miðvikudagur, janúar 26, 2005

My So Called Life


eða= Gelgjast 10 árum of seint



Hvað er að fólki að láta það útúr sér við mig að tónlist sé ekki vinna... það er náttúrulega bara asnalegt að láta svoleiðis útúr sér. við mig. og að halda því fram að tónlist sé ekki vinna heldur aðeins hobbý þartil maður hefur fastar tekjur af þessu. Ég varð sótrauður af vonsku og bræði, og fíla ekki svona vitleysu. og ef einhver vill láta það frásér við mig að tónlist sé ekki vinna. Make my day bitch.

Fáránleiki Farartækja



Bróðir minn, blessaður kallinn, er sérstakur einstaklingur, að mínu mati allavega, því hann er örugglega leiðinlegasti maðurinn í morgunumferðinni. Fáir ef ekki engir eru á jafn stórum og grimmilegum jeppum, sbr Fordinn sem hann er á núna, sem er extra langur og stór, það stór að maður hefur áhyggjur af því að hann sé að bæta eitthvað upp, eða að fara að skipta honum í dýrari, ég veitekki.. en mér finnst samt óþarfi, þrátt fyrir að það sé rökrétt að keyra uppí rassgatið á fólki á dvergvörubíl á fullri ferð. blikka og bípa, og veifa og gefa svo puttan, á meðan glymskrattinn glymur milli útvarpsstöðva og ég hugsa um hvað mér finnst útvarpsmennska léleg á íslandi í dag.

Aðeins flónskur maður þyrfti að spyrja, hvort þetta sé ekki bara hinum hálfvitunum að kenna og þeir ættu að drullast til að vera á réttri akrein (sem ég er sammála, en þetta er neyðarakrein, fyrir sjúkra, slökkviliðs og lögreglubíla)

Ef maður dirfist að setja út á akstursmátan sem er vægast sagt grimmilegur er öskrað á mann... "það er ÉÉGGCCH sem keyri þennan bíl!!!" sem er bara pirrandi
Ég hef haft gífurlegar áhyggjur á stundum yfir þessu.. þá ekki yfir því hvort að bróðir minn sé að gera einhverjar vitleysur, því það er klárt mál, að þó að hann sé einhver besti ökumaður sem ég veit um, þá er þetta vitleysa, vegna hvers, jú, ég hef áhyggjur af því að "helvítis fíflin fyrir framan mig" geri vitleysur, eins og að stoppa og fá 4 tonna pickup trukk í rassgatið með þeim afleiðingum að þeir drepist.
Eins er þetta með Radarvara.. ef manneskjur sendu frá sér radarbylgjur væri þetta ekkert mál.. mig langar bara ekki að heyra fucking beepið í radarvaranum þegar á endanum keyrt verður yfir lítinn krakka með Crönsj hljóði... vegna þess að radarinn sagði að það væri hvergi lögga nærri...

mánudagur, janúar 24, 2005

Smegma Cum Laude


Þreyta. Ég er eitthvað svo þreyttur núna að ég er eiginlega ekki viss um hvort ég muni standa í lappirnar í kveld á æfingunni.
En ég mun reyna.
Hljómsveitin Coburn hefur æft eins og geðsjúk kona í hysteríukasti yfir dansiballi aldarinnar.
Ég er farinn að telja Hotmailið mitt vera að gera grín að mér, þar sem í fyrsta skipti er ég farinn að fá spam af einhverri alvöru... aðallega auglýsingar fyrir Cialis og Viagra, en ekkert sem ég þarnfast eins og hmm.. Earlobe enhancer eða eitthvað skemmtilegt...

Til eru fræ.

Hljómsveitin mín hljómar virkilega bizniz nútildags.
Verð að fara að uppfæra síðuna.
klára seinna.

sunnudagur, janúar 23, 2005

Aint you wealthy, Aint you wise?


Ég er ekki fráþví að ég sé farinn að þarfnast sálfræðings vegna vistarinnar hér í grænu gervisveitinni.
fólk er eitthvað að hegða sér svo illa, geðsýkislega, ég held ég geti barasta ekkert tjáð mig um það núna annað en.. að ég er bara í klessu.
ég held að mig hafi aldrei vantað faðm eins mikið á ævinni.

*snökt*

sem betur fer faðma ljúfir tónar Wills Oldham mig.
en guð hvað ég er eitthvað lítill í mér núna.

yfirleitt er ég sterkur og þoli flest.
en ekki vera vond við mig ef þið hittið mig á förnum vegi núna.
dont think I can take it all.

þriðjudagur, janúar 18, 2005

GamliGaml.


Var að skoða einhverja síðu.
Tók eitthvað Quiz.
Hvað kom í ljós?
jú.
Ég er gamlari en ég er.




You Are 27 Years Old



27





Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.



föstudagur, janúar 07, 2005

Varkár með þessa öxi Évgéní


Þá er ekki úr vegi að hefjast handa við að skrifta um síðasta mánuð.

Ég vann baki brotnu til að eiga fyrir sjálfum mér, og sjá ég er ef eitthvað er bara blankari fyrir vikið.
Jólin komu og fóru, með sínum fitandi, ofmettandi mat, fylleríi (fjölskyldutraditíón), gjafastöffi (ég fékk Rafgígju, sjá neðar) og vandræðalegum heimsóknum og öðru slíku.
Við í Coburn héldum heljarinnar tónleik, sem var eiginlega meira eins og æfing, þar sem að tími okkar til æfingar fyrir giggið var skemmri en ella, sökum þess að Árni er jú að vinna í veitingabransanum og ég sem símþræll langt fram á kvöld, og Hjalti eitthvað að Leika, sér.

Ég var ekki sá eini sem var blautur yfir jólin. Heljarinnar flóð varð í suðaustu Asíu og var það ólíkt bleytu minni, hið versta mál. Ég mæli með því að gefa peninga, mat og svíja til að bæta ástandið þarna suðurfrá (ái, ljótur þessi..)

Rafgígjan er snotur.
Þóra
Smellið á gelluna að ofan til að skoða nánar, mín er 95% eins
Loxins Loxins á ég núna súpercalafragilistískexpíaladósíjúslega flottan gítar, að sið blúsgítarleikara heitir hún eftir fyrrverandi, ekkert að því, vænsta stúlka, vænsti gítar... OG DJÖFULLI SÁNDAR HANN BIZNIZ!!!

Afmæli voru tíð í lok Desember, Hjalti varð 23, Greta varð 25, Árni Hamar varð 25, samtals urðu þau 73. Mikið varð því um fögnuð í lok ársins.
Ég held ég sé barasta ennþá þunnur. Ég ætla ekki að skrifa um hvað ég gerði þá.

Skandinavar eru þreytt pæling. Ég er búnað leiðbeina að meðaltali 20 skandinövum á dag að stilla dót(sem er helt simpelt, tak skal du ha), og ég er ekkert að fíla þá. Bauninn er jú alltaf hress og kátur, og gaman að honum. En svíjar.. æji.. sumir eru ágætir, aðrir eru fífl.

Uh svo var ég lasinn í gær og í dag og komst því ekki til skila.
bara að koma þessu frá mér

svo er mér boðið á baropnun í kvöld og svo verður reynt að hitta eitthvað fólk.
meira seinna í dag.

Gleðileg Slavajól

Pozdrevlyayu s prazdnikom Rozhdestva is Novim Godom (Rúss)


Slavasveinninn var að vonum hress með uppátæki jólanna að mæta 2 vikum of seint.
Hérna sést hann undirbúa rússneskt kertajuggl