Litli strákurinn sem féll til jarðar
Í dag eru liðin 58 ár frá því að lítill strákur féll til jarðar.
Ekkert sérstaklega merkilegt við það, enda detta litlir drengir nánast daglega einhverstaðar í heiminum.
Merkilegra er að drengurinn féll úr flugvél, og allra merkilegast er að hann dó ekki sjálfur, enda ekki lifandi vera, en 160.000 manneskjur dóu við fall litla stráksins og á þessum degi sem þetta er skrifað hafa alls 231,920 manns (82,3 sinnum þeir sem féllu í árásum á Bandaríkin 11 september 2001) dáið útaf einum litlum strák sem féll úr flugvél.

Feitur maður féll þremur dögum síðar, annarstaðar í sama landi og dóu 60.000 manns við það fall.
Þessir fallandi herrar, annar kenndur við lítinn strák og hinn við feitann mann, voru atómsprengjur sem féllu á Hiroshima og Nakasaki.
"The release of atom power has changed everything except our way of thinking... the solution to this problem lies in the heart of mankind. If only I had known, I should have become a watchmaker." Albert Einstein Núna tæpum 60 árum seinna er mannkynið enn við sama heygarðshornið. Það er ekki spurning um að við höfum ekki þróast, við höfum ekki gert það, heldur eru eins og maðurinn sem ég vitna í hérna áður sagði (vel að merkja höfundur þeirrar kenningar í eðlisfræði sem gerðu okkur kleyft að drepa óteljandi manneskjur á svipstundu, en hann sá að sér) "við erum ekki þróaðar, höfum aðeins hættulegri leikföng".
Og það er sama hvaða ríki það er. Rússar eiga ennþá eitt stæsta safn gereyðingarvopna í heiminum, Bandaríkjastjórn vill veita 68 milliónir bandaríkjadollara í þróun kjarnaodda, ekki er langt síðan Frakkar gerðu tilraunir með kjarnavopn á Muroroa eyjum.
"The excavation showed that the fossilized plesiosaur had been holding a placard which read, 'End Nuclear Testing Now'."Terry PratchettErum við sem tegund svo treggáfuð, að við skiljum ekki hætturnar sem við völdum okkur með þessu? Er mannkynið það úrkynjað að það vilji deyða saklausa borgara á þennan hátt? Hversvegna eru menn enn þann dag í dag að rannsaka eitthvað sem augljóst er að er hættulegt, siðlaust og ómannúðlegt?
Erum við sem tegund, ill af náttúrunar hendi?
"The atomic bomb survivors... cannot wait another 50 years. Their highest hope is to see the abolition of nuclear weapons within their own lifetime. It is a steep climb to this goal, but one from which we must never relent."Iccho ItohHroki mannana er mikill og gleymskan móðir hanns. Við megum aldrei gleyma hryðjuverkum sem eru framin gegn okkur, því eftir allt eru allir menn jafn mikil fórnarlöm atómsprengja, sama hvort það eru við sem þurfum að horfa uppá þessi voðaverk eða verðum fyrir þeim.
Hiroshima var stæðsta hryðjuverk mannkynssögunar, fram til þessa, sama hvort menn vilja játa það eða ekki. Verra þykir mér samt að menn hafa gleymt og vilja margir hverjir halda áfram að nota þessa viðurstyggð gegn bræðrum sínum og systrum um allan heim. Það er aldrei réttlætanlegt, því morð á saklausum einstaklingum er aldrei réttlætanlegt, sérstaklega ekki þegar þau eru framin í nafni friðar.
"I made one great mistake in my life-when I signed the letter to President Roosevelt recommending that atom bombs be made but there was some justification-the danger that the Germans would make them." Albert Einstein Hvort sem við erum í Reykjavík eða í Rússlandi, Bandaríkjunum, Bethlehem eða Beirút, Kína, Kóreu eða Kaíró, Hiroshima eða Honolulu, þá megum við aldrei gleyma voðaverkum fortíðarinnar.
"The world is a dangerous place to live; not because of the people who are evil, but because of the people who don't do anything about it." Albert Einstein