Smávægilega breytingar á síðunni og stórar á lífinu
já.. líf mitt hefur stórbreyst síðustu daga..
ég er reyndar þokkalega sáttur við tilveruna núna,
á reyndar eftir að flytja í 101 aftur í þessari viku.. sem verður bara gaman..
er að fara að sækja um vinnu á eftir..
sem ég vona að ég fái.. og verð að játa að ég er bara skyndilega orðinn hinn hressasti...
sem er eitthvað nýtt fyrir mér.. er svo vanur að hafa eitthvað til þess að nöldra yfir.
Þú og Ég
(Megas)
Þú veist að ég er í þeirri pælingu
að þrá þig jafnt á nóttu sem degi
veist ég má ekki við þeirri spælingu
að viljir þú mig eigi
Ég held að ég & þú
yrðum þrælgóð hjú
& því ekki bara að testa það hér & nú
ég veit að ég & þú
við verðum þræl góð jú
& víst er réttast bara að testa það ekki seinna en nú
Þú veist ég er bara á því rólinu
að vilja eiga í þér hvert bein
verst að hafi ég þig ekki hjá mér í bólinu
fæst huggun hvergi nein
þú veist að andvaka ligg ég allar nætur
& eigra um í leiðslu á daginn
en þú veist að mamma var vön að segja að ég væri sætur
& svo væri ég heldur ekkert ólaginn
þú veist að ég og þú
yrðum þrælgóð hjú
& því ekki bara að testa það hér & nú
ég veit að ég & þú
við verðum alveg meiriháttar hjú
væri ekki málið að kýla á að vera bara þrjú
já við ég & þú
verðum þrælgóð hjú
& því ekki að kýla á að vera þrjú
ég veit að vð tvö þú & ég
við verðum saman alveg æðisleg
svo eigum við ekki bara að lalla sama veg
(af plötunni í góðri trú 1986)