þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Æji... Kódín



Já... búin að vera skrítin vika, ég lenti í bílslysi á miðvikudaginn..
ekkert svakalega stoltur, skammast mín samt ekki. búnað vera á kódeinlyfjum síðan.
rosalega gaman. Tognaður í baki!!
happy happy happy fucking JoyJoy.

er ekkert búnað gera neitt svakalega mikið af viti. En.. svona er það bara...

Má ekki drekka ofaní Kódeinið.. sem er athyglivert.. en.. gefur manni skemmtilega kaldhæðið look á lífið.. ég gæti barið sjálfan mig með skóflu án þess að finna fyrir því.

en jæja.

Ottóman heimsveldið var fullt af húsgögnum fyrir einhverja ástæðu.
og þessi færsla er full af tilgangsleysi.

föstudagur, febrúar 04, 2005

Alvarlega



mér finnst stundum eins og að fólk taki mig ekki nógu alvarlega.
þá er ég að tala um bæði yfir höfuð og sem tónlistarmann.
fólk virðist ekki skilja að ég tek mig mjög alvarlega, en samt finnst mér stundum eins og fólk líti á samband mitt við tónlistina sem einhverskonar "mail order bride" samband.
ég æfi mig á hverjum degi, er semjandi og útsetjandi hverja stund.
sérstaklega í vinnuni Bzzz Bzzz Já er þetta hjá *****? hmmmm... hljómar eins og köntrílag.

en þetta þýðir ekkert lengur.
fólk skal drullast til að taka mig alvarlega sem listamann
héðan í frá verða framkvæmdar listhryðjur.

og þið skuluð fílaða- Eða ekki!!!

Ah you loved me as a loser, but now you're worried that I just might win
You know the way to stop me, but you don't have the discipline
How many nights I prayed for this, to let my work begin
First we take Manhattan, then we take Berlin

(L.Cohen)