I enjoy a nice pair of pants!
eða: hvernig á að lifa af leiðindi kvefpesta
Kvefpest ein hvimleið og asnaleg hefur gengið um landið undanfarið, eins og ég og svo margir aðrir höfum ekki farið varhluta af.
Ég hef, þrátt fyrir stigvaxandi geðveiki, náð að lifa af leiðindin sem fylgja því að vera lasinn heima. Mér líður hálfpartin eins og handjárnuðum útigangsfress sem í fyrsta sinn er fastur í ól. Hinsvegar er ég hérna með uppskrift af því sem þarf til þess að lifa þetta af.

Dexomet, ein flaska af. Dexomet er hóstasaft. Veldur ofskynjunum. AhhaahahAHAHAHAHa halló herra bjarndýr.
Parasetamol, eitt bréf af. Hitastillandi. Verkjalyf. Mér líður eins og ávexti. Ekki borða mig mjálgi banani.
Panodil Hot, einn kassi af. Hitastillandi. Verkjalyf. Fljótandi. Hóstasaft. Gerviávaxtamintubragð. Drekkist heitt. Líður eins og ég sé að drekka mig.
Magnyl, eitt bréf af. Verkjalyf. Ég er viss um að það eigi ekki að vera grænt þegar maður bítur í tunguna.
Íbúfen, eitt glas af. Verkjalyf. Mér líður eins og ég sé í lopapeysu kærleika.
Coca~Cola, margir lítrar af. Skynaukandi bragðsemisáhrifasvaladrykkur.
Súkkulaði, æt ást. Nauðsynlegt til þess að halda endorfínflæðinu um líkamann til að lækna mig frá sandölum.
Sandalar. Eitt par. Halda mér í jafnvagi.
Ágláp. Kvikmyndasafn Monty Pythons, the Critic þættirnir, South Park…. 110Gb af sjónvarpsefni.
Leður-hægindastóll. Brúnn. Heldur mér af gólfinu.
Teppi, bómullar. Grátt. Heldur mér af þakinu.
Áhlustun. Syd Barret, ‘Wouldn’t you miss me’ af plötunni ‘Dark Globe’ mjög gott mál, sífelld endurtekning.
Internetspjall. Halda fast í skoðanir sem hafa enga þýðingu í nútímasamfélagi.
Þægilegt buxnapar. Svart.
Sígarettur. Tveir pakkar. Til að minna á afhverju þú vilt ekki vera með hálsbólgu, þú vilt geta fengið þér sígó.
Te-Toddy-Dauða-Roddy-MacFuckingDowell!!!
Heitt Vatn, einn bolli af.
Melroses Te, eitt bréf af.
Hráhunang, ein teskeið af.
Whiskey, MacAllan, 65%vol, eitt skot af.
Sítróna, eitt dash af.
Drekkist með lyfjum, drykkjum og matvælum sem minnst er á hér að ofan, ásamt tónlist og áglápsefni. Afbragðs helgarskemmtun.
Góðar Stundir
(mig langar að gráta mér leiðist svo mikið)