fimmtudagur, október 30, 2003

Hárið


ég hef verið að íhuga að fara í klippingu á næstunni.. finnst það rökrétt næsta stig, vek athygli á að
ef myndir eru óskýrar þá virka þær sem hlekkur á eilítið stærri útgáfur, annars er líka hægt að hafa
samband við mig ef fólk er að spá í það...
fyrir löngu var ég stuttklipptur, þá leit ég svona út, og var með einhvernvegin grá-brúnlitað hár
mynd eftir joakim eneroth frá því 1998líka eftir Joakim Eneroth, sama dag, í október 98
svo óx hárið og varð síðara, en ekki síðra, ég litaði það eldrautt og það leit svona út
Undirtónar 2000Vegabréfsmyndin mín 2001
síðan hefur það vaxið ennþá meira, er orðið eðlilega rautt eins og það var á árum áður og er einnhvernvegin svona í dag
í partýi haustið 2002eftir afmælið hennar Kizu 2003, með öðrum orðum snemma síðasta vorfyrir nokkrum dögum síðan á dillon, eða semsagt, snemma í október

ég er að íhuga að klippa mig eftir helgi.

hvað finnst ykkur?

takið eftir því hvað ég yngist við að vera ekki með skegg.. ég er orðinn skeggjaðari en á síðustu myndinni og
er að spá í að láta það fjúka líka... ég lít út eins og jésús... andskotinn hafi það...

commentið endilega eða sendið mér póst.

Masculínistafélag íslands


skrifað í framhaldi af kommenti hjá Jósaég hef verið sjálfur að íhuga stofnun nýs mascúlinistafélags, þar sem augljóst er að ungir drengir leiðast nú í stórauknum mæli út í vændi.
er ekki kominn tími á að við fáum eitthvað fyrir okkar snúð?

nei veistu, ég held þetta sé alltsaman rangt, því að þetta er bara partur a kapitalísku kerfi að einhver sé troðinn niður, sama hvors kyns það er. málið er að við blönku hvítu "alveg eins og allir ríku" karlmennirnir höfum bara ekki vælt jafn hátt, því við höfum enga afsökun "ég er kvenkyns, svartur, samkynhneigður.. etc" fyrir því að vera niðurtroðnir, því að ríkjandi stétt er einatt skipuð hvítum gagnkynhneigðum karlmönnum (og jú konum þeirra..)
maður gæti notað afsakanir eins og litla menntun, en ríkasti maður í heimi útskrifaðist ekki á sínum tíma..
og ég á ekki fyrir mat...
hmmm...

hvar ætli sé best að selja sig (svo maður geti farið í ísland í dag að væla yfir því að þurfa þess)? þá hefur maður afsökun til þess að stofna maskúlinistafélag, get ég farið að gráta og sagt frá því að ég hafi verið kynferðislega áreittur á vinnustað (tvær samstarfskonur mínar tróðu ísmolum inná mig, en þær eru sætar og ég hafði gaman af því...) og ég gæti sagt frá því að ég hefi verið lagður í einelti fyrir að vera ekki jafn hávaxinn og stæltur og hinir strákarnir, því það var steríótýpan sem stelpurnar í skólanum vildu (já jafnvel maður sem var ein gangandi graftarbóla, var kosinn kynþokkafyllsti strákur ársins, vegna þess að hann var massaður og hávaxinn, hafði ekkert milli eyrnana, og var í íþróttum (og er ennþá óbreyttur))þá er hægt að segja að konur vilji að við karlmenn séum einhverjar steríótýpur.. því þær vilja það líka alveg eins og karlmenn oft á tíðum...

einhverntíman rakst ég á auglýsingu á einkamal.is þar sem stúlka talaði um að hún vildi enga "litla, aumingjalega rauðhausa sem ekki væru með bílpróf" ég hugsaði með mér að þessi manneskja hlyti að þekkja mig, en gæti nú ekki fílað mig mikið... þar til að frasinn "og eru með lítil typpi" kom upp að ég gerði mér grein fyrir því að hún gæti ekki verið að tala um mig :P

gildir einu

Það sem ég er að reyna að segja er að ég held að fólk sé bara einum of mikið, hvort sem það er kvenkyns eða karlkyns, feministar eða ekki, þá er fólk að hugsa með typpinu á sér, og ég held að þetta fari ekkert að breytast í nánustu framtíð
nema að fólk hætti að kyngera hvert annað og jörðin gerist bisexual, þá er ekkert að fara að gerast í jafnréttismálum. og oft er jafn illa farið með karla og konur í þessum heimi, þetta er bara væl, því ef konur réðu, væri friður á jörðu nema hvað það kæmi upp heimstyrjöld einusinni á mánuði! (sorry þetta var karlrembulegur brandari, en ég er með barnalegan húmor)

miðvikudagur, október 29, 2003

(nær)Dauði og Djöfull



Á sunnudaginn fór ég á fyllerý enda átti ég ammæli þá.
ég varð svívirðilega fullur, og eftir að hafa setið í þónokkurn tíma á ónefndum stað ákvað ég að hafa mig á brott,
og drapst í því húsasundi. veit ekki mikið hvernig ég kom mér heim eftir það, en mér er tjáð að ég hafi verið
ískyggilega drukkinn þegar ég kom heim. Allt í góðu með það, nema hvað að félagar mínir sem ég bý með senda mig
inn í rúm svo ég brjóti nú ekkert frammi með föllum mínum í allar áttir.
nema hvað
á minni íðilfögru 7 metra löngu leið inná herbegi reyni ég að klæða mig úr buxunum samstundis (þetta er tilgátan,
ég hef persónulega ekki hugmynd um hvað gerðist) dett svo afturfyrir mig, og hnakkinn á mér skellur á (líka tilgátur,
það sá þetta engin gerast) a)hurðarhúninn hjá Þorra b) borðið á gagninum c) hornið á skápnum, ég held að
a) sé rétta svarið vegna þess að form sársins svipar til hurðarhúnsins, við þetta rotast ég, og ligg á
gólfinu í blóði mínu þegar þorri kemur fram (að mér er sagt, ég var meðvitundarlaus) sparkar laust í
mig og segir... 'Einar.. ertu lifandi.... Einar.... erhm... það blæðir úr þér.. errhhh..... Einar....?' ég mumla
eitthvað, svo strákarnir henda mér inn í herbegi, og þurrka upp blóðið.

daginn eftir vakna ég, hugsa með mér 'hvurn djöfullinn gerðist eiginlega í gær?" lít á hendur mínar og sé
að þær eru allsettar í blóði. ég var einn heima svo ég gat engan spurt hvað gerðist, eina sem ég vissi var,
að ég mundi ekki neitt, var blóðugur um hendurnar og að ég væri með hausverk allra tíma. það var ekki fyrr
en löngum klukkustundum í vangaveltum seinna að ég komst að því hvað hafði gerst, og var það léttir.. því
augljóslega hefði eitthvað óhugnarlegra getað hafa gerst.

Ég er ennþá á lífi, þó svo að ég sé ennþá með hausverk, og eilítið óglatt inn á milli. Það er það sem skiptir máli.
Ég er bara feginn að ekkert verra kom fyrir


annars er fátt að frétta af mér, nema hvað að ég verð ringlaðari og ringlaðari á fólkinu og heiminum sem ég
bý í með hverjum deginum sem líður. Kannski er ég bara að verða gamall.

PS.
ég er að spá í að klippa mig eftir helgi. sviðaðri klippingu og Alex DeLarge úr Clockwork Orange.... hvað finnst ykkur?

PPS.
er þetta ekki gaman
pho
You are Form 0, Phoenix: The Eternal.

"And The Phoenix's cycle had reached
zenith, so he consumed himself in fire. He
emerged from his own ashes, to be forever
immortal."


Some examples of the Phoenix Form are Quetzalcoatl
(Aztec), Shiva (Indian), and Ra-Atum
(Egyptian).
The Phoenix is associated with the concept of life,
the number 0, and the element of fire.
His sign is the eclipsed sun.

As a member of Form 0, you are a determined
individual. You tend to keep your sense of
optomism, even through tough times and have a
positive outlook on most situations. You have
a way of looking at going through life as a
journey that you can constantly learn from.
Phoenixes are the best friends to have because
they cheer people up easily.


Which Mythological Form Are You?
brought to you by Quizilla


Ready must thou be to burn thyself in thine own flame; how couldst thou
become new if thou have not first become ashes!
(Frikki Níski)

þriðjudagur, október 28, 2003

hmmm.... Need money, send stuff


ákvað bara að setja þetta inn til þess að setja eitthvað inn.
hef ekkert sent inn í tæpa viku.
en annars..
need money
send stuff
food, money etc.

SlimJimy Music/enterprizes
C/o Einar V. Bjarnason
Hjarðarhaga 50
107 Rvk

(lets hope it works this time...)


fimmtudagur, október 23, 2003

ATH!! eftirfarandi, þótt hljómi fáránlega er ekki djók



ég var að fá bréf í hendurnar, þar sem ég er kærður fyrir líkamsárás.
ég veit.
fáránlegt.

ég man ekki eftir því að hafa lamið einn né neinn, og því síður að lemja einhvern svo tilefni sé til líkamsárásarkæru.

ef einhver hefur hugmynd um hvað málið er. er hann/hún vinsamlegast beðinn að senda mér email.

miðvikudagur, október 22, 2003

ég er svo aldeilis klessa


rannsóknir mínar í samstarfi við Íslenska Erfðagreiningu benda til þess að Zato hinn góði sé í raun kominn af
Bretum og sé því ekki Árnason eins og hingað til hefur verið talið, einnig virðist vera að réttur líffræðilegur faðir Zatos, Graham Chapman,
sem hingað til var talið að hefði aðeins verið við karlmenn kenndur, sé í raun afkomandi Skerláks Hólmars,
rannsóknarlögreglumanns í London á Viktoríutímabilinu
Leiðir þetta til þess að Zato Muni erfa bæði eignir Chapmanns, sem lést fyrir aldur fram árið 1989 og Holmes, sem er löngu dauður.
tengslin eru augljós Dr Watson...
hér má sjá alla þrjá

Kári Stefánsson var að vonum sáttur við niðurstöðurnar
Kári Stefánsson var að vonum sáttur við niðurstöðurnar, enda ekki á hverjum degi sem hægt er að finna pípugen

GREENE MINTS I LOVV


GREENEST I'M INVOLV
JULIA ZAGER EL MANIA
HI MOM PRO RUST
IM MR HORUS TOP
OUR HOST MR IMP
GARDEN RUFUS
DR US FUN RAGE
NUDE FUR GRAS
DECO GUNFIRE GIRL ZOINKA
MY SERIALLY EX
OM GIVE ENEMY
I SMEAR SKYS
ANY EMIGREE VET DOME ONE PYNT



þessi færsla er tileinkuð þeim sem finnst bloggið mitt ekki meika sens

föstudagur, október 10, 2003

ég veit ekki alveg




Þessi gella er eiginlega einum of eitthvað mikið beib til að vera í keðju
og ekki láta mig hugsa dirty thoughts.. kannski er ég bara svona mikill perri....
reyndar eru nottla sárin turn off.. en ég væri alveg til í að eiga svona gæludýr... grrr

annars eru PeTA fín samtök, og sircusar ekkert alltof góðir við litlu dýrin
amm...

Ef einhver efaðist um það


þá er ég ennþá kúl. allavega samkvæmt þessu testi

You Shook Me All Night Long
"You Shook Me All Night Long" (by AC/DC)
'Cause the walls start shaking
The earth was quaking
My mind was aching
And we were making it and you -
Shook me all night long.


Which 80's Song Fits You?
brought to you by Quizilla

fimmtudagur, október 09, 2003

Tónleikar í kvöld


Timbur og Stál gerðu allt vitlaust síðasta fimmtudag á dillon og ætla því í kvöld
að endurtaka leikinn og reyna að gera eitthvað rétt
semsagt
þá verða tónleikarnir klukkan 22:00-01:00 í kvöld og er öllum skilt að mæta!!

MÆTA!!!


þriðjudagur, október 07, 2003

Andskotinn hafi það


ég er lasinn, stend varla í lappirnar, það er ekki gott shitt, mér
fyndist að þið ættuð að gefa mér stöff svo að mér liði betur :D

miðvikudagur, október 01, 2003

Tónleikar


er með tónleika á morgun ásamt Timbri og Stáli á Dillon klukkan 2200
Juke stemming og jamm