þriðjudagur, apríl 27, 2004

In Like Flint!



Coburn Tónleikar

Þann fyrsta mæ mun hinn geysivinsæli dúett Coburn Flytja mússík fyrir gesti og gangandi á hinu eðla austuríska kaffihúsi Kaffi Vín Laugavegi 73 kjallara á milli 1800 og 1900 og eitthvað frameftir.
Dúettinn er skipaður þeim Árna Hamri sem leikur á iðnvélar og reiknitæki, og sjálfum SlimJimy sem leikur á blóðgandi sexstrengju. Hvetjum við alla til þess að mæta og fylgjast með ilþýðum tónum Coburn fljóta umhverfis þetta svæði á Laugaveginum þar sem unaðslegir elektrótónar flæða í bland við blúsaða snarstefjandi rafgýgjutóna og getnaðarstunur kvenfólksins í áhorfendaskaranum
Árni Hamar Coburn
SlimJimy Coburn



aðrar fréttir= Hraun Rebell kominn á stjá

Mennski Vírusinn



I'm tired of this back-slapping "Isn't humanity neat?" bullshit. We're a virus with shoes, okay? That's all we are. -Bill Hicks

Dreymdi soldið skrítinn draum í nótt.
Draumurinn gerðist í Japan, þar sem ég var bara í frekar góðu skapi og þannig, að rebellast á móti því að borga lestargjöldin með því að hanga aftaná svakahraðlest..
Ég er reyndar farinn að halda að japönsku ofurlestastöðvarnar í þessum draumi og risakringlan í öðrum draumi, sem mig dreymdi um daginn, seu tákn fyrir kapítalismann í heiminum í dag og þessvegna eigi ég ekki heima þar. Ég hafði gaman af þessu og flúði nánast alltaf.
Þegar ég var alltíeinu kominn til skógi vaxinna sveita Hokkaido, og var að snúa til baka lendi ég í því að félagi minn (man ekkert hver það var) smitast af sjúkdómi sem Bandaríkjamenn vhöfðu komið fyrir í einhverskonar bjöllu sem, ef flogin inn um vit þér, át allt flesk af beinum þínum og skapaði sjálfa sig úr því, og það frekar skrítnar manga-útgáfur af manneskjum.
Ég náði að slátra slatta af þessum stökkbreyttu mennsk-vírusum með pílukasti og haglabyssum.
Ég hef ekki hugmynd um hvað þessi draumur átti að þýða, en fyrir einhverjar furðulegar ástæður, lifðu allar grænmetisætur sem ég þekki af, og ég, og ég man að elsti vírusinn hafði á orði; merkilegt hvað þið sem viljið ekki drepa beljur eruð til í að drepa marga til að lifa af sjálf.

Ég ætla ekki að borða kjöt á næstunni!!
Ég er ekki grænmetisæta, en ég ætla að treysta hugboði mínu um að sleppa kjöti, vil ekki enda sem einhver stökkbreyttur vírus í einkennisbúningi frá Egó-Bensíni.


Ég hef verið að fylgjast með fréttum og verð að segja að mér finnast stjórnmál á íslandi í dag bara stórskemmtileg, og þó sérstaklega vegna þess hve fyndinn hann dabbi okkar er. Bakarar meiga nú ekki vera markaðsráðandi og eiga hlut í bakara-tíðindum. Samkvæmt rökunum sem þetta frumvarp er byggt á, mega Arkitektar ekki heldur eiga verktakafyrirtæki (sbr íslenska aðalverktaka) Tannlæknar mega ekki eiga nammiverksmiðjur, og því síður tannbursta.

Húmor í þessu.

Komst að niðurstöðu um daginn. Ég ætla að sprengja Þingvallakirkju ef kirkjan fær að eiga Þingvöll (við heiðingjarnir komum þangað fyrst og það er ekkert kristið við þinghald!)
Ég held að þarna sannist samt helst misskilningur kirkjunnar manna á boðskapi trésmiðsins frá Nazareth, hann vildi gera landið og mennina að musterum. Þjóðkirkjan vill byggja musteri og stela landi. Mæli með undirskrifarsöfnun á móti kirkjunnar mönnum í þessu máli.

Ég hef engan húmor fyrir mönnum sem þykjast eiga land. Það getur enginn átt land, landið á þig.

"Every part of this earth is sacred to my people. Every shining pine needle, every sandy shore, every mist in the dark woods, every meadow, every humming insect. All are holy in the memory and experience of my people"
"Even the rocks that seem to lie dumb as they swelter in the sun along the silent seashore in solemn grandeur thrill with memories of past events connected with the fate of my people, and the very dust under your feet responds more lovingly to our footsteps than to yours, because it is the ashes of our ancestors, and our bare feet are conscious of the sympathetic touch, for the soil is rich with the life of our kindred"
"If we sell you our land, remember that the air is precious to us, that the air shares its spirit with all the life it supports. The wind that gave our grandfather his first breath also receives his last sigh. The wind also gives our children the spirit of life. So if we sell you our land, you must keep it apart and sacred, as a place where man can go to taste the wind that is sweetened by the meadow flowers." -Seattle Höfðingi 1854


Nóg komið í dag.

mánudagur, apríl 26, 2004

Breytt innlit/útlit


Hún Ingaló Könguló snillingur er búnað gefa mér nýtt útlit hérna..
ég á eftir að breyta forsíðunni..
en ég er heavy sárttur við þennan hluta...

aðrar fréttir eru þær einna helstar að ég er bara í frekar fúlu skapi þar sem égþarf að flytja útá nes að öllum líkindum

ef einhver vill leigja mér ódýrt, eða leigja með mér, eða eitthvað. verið í bandi

I WAS TRAGICALLY BORN AS AN ONLY TWIN
mikið er hún Könguló nú sniðug

þriðjudagur, apríl 20, 2004

My Inner Hero - Paladin!





I'm a Paladin!


I strive to help others, and to bring truth and harmony to the world however I can. Whether times are good or bad, you can always count on me. I'm a shoulder to cry on, a champion for the helpless, and an all around nice person.



How about you? Click here to find your own inner hero.

mánudagur, apríl 19, 2004

Do you have a telephone? ..... A tephelone?.... is this one?




Ég er þreyttur en glaður. Hef eiginlega fátt að segja.. vantar íbúð um næstu mánaðarmót.. og því er ver og miður er það eftir 10 daga.. en ég var sneggri til síðast en það..
ég er orðinn frekar þreyttur á flutningum, en það er kannski ekki vegna líkamlegs erfiðis, heldur vegna þess að ég vil heimili þar sem ég get sest niður í hægindarstólinn, horft á veggina og munað eftir árunum sem liðu á undan. ég hef reyndar fram til þessa búað á... allavega 10 stöðum yfir ævina, en reyndar lengst af á þremur þeirra, 3 hafa verið síðasta árið :P
Síminn minn (heimasíminn) er lokaður um stund, enda tekur því ekki að vera að tengja síma fyrir innan við mánuð.
þessvegna hef ég lítið verið á internetinu undanfarið.
annars hef ég eiginlega ekki nokkurn skapaðann hlut að segja.

by the way
mér finnst meðleigjandi minn skrítin, ég þekki hana ekki razgatt, en manneskjan er einrænni en ég, og virðist aldrei fara út, aldrei fá gesti, og aldrei tala.





þriðjudagur, apríl 13, 2004

sunnudagur, apríl 11, 2004

mér skilst að




8
CRAZY ONE. You need crazy partners. You dont mind
if he/she takes alc or drugs or smokes he is
not allowed to be boring. Open-Minded for
everything our partner should spent much time
with you. Your partner shall be spontaneous and
love danger. It is not that important if she/he
is rich or if he/she cuts his nails she/he must
follow you .You take the domination over the
relationship, you decide most of the times
where to go. If the sex is not good (any
more)you quit the relationship
For you it is better to leave than to see your
love restrained.
PLEASE VOTE, I want to know what you think about my
quiz, I worked hard on it.You can always
message me or tell me how I can improve that
quiz. Ill sure write back.


~THE big LOVE TEST!! What do you need? With PICS! For girls and boys!~
brought to you by Quizilla

gaman af því

mánudagur, apríl 05, 2004

Passía SlimJimys



Ég var að koma af sýningu á hinni stórfenglegu splattermynd the Passion of the Christ, og er skemst frá því að segja að hún fær 666 stjörnur af 5 mögulegum því þetta er stórvirki og tvímælalaust frábær mynd, en aftur á móti alls ekki fyrir viðkvæma.
Ég er eins og flestir lesendur mínir vita, ekki kristinn maður, heldur mætti frekar segja að ég sé eigin trúar, einskonar blanda af heiðnum, taoískum, hindúískum húmanista með messíasarduld. En engu að síður var ég mjög hrifinn af þessari mynd, enda er ég mjög hrifinn af boðskap Jesú frá Nazaret, enda mjög fallegur boðskapur. Verst þykir mér þó að kirkjunar menn hafa engan áhuga á boðskapi Jesúsar. Enda hafa þeir sjálfir ekkert vit á svoleiðis, vilja heldur byggja musteri og búa í höllum en að gera jörðina að sínu musteri og reyna frekar að gera eithvað gott úr málunum.
Aftur á móti var ég að velta því fyrir mér hvað kristnir menn meina með því að bera róðukrossa um háls sinn og búast við því að Jésú vilji sjá kross, snúi hann aftur.
Rétt eins og John Lennon vildi sjá skammbyssu og Leó Trotskí vildi sjá Ísnál.

Ég ætla ekki að segja hvort þessi mynd vekji upp gyðingahatur, ég held gyðingarnir sjái alveg um það sjálfir í Ísrael. Ég ætla ekki heldur að dæma um hvort myndin sé of ofbeldisfull, því hún er jú blóðug og átakanleg, en svona er víst farið með fólk um allan heim, daglega, og er það sorgleg staðreynd. Annars vil ég segja að mér fannst frábært að hafa myndina á Latínu og Arameisku, enda miklu flottara en enskan.

Hér eru nokkrar myndir úr myndinni ásamt þýðingum mínum á því hvað fólkið var að segja hverju sinni


Varstu að prumpa?

NeiNeiNei!! Ég vil ekki vita hvernig ég get grennst með Herbalife!!

Hefuru séð linsuna mina?

Hey þú! Hvað hangir á spýtunni