fimmtudagur, júlí 31, 2003

Depurð



Heimurinn er stór og hættulegur staður, og ekki allir jafn vel útbúnir til þess að lifa af í honum, en þrátt fyrir alla herkju heimsins, mætti segja að netheimar væru jafnvel grófari..
Flestir kannast við feita hallærislega nördann sem var að æfa starwars skylmingar... fæstir vita aftur á móti að þetta er tíundubekkingur frá Quebec að láta vini sína plata sig.
Hver einasti einstaklingur sem hefur séð þetta vídjó hefur hlegið eins og asni.
Ég er engin Mother 'fuckin' Theresa, ég hló af mér rassgatið.. í svona 2 mínútur (þeir sem þekkja mig vita að það þarf sterk efni til þess að ég hlægi í 1..), en svo var ég að spá útí sálarástand drengsins, honum hlýtur að líða eins og bölvuðu fucking fífli.

Ég var að lesa við hann viðtal á netinu, þar sem honum er lofuð Ipod tölva fyrir snilldar framistöðu, og fólk safnaði peningum handa honum vegna þess hversu illa netið fór með hann.
Enda erum við mennirnir flestir það aftarlega í siðferðislegri þróun að ef túrbína væri fest við fætur Ekn-Atons gætum við notað hann til þess að leyra orkuvanda heimsins. Dapurlegt.
Aftur á mótir er mikið af fólki búið að vinna í þessum vídjóum og gera SWK RELOADED(http://www.arava.co.il/~ecc/SWK-mxr.wmv) (fullur listi hér að neðan)

En svo eru gaurar eins og þessi (http://www.boldlygoingnowhere.net/safetyfirst.WMV) sem eru kannski bara að leita að athygli, ég veit það ekki.. allavega mættan vera áfram í bolnum.

Núna er Ghyslain litli, (það er uppáhalds Jedinn okkar) kominn með þann vafasama titil að vera mest downloadaði maður á netinu. Enda Fjölmörg Remix til:

OriginalRe-MixSWK 2.0Dork ClonesTerminatorThe MatrixBulk HulkBraveKidBenny HillSWK - VSEMortal KombatDancing BabyEpisode IIIFart ManChicago KidRevolutionsDarth SWKDarth Maul GirlsAmerican LifeFreddy Vs SWKSWK in GothamBend it Like GhysainMaster of PuppetsKung Fu FightingLast SamuraiDarth FarleyThe SlayerShooStyleJedi Who Shagged MeHighlanderThe WBSWK VisionGay BarNeojam RemixesPinata KidSWK StudentFrank SinatraQuebec Remix Space Ghost Kid

Talsvert tæmandi listi yfir útgáfur, og í rauinni skipti sem fólk hefur ætlað að nota greyið strákinn til þess að hefja sig upp með svakalegri fyndni. Sem er í rauninni ekkert fyndið, aftur á móti, hlægjum við flest, því ekkert okkar var svo kúl í gaggó var það? ég var nörd, og er stoltur af því í dag.
en það er ástæðan fyrir því að ég hlæ, sem betur fer fór ekkert af mínum aulaskap á netið á sínum tíma. því ég væri örugglega á kleppi núna vætandi rúmið ef svo hefði verið.

Í dag eru foreldrar Ghyslains, sem eiga, ásamt Ghyslain, alla mína samúð, búin að fara í mál við ómannlegalega illgjörnu skólafélagana sem settu myndina á netið, enda hefu Ghysland þurft á sálfræðimeðferð að halda síðan.

Ef ég myndi hitta litla gaurinn, myndi ég vilja gefa honum í glas og segja honum að þetta verður alltíkey.
En, hann er Kanada svo ég fer nú varla að gera það.. hmm.. jæja.. svona er þetta.

Dæmið ekki eftir útlitinu menn. þið voruð sjálf einusinni nördar

fimmtudagur, júlí 24, 2003

Merkilegur andskoti


ég var að horfa í dag á myndina Old School.
Ekkert svaka merkileg ræma, fyndin, en merkilega gott tónlistarval.
Sérstaklega festist þetta lag, Dust in the Wind með hljómsveitinni Kansas, í hausnum á mér
og ég ætla því að birta ykkur þennan texta.



Dust in the Wind




(Kerry Livgren)

I close my eyes, only for a moment, and the moment's gone
All my dreams, pass before my eyes, a curiosity
Dust in the wind, all they are is dust in the wind
Same old song, just a drop of water in an endless sea
All we do, crumbles to the ground, though we refuse to see

Dust in the wind, All we are is dust in the wind

Don't hang on, nothing lasts forever but the earth and sky
It slips away, all your money won't another minute buy

Dust in the wind, All we are is dust in the wind

miðvikudagur, júlí 23, 2003

Fluttur!!!


já ég er fluttur inn í íbúð með vinum mínum í vesturbænum..
gaman.
meira síðar

föstudagur, júlí 18, 2003

EnHvað ég vildég héti Bibbi -TÍKALL!!


En hvað ég vildég héti Jói -HAMINGJA!!


en hvað ég vildég héti Ómar bróðir Bibba Tíkalls og Jóa Hamingju!!



eða svo..

Tónleikarnir í gær fóru snilldar vel og ég er hress eins og trukkalessa á Black&Decker sýningu.
Ég held ég hafi verið að keyra yfirum á stressi, ekki á sviðskrekk mind you, heldur stressi því að Daði litli frændi, kom ekki og sótti mig og skutlaði i sturtu áður..
nei.
ég þurfti að bíða eftir Dabba bróður.
Fucking vesen.

en.

ég er hamingjusamur og þreyttur í puttunum, en hvílít athyglisrush í gær!!

ps. svo held ég sé að verða hrifinn af stúlku, en kannski er ég bara að drepast úr greddu.

Allir að mæta næst, meiraðsegja þeir sem eru að spila á sama tíma

miðvikudagur, júlí 16, 2003

Athugið Athugið!!


Tónleikar verða á Kránni Laugarvegi 73 fimmtudaginn 18, kl 22:00´


Allir þeir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að mæta. Þar sem um sjaldgæfan atburð er að ræða,
Timbur og Stál -Stórhljómsveit Jóa Jóns og SlimJimy yfirdrifið
leika fyrir dansi, eða drykkju eða hverju sem ykkur langar að gera.
Þeir sem mæta ekki eru aumingjar!!!

sunnudagur, júlí 13, 2003

Snilld Dauðans


þetta ætti að sjást oftar í sjónvarpinu og ég vil fá mennina sem gerðu þetta til þess að leysa viðfangsefni myndbandsins við.

fimmtudagur, júlí 10, 2003

Fucking sýra maður!!!



hvurslags fólki dettur svona í hug..? ég meina.. afhverju getur fólk ekki séð garða annara í friði..
fucking dópistar og fyllibyttur upp til hópa.
!!!
;)

:P

nei
mér finnst þetta kúl og ég væri til í að joina þetta lið ef ég vissi hver þau/þeir væru?..
ég er að spá í að fara að fylgjast með og tilkynna svona álfaþrælkun..
Áfram Eyrnalangur

föstudagur, júlí 04, 2003

Dagar svíns og drósa


fannst þetta bara flottur titill..
fátt er að frétta af mér
ég er í rauninni bara að leyfa mér að fara svona.. létt yfirum
enda ærin ástæða til
ég er nefnilega.... afhverju er ég að segja ykkur þetta?

fleh..



í öðrum fréttum er að bestasta vinkona í heimi, hún Greta, er búin að flytja síðuna sína.. yfir á http://geocities.com/icevalkyrja... enda voru velkomin.slys fíflin að rukka hana um himinháa upphæð fyrir nánast ekki neitt...
(mikið er ég feginn að eiga snilling eins og BRE að, án hans væri ég ennþá með þetta drasl...)

og í enn öðrum fréttum er það helst að hún Ranka er farin að blogga... kannski eitthvað súrasta blogg í mannheimum.. en skemmtilegt bull samt

Jamm
þjáumst seinna

fimmtudagur, júlí 03, 2003

Jei íslenskir stafir aftur !! Takk Fallega Óskímon fyrir að koma lonely Tónlistarnördi til hjálpar í netheimumr!!!

miðvikudagur, júlí 02, 2003

Dj?fulsins f?flin...
Djofulsins fiflin


loxins ?egar Blogger er a? gera eitthva? rétt.. ?? detta ?t ?slenskir stafir
rett tha ut islenskir

fucking vitleysa..

ég ?arf a? subtitla sj?lfan mig
eg tharf ad sjalfan

stupid goddamn motherfucking fathersucking anallubing idiotic piece of crap....

eeehhhh... ég mainr á morgun á morgun


sko
of upptekinn dagur til þes að skanna inn eða annað....
uuuuhhh....
var að gera shitt og svoleiðis..
Nei ekki þannig
bara gera shitt
uh..
einhverntíman í vikunni

þriðjudagur, júlí 01, 2003

Meine Damen zu Herren


Er hast gekommt nach Island


ég lenti á Sunnudaginn.... sem var gaman..
ég lenti svo aftur á Sunnudagskvöldið, rosa gaman.
ferðasagan kemur svo í færslu á morgun..
daddaraaa!!!