line
Things to say, you just can't take em with ya
This flood will swallow all you've left behind

Won't be back to start all over
Cause what I felt before is gone


Mary, take the child, the river's rising
Muddy water taking back my home
The road is gone, there's just one way to leave here
Turn my back on what I've left below
Shifting land, broken farms around me
Muddy water's changing all I know
It's hard to say just what I'm losing
Ain't never felt so all alone
Mary, take the child, the river's rising
Muddy water taking back my home
Won't be back to start all over
Cause what I felt before is gone


Mary, take the child, the river's rising
Muddy water's changing all I know
Muddy water's changing all I know
Lord, this muddy water is taking back my home

já..


ég var svolítið niðurdreginn þessa helgi..
væntanlega sökum drykkju og leiðinda og bara rugls..

ég held ég taki mér pásu eftir Verzló (þá helgina, ekkert viðriðinn skólann.
þetta gengur ekki til lengdar..

föstudagur, júlí 22, 2005

Halló



Ég hef ákveðið að koma hreint fram, sem einstaklingur í góðu jafnvægi og segja frá mínum helsta Akkilesarhæl, ójafnvægi mínu.

Ég heiti Einar, ég er Bipolar.
Fyrir ykkur sem ekki vitið hvað Bipolar-röskun er það nýtt nafn yfir það sem áður var kallað "Manískt-Þunglyndi".
Ég hef alla tíð borið viss einkenni þessa sjúkdóms, en geðsveiflurnar hafa jafnan verið ósymmetrískar og mislangar, en þó mest í swing takti.. einhvernvegin svona..

~~^^~~~^~^~~^~~~^^^~~~~^~^^~~~
..

Pési frændi Yfirsáli.. (sem er hlekkur á hérna ykkur á vinstri hönd,) segir reyndar að ég sé sennilegast Bipolar II / Hipomanic sökum þess að ég hef ágætis stjórn á þessu og er að passa mig.
..

aftur á móti þá vil ég að þið lesendur mínir, vinir mínir vitið af þessu, stundum þarf ekki mikið til þess að ýta mér úr jafnvægi og þá þarf ég bara að fá að pústa út eða hvíla mig, ég þarf þá bara að hafa tímann til þess að gera það sem ég þarf að gera til þess að vera.. sæmilega heilbrigður..

Ég áttaði mig á því að ekki allir vita þetta.. þó einhverjir geri það.. í gærkveldi þegar manneskja spurði mig.. "ertu eitthvað 'Dán'?" ég brosti og hristi höfuðið.. en það er oft frekar augljóst.. en.. ég býst við því að ég hafi verið frekar dán undanfarið.. stundum ýta minnstu sandkorn klettum fram af björgum og jú.. ég er búnað vea í lítilli sveiflu undanfarið.. það er væntanlega sökum þess að eins og fíflið hann Newton sagði.. þá verður það sem fer upp að koma niður aftur (nema ef þú ert gerfihnöttur eða Cheech Marin) og ég er búnað eiga nokkrar frekar góðar stundir undanfarið, þannig að smá niðurtúr er eðlilegur.

Það leiðinlega við þetta mál alltsaman, er týzkan við það að vera þunglyndur, því það er jú svo cool að vera Brooding snillingur, að vera fölnaða laufið, að vera blómið sem eitt sinn var... fólk er ekkert að gera sér grein fyrir því að það gæti allt eins öfundað Biafrabörn af því þau eru svo grönn.


Ég er einn af þeim heppnu, engu að síður þar sem ég er Bip. II en ekki Bip. I þar sem ég get lifað án þess að vera á einhverjum lyfjum, enda vil ég það ekki, þar sem ég virkja sjávarföllin innra með mér til listsköpunar.

hinsvegar vil ég biðja ykkur vini mína að gera mér smá greiða.
ef ég er að verða geðveikur, sýnið mér pínu umburðarlyndi og ef ég lýt út fyrir að vera dapur, megið þið alveg brosa og gefa mér knús :) það sandkornið sem hrindir manni af björgum fram, getur líka verið sandkornið sem hindrar fallið :)

lifið heil

fimmtudagur, júlí 21, 2005

"IF"


Waters
If I were a swan, I'd be gone.
If I were a train, I'd be late.
And if I were a good man, I'd talk with you more often than I do.
If I were to sleep, I could dream.
If I were afraid, I could hide.
If I go insane, please don't put your wires in my brain.
If I were the moon, I'd be cool.
If I were a book, I would bend.
If I were a good man, I'd understand the spaces between friends.
If I were alone, I would cry.
And if I were with you, I'd be home and dry.
And if I go insane, will you still let me join in with the game?
If I were a swan, I'd be gone.
If I were a train, I'd be late again.
If I were a good man, I'd talk to you more often than I do

miðvikudagur, júlí 20, 2005

the Barrett Cat



ákvað að gera Scizophrenískan kött í psychadelísku móki...
gaman

þriðjudagur, júlí 19, 2005

Buffoon


var að spékúlera.
ég er líkast til í mínu besta jafnvægi núna í mörg ár, ég er ekki að drepast úr þunglyndi, né held ég að ég sé gjöf guðanna til mannkyns, og það er nú gott.

Ég er farinn að eyða frítíma mínum við sjónvarpið í meira uppbyggilegt dót..

eins og að gera myndir eins og þessa...


svo er barasta allt þögult úr Norðurmýrinni, nema hvað einna helst að ég er að vinna að heimsyfirráðum enn á ný...

Bipolar-disorder thy name is Pussy-Willow

Dark Globe


S.Barrett
Oh where are you now
pussy willow that smiled on this leaf?
When I was alone you promised the stone from your heart
my head kissed the ground
I was half the way down, treading the sand
please, please, lift a hand
I'm only a person whose armbands beat
on his hands, hang tall
won't you miss me?
Wouldn't you miss me at all?

The poppy birds way
swing twigs coffee brands around
brandish her wand with a feathery tongue
my head kissed the ground
I was half the way down, treading the sand
please, please, please lift the hand
I'm only a person with Eskimo chain
I tattooed my brain all the way...
Won't you miss me?
Wouldn't you miss me at all?

mánudagur, júlí 18, 2005

One


tja...
það hlaut að koma að því.
Ég er einhleypur aftur..

Ekki það að það séu nokkur óþægindi í þessu, en þó jú, ég er soddan dramadrottning...
En þetta fjaraði reyndar mjög þægilega út, en ég er dramadrottning, og skammast mín ekkert fyrir það, enda það líka bara sönnun þess að ég hef djúpar og heilstæðar tilfinningar, ólíkt frosnum hjörtum margs samferðafólks okkar sem göngum þessa jörð.

þannig að ég ætla að pústa út smá væl hérna.

Let Love In


Nick Cave
Despair and Deception, Love's ugly little twins
Came a-knocking on my door, I let them in
Darling, you're the punishment for all of my former sins
I let love in
I let love in
The door it opened just a crack, but Love was shrewed and bold
My life flashed before my eyes, it was a horror to behold
A life-sentence sweeping confetti from the floor of a concrete hole
I let love in
I let love in
I let love in
I let love in
Well I've been bound and gagged and I've been terrorized
And I've been castrated and I've been lobotomized
But never has my tormenter come in such a cunning disguise
I let love in
I let love in
I let love in
I let love in
O Lord, tell me what I done
Please don't leave me here alone
Where are my friends?
My friends are gone
O Lord, tell me what I done
Please don't leave me here alone
Where are my friends?
My friends are gone
I let love in
I let love in
So if you're sitting all alone and hear a-knocking at you door
and the air is full of promises, well buddy, you've been warned
Far worse to be Love's lover than the lover that Love has scorned
I let love in
I let love in
I let love in
I let love in
I let love in
I let love in
I let love in
I let love in



jæja


Búnað vera Dramatík.

Við strákarnir i bandinu (líkamsbossagleði) Coburn fórum í stúðíó í gær.

Ég syng eins og köttur í ostaskera, en það er alltílagi ég er geggjað góður gítarleikari....

getið nálgast lögin hérna og á http://coburn.tk hope of prey

föstudagur, júlí 15, 2005

Happy Happy Joy Joy.


Vá hvað það er mergjað gaman eitthvað að vera ég þessa dagana.. heimurinn gæti verið að farast, en ég væri engu að síður bara fucking happy..

Ég held að heimurinn megi barasta vara sig!!!!

woo hoo!!!

miðvikudagur, júlí 13, 2005

föstudagur, júlí 08, 2005

Rain Song


Svoooo fallegt lag..

It is the springtime of my loving - the second season I am to know
You are the sunlight in my growing - so little warmth I've felt before.
It isn't hard to feel me glowing - I watched the fire that grew so low.

It is the summer of my smiles - flee from me Keepers of the Gloom.
Speak to me only with your eyes. It is to you I give this tune.
Ain't so hard to recognize - These things are clear to all from
time to time.

Talk Talk - I've felt the coldness of my winter
I never thought it would ever go. I cursed the gloom that set upon us...
But I know that I love you so

These are the seasons of emotion and like the winds they rise and fall
This is the wonder of devotion - I see the torch we all must hold.
This is the mystery of the quotient - Upon us all a little rain must fall.

fimmtudagur, júlí 07, 2005

BOOOOOOM


Einhverjir djöfulsins Jólasveinar voru að sprengja london.
Ég er ekki frá því að það séu of mörg fífl í heiminum.. ég meina, hryðjuverk leiða aldrei til neins góðs, frekar en vinnustaðapartí og Rohypnol, Alþingismenn og úttektarseðlar í ÁTVR, ekki frekar en Adolf Hitler, George Bush, Saddam og aðrir fávitar í valdastóli... ekki sniðugt stöff...

Ég er svoooo djöfulli þreyttur..
ég veit ekki akkuru, en mér tekst aldrei að ná nægum svefni.
það er einhver andskotinn að mér örugglega.
Kannski bara það að ég hvíli mig ekki nóg, veitekki. Ég er allavega sybbinn og það er komið H-degi.

If it Feels Right


já.. WTF.. ég er búnað hafa það alveg déskoti fínt undanfarna daga með henni Elínu (stelpunni úr síðustu færlsu) og það er bara asskoti gaman.
Hef verið að hugsa um að fá mér stærri íbúð..
og þá.. þegar að því kemur verð ég djöfulli mikið að fá mér svona

gleðigamanogstöffogjákvætthugarfarogalskonarsvoleiðiskjaftæði

þriðjudagur, júlí 05, 2005

heimur bestnandi fer



jamm
ég er þónokkuð brattur þessa dagana, enda búnað liggja í yndislegri leti með fagri vinkonu minni þessa daga. yep. Im dating..

var eimmitt að spékúlera í því, þetta er svolítið furðulegt dating dæmi, yfirleitt talar fólk í Enskumælandi löndum um að "going out" þ.e. fara út. sem er eimmitt það sem við gerum minnst af. merkilegt nokk, þá fór ég lítið sem ekkert út eftir klukkan 0300 á laugardag.

Annars lýst okkur hressu fressunum bara andskoti vel á hana, enda er hún geðveikt góð við hinn loðna son minn og það er nú fyrir öllu :)
.

Í öðrum fréttum er fátt, Grafarvogsbúar eru farnir að baða líkin sín í voginum og eiturlyfjasalar eru ekki lengur óhultir á götum úti (!)(?)
.

Allavega.
Í mínum heimi er það helst að frétta að ég átti æðislega helgi þar sem við lágum á fleti og sötraðum rauðvín og bjór og nutum samvista hvers annars og höfðum það fínt.
:)


Af alvarlegri fréttum er fátt, Greta er komin af spítalanum, Friðrik Anton braggast að því að ég síðast frétti. Sem eru jú mjög góðar fréttir. Hugsa hlýtt til hans og Gretu og vona að þið hin gerið það líka..

annars er bara All quiet on the Western front..

Lag daxins er

Lets be Natural


Neil Innes


Time goes by, as we all know
Naturally
People come and people go
Naturally

Let's be natural
Ever since the world began
Let's be natural
Every woman, every man
Let's be natural
Has followed nature's plan
Let's be natural

Oh, yeah

Stars are in the sky above
Naturally
People rise and fall in love
Naturally

Let's be natural
Ever since the world began
Let's be natural
Every woman, every man
Let's be natural
Has followed nature's plan
Let's be natural
Everything is everything

Naturally
People cry, laugh, and sing
Naturally

Let's be natural
Ever since the world began
Let's be natural
Every woman, every man
Let's be natural
Has followed nature's plan
Let's be natural

föstudagur, júlí 01, 2005

Tíminn



Tíminn er lækurinn sem við líðum áfram í, og fljótum áfram til sjávar, og fátt getum við gert, nema að njóta ferðarinnar, þótt á stundum séu miklar flúðir.

Greta Ósk -besta vinkona mín og einhver yndislegasta manneskja í heimi, ól sín fyrstu börn núna á Mánudaginn. Tvíburarnir, sem fæddust á 25 voru agnarsmáir og veikbyggðir. Annar Þeirra, Ragnar, lifði aðeins rúman sólarhring, en bróðir hanns, Friðrik, er allur að braggast og ég bið ykkur, mínir kæru lesendur, sama hverrar trúar þið eruð, að biðja, hugleiða, fremja seið eða bara hugsa hlýtt og senda ást á fæðingardeildina á Landspítalanum, þar sem þau mæðgin eru stödd, og verða í einhvern tíma í viðbót.



skrítið



Ég fékk skrítið símtal núna áðan.
Kona nokkur hringdi inn í verzlanir BT og spurðist fyrir um leik. Ekkert merkilegt við það svosem, nema hvað að hún lofaði mér kossi ef ég fyndi þennan leik, ég sagði henni að því miður, þótt ég gjarnan myndi þiggja það, þá væri ég í símveri og myndi því ekki hitta hana.
Eggjandi rödd þessarar ágætu konu svaraði því að þá fengi ég bara koss í gegnum síman, sem var nú bara ágætt.
Kona þessi andaði djúpt og var með svona hálfráma, en samt skæra rödd og aðlaðandi.
Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið, en hinsvegar veit ég, að þessi kona náði einhvernvegin bæði í senn að skelfa mig, gleðja, koma mér til og koma mér til þess að finnast ég áreittur.

Þetta er það sem feminismi á að ganga útá að mér finnst, hefði þessi kona verið að biðja mig um að gera eitthvað erfitt hefði hún snúið mér sér um fingur og það, mínir kæru lesendur, er magnað.

Þessi kona, sem heitir I. fær 69 rokkstig að 66,6 stigum mögulegum.

you go girl.