þriðjudagur, apríl 29, 2003

vá.. notice resemblance to anyone?


var að finna þessa mynd..
kannisti við kallinn í gráa frakkanum?
hverjum finnst ykkur hann líkjast?

hellað lúkk....
maður ætti kannski að klippa sig og draga fram sixpencarann og frakkann?

mánudagur, apríl 28, 2003

sad tidings



ég var að frétta að eldri maður sem ég þekki vel og þykir vænt um er líklega með krabba.
djöfulsins plott hjá einhverri bandarískri stofnun um að athyglisverð líf verði að leyða til ótímabærs dauða.
!!!!

Pabbi á afmæli


Hann á líka heiðurinn af því að vera eini maðurinn í heiminum sem er morgunfúlli en náttálfurinn ég... því miður er ekki til nein mynd af honum á netinu..

Ég hef verið að hugsa útí þetta alltsaman og komist að þeirri niðurstöðu að ég sé þónokkuð feginn að vera fæddur þegar ég var fæddur en ekki á sama tíma og afi minn, eða um síðustu aldamót.... móðurafi minn, Valdimar Indriði Ásmundsson var eimmitt fæddur árið 1900... ekki slæmt ár til þess að fæðast.. hann er nú reyndar látinn og er búnað vera í því ástandi í ein 33 ár...
Þegar hann var 9 ára þurfti hann að fara að vinna.. sem náttúrulega nær engri átt, hvað þá að senda smágutta útá ballarhaf á opnum fiskibát til þess að sjá fyrir fjölskyldu? hann lenti eimmitt í því að þurfa að sjá fyrir systrum sínum, móður og sjálfum sér..
Nokkru seinna, kynntist hann ömmu Evu, sem er ennþá á lífi (fædd 1908) og byrjuðu þau að búa til börn.. það var árið 1931.. þau voru ekkert að hætta þessu og héldu þessu áfram til ársins 1949... átján ár af börnum... afi þurfti að halda áfram að vinna eins og hestur....
amma og afi í fíling í köben in the '30s
Í dag er ísland 1rsta heims ríki, og ég hef alla ævi getað um frjálst höfuð strokið.. ég þurfti ekki að vinna á barnsárunum, ekki fyrr en í unglingavinnuni, en þar var náttúrulega ólympíuandinn, ekki að vinna, bara að vera með, ég er að verða 22 ára núna í haust og ég hef reyndar verið í mörgum dead end jobbum og á því ágætis safn af barmmerkjum og hárnetum.. ég þarf ekki að sjá fyrir neinum og ég er ekki viss um að ég sé ennþá orðinn nógu ábyrgðarfullur til þess að gera það, nema ef neyð kallaði.

aftur á móti þurftu kallar eins og afi að vera ábyrgðarfullir frá 9 ára aldri..
ég held ég gæti það ekki, þó svo að ég sé núna búnað vera í sömu vinnu í næstum 2 ár, finn ég mikla þörf fyrir flutning eitthvað annað... vonandi betur launað, og auðveldara starf fyrir morgunfúla... sjáum hvað setur með haustinu....



duh!!


helgi búin, var gaman.
helgi búin, ekki gaman.
vil meiri helgi, meiri pening, fallegra kvenfólk og frjálsara líf.
ömurlegt að vera blankur opinber starfsmaður.
uh

föstudagur, apríl 25, 2003

YESSSSSSSS!!!!... með fyrirvara þó


fór niðrí bæ.. þurfti að heimsækja gamlan vin.. lækninn.. ...segi ekki meir um það.. ekkert sem ætti ekki að reddast á 1-2 vikum...
en ég fór niðrí bæ og missti af strætó tilbaka... nema hvað ég sé vinkonu hennar Krullu (sjá blaður að neðan "Little wing partII") í bænum í einhverju stuði veidikkihvað... en
með öðrum orðum þá eru líkur á því að hún sé ennþá á landinu, og þarafleiðandi gæti ég hitt hana aftur og þar af leiðandi fengið meira inspiration eða eitthvað..
gaman af því

annars er það líka að frétta að ég er kominn með svaka hugmynd af bíómynd... working titillinn er "No thanks to the good Doctor".. fjallar um mann.. sem er hjá sálfræðingi, lífið hans og kvennamál.. rosa góð hugmynd.. vantar aðeins meira kjöt í hana.. en það er allt að koma. þar af leiðandi ætti ég að geta bullað eitthvað handrit og reynt að selja það.. sem myndi þýða það að ég gæti farið að starfa við eitthvað soleiðis.. sem myndi gefa mér meiri tíma til að sinna tónlistinni og listinni almennt.. verð að drífa í þessu...

Einnig vil ég benda á snilldarplötu sem ég var að fá að heyra hjá honum Svabba Muzak AKA Svalla Túrbó það er platan Yoshimi vs the Pink Robots með hljómsveitinni knáu the Flaming Lips bendi ég öllum á þessa plötu til dægrastyttingar og skemmtanar í eiturlyfjalegum fíling... æðislegt.

By the way...
þá er ekki langt síðan einhver aumingji í Garðabæ lamdi hund til óbóta... ef einhver hérna kannast við málið er hann eða hún beðin um að láta vita af því svo hægt sé að lemja þann, hinn sama og framdi verknaðinn, til óbóta... dýr=góð, menn=ekki alltaf.

Fight the power.

fimmtudagur, apríl 24, 2003

in the summertime


já.. vaknaði varla í dag.. þunnur...
ái...
í gær var gaman...
Reykti og drakk eins og mér væri borgað fyrir það.. fékk heavy mikið af fríu áfengi og braust inná circus og reif við það fallegu hvítu buxurnar mínar... sem er ekki gaman...
í dag vaknaði ég heima hjá Rönku og Haffa og svo fór ég og lét smjörkúka gefa mér pylsur í austurstræti. Gaman af því.... ágætar pylsur, en þeim svipaði soldið til stefnu hægrimanna, fremur kaldar. þannig að ég fékk mér helíumblöðru og hélt anarkíska ræðu með hástemmdri röddu fyrir sænska vini mína.

Ég hef ekki séð Krullu aftur.... :( sem er ekki skemmtilegt.. býst ekki við því að hitta hana aftur.. en það væri nú aðislega gaman samt útaf því að hún hefur einhvernvegin inspiratað mig til að semja meira og gaf fullt af góðum hugmyndum... sem er gott.. vona bara að ég hitti hana aftur... hver veit ég gæti skrifað bók, gefið út plötu, búið til bíómynd og orðið mega ríkur og haft það gott það sem eftir er...
nema hvað...
ég veitekki...

held ég fari að grenja núna

þriðjudagur, apríl 22, 2003

little Wing part II


ég held ég hafi séð engil...
fór áðan niðrí bæ með Árna Hamri félaga mínum og við ætluðum að skipta um dekk á bílnum hans sem var parkeraður í Hafnarstræti...
nema hvað.
sprungið á báðum og við látum Vöku sækjann... ætlum að taka strætó á Lækjartorgi og Hamarinn fer inn til þess að skipta. Þannig að ég var eftir og ætlaði nú aldeilis að gæða mér á sígarettu. Þar byrja ég að spyrja rónakellu sem var að kveikja sér í, nema hvað hún er grýla og segir nei.
Þá sá ég Krullu. ég kýs að kalla hana svo vegna þess að þessi stelpa, með mátulega suðrænt útlit, var merkilega krulluð og minnti einna helst á trommustelpuna sem spilar með Lenny Kravitz.... hún gaf mér eld og ég henni bros og við skiptumst á augngotum... síðan hélt hún á braut í 111 þar sem hún starði á mig til baka og veifaði... ég sat og beið eftir 7unni og nagaði handabökin.
Hversvegna fékk ég ekki síman hennar? eða gaf henni síman minn? afhverju fæddist ég lúser?
Hún var dökkhærð með miklar krullur sem náðu niður á vanga, með brún augu, ljós-ólívubrún á hörund og íklædd brúnum Rúskinnsjakka og í útvíðum buxum. ef einhver kannast við hana commentið!!!!

KOMMENTIÐ ANDSKOTINN HAFI ÞAÐ!!!!!

Já hvílíkt og annað eins


Síðasta vika var sukk og djamm..
tja.. kannski ekki öll vikan, en jú samt eiginlega..
föstudagur til mánudags... miðvikudagur til mánudags... allt gott...
ég virðist samt alltaf hafa áhyggjur af sömu gömlu hlutunum.. veit ekki hvort maður hefur gott af nokkru lengur.. verð að finna fró fyrir öllum mínum hugsunum.
Eitthvað svo gott og heilt að ég geti ekki brunnið upp eins og vígahnöttur á fullri ferð til jarðar í frjálsu falli. Ég held ég þurfi einhverskonar metafórískt trampólín
Ef þú telur þig vita hvar ég get fundið þetta láttu mig vita.
annars er Jimi Hendrix er búinn að stela hugsunum mínum, því hérna er ágætis lýsing á hverju ég leita.

Now she's walking thru the clouds
With a circus mind that's running wild
Butterfiles and zebras and moonbeams, and fairytales
All she ever thinks about is riding with the wind

When I'm sad she comes to me
With a thousand smiles she gives to me free
It's alright it's alright she says
Take anything you want from me
Anything

Fly little wing...

föstudagur, apríl 11, 2003

All quiet in the westernworld


Vaknaði í morgun, veit ekki afhverju.. ég bara vaknaði..
ef ég vissi þó hversvegna ég gerði það, þá væri ég gáfaðari.

Fór áðan í göngutúr með einn nemanda minn, drengurinn er einhverfur og þroskaskertur að því marki að hann sagði ekki mikið, í rauninni ekki neitt, hann bað þó að heilsa.

En víkjum aftur að göngtúrnum. Gengið var um Fossvogskirkjugarð, og svo aðeins meira um fossvogskirkjugarð, og þar horfði ég ofan í opna gröf. Líklega var ekki búið að grafa neinn þar enda var fátt um mannin í gröfinni, í rauninni bara ormar, vatn og drulla.

Ég fór að hugsa út í þetta og ákvað að í raunninni væri best að vera ekkert að láta grafa sig þegar að því kæmi. Ég ætla frekar að láta brenna mig á bát. Það er hinsvegar ólöglegt... ég get ekki sagt að mér verði ekki sama þegar ég er dauður því ég er ekki viss um að það eigi eftir að skipta mig neinu máli, en að svo stöddu held ég að það sé skemmtilegra að brenna útá rúmsjó og falla með öllum vötnum í atlashaf og verða fiskafóður og reykur... þetta er jú gert Daglega á Ganges og ég væri til í að gera þetta.. tildæmis væri helvíti flott reyndar að láta brenna sig á Lagarfljóti, einhverstaðar ofarlega á héraði svo hægt væri að láta mig leggja út frá skóglendi... eins væri kúl að vera heigður í Ásbyrgi.. gallin er náttúrulega sá að þessir staðir eru úr alfaraleið.. sem er náttúrulega vesen.

En nóg um morbid hugleiðingar.. það er búið að vera helvíti gott veður í dag... viðrar vel til loftárása myndu einhverjir segja.. núna hlakkar mig rosalega til Roskilde

Nenni ekki meiru...
sól úti núna

fimmtudagur, apríl 10, 2003

Mea Status Horribilis


Mér líður ekki sem best, en það er nú lítið við því að gera.. einhvernvegin er líðan mín á þann veg og þá lund að.. tja mér finnst ég skítugur, og það er lítið í því að gera..
hugsandi út í það þá held ég að ég hafi verið skítugur frá því ég missti sveindómin, 15 ára að aldri fyrir fjöldamörgum árum.
Ég hef verið dirty ass bastard.. lifað í ólifnaði of öllum andskotanum, kvenfólki, áfengi og öðru eitri. mér varð hugsað til þessa þegar ég var að horfa á hina stórgóðu formúlumynd "Kjarninn" eða "the Core" í gær, að ef svo yrði að heimurinn myndi enda, væri ég kannski ekki sá sem ég vildi vera þegar ég dæi.
Ekki er svo að skilja að ég hafi orðið fyrir einhverskonar frelsun, því langt því frá þá hef ég verið að hugsa þetta á mjög heiðinn hátt.
Ég er ekki alltaf aftur á móti trúr minni sanffæringu, það er, ég hef ekki alltaf hegðað mér sem slíkur.

Kannski þarf ég bara að fara í sturtu? veitekki.. finnst ég þarfnast Kumbh Mela fyrir sjálfan mig..




fyrir þá sem skilja ekkert í þessu þá erKumbh Mela þvottahátíð Hindúa sem fer fram við árnar 3, Ganga, Saraswati og Yamuna.

ég er farinn að hafa áhyggjur af því að ég sé að breytast í Indverja, eða öllu heldur að ég sé að fá George Harrisoníska dellu fyrir Indlandi, sítörum og Hindúisma, og kannski bara asíu yfirleitt.. enda er ég farinn verzla mér föt frá Asíu (Nepal og Tíbet nánar tiltekið,) og ganga í kínaskóm... veitekki afhverju í andskotanum þó...! Kannski er það að Indverjar eru nett decadent á tíðum, enda höfundar Kama Sutra og miklir THC neytendur...
engu að síður.. þá fann ég skemmtilega síðu með Asískri list, og þar var eimmitt þessar myndir (sem eru hér að ofan) að finna... einnig rataði ég inná
skemmtilega sýningu á Indverskri list... :)


ég er samt ekkert á leiðinni í ljós.. og samningaviðræður um að ég gerist Grænmetisæta ganga illa, hrísgrjón eru þó fín.. en ég þoli ekki soja

miðvikudagur, apríl 09, 2003

allt horfir til betri vegar..


Þetta er alltsaman á leiðinni, púki er kominn á síðuna og ég er kominn með helstu likana upp hérna til vinstri..
núna á ég eftir að breyta útliti þessarar síðu örlítið og setja hinar síðurnar upp..
það er þó þegar kominn upp leiðarvísir eins og allir hérna hefðu átt að sjá þegar þeir komu inn í gegnum slóðina www.Slimjimy.klaki.net...
eins stendur til að breyta þeim inngangi og gera hann léttari, og aðgengilegri fyrir aðdáendur illa útlitandi en velvirkandi dóts.. (ég er bara svona superficial býst ég við...)
rosalega gaman hjá mér á næstunni.. ég finn hvernig ég breytist smámsaman í meira og stærra nörd en ég var.. og það er frábært..!!!
footnote..
og það er komið Kommentsystem!!!

þriðjudagur, apríl 08, 2003

Astand mitt og einvera



Hef verid ad hugsa sidustu daga.. Hitti nefnilega hinn maeta Megas um daginn a 22... og vard okkur raett um hina ymsustu hlidar listarinnar, astarinnar, sukksins, og thess ad vera mennskur i heimi velmennana... kannski vorum vid bara svona frednir, en vid vorum sammala um thad ad ekkert vaeri betra fodur fyrir skopunina en hryggbrot. Tha kannski ekki ad vera hryggbrotinn a medan skopunnini stendur, kannski bara ad thekkja tilfinninguna.... einhverskonar ad svekk se naudsyn.

Og her kemur ad hugsun minni.. skildi eg vera ad hryggbrjota mig viljandi?
Er thad kannski eg sem stend i vegi fyrir minni eigin hamingju? Er eg sa seki? Vildi eg vita thetta meir en nokkurt annad...

takið eftir


linkarnir hérna eru ekki mínir, og archivið er ekki komið í gang..
þetta reddast alltsaman bráðum..
ég á eftir að gjörbreyta þessu við fyrsta tækifæri.. en nóg um það.. kemur seinna..

Ég og Rikki litli vinur minn oe einn af minum uppahaldsnemendum vorum að vinna hérna vid leiðindalyklaborð.. rosa gaman,

Rikki er i fullu fjori og bydur ad heilsa ollum...

Svalli Túrbó er konungur Mannkyns! Hann lagaði síðuna mína!!!
Svabbi fær feitt kúdós fyrir að bjarga þessu..
ég mun snúa aftur með eldheita færslu seinnipartinn í dag

mánudagur, apríl 07, 2003

brátt mun ég hefjast handa aftur...


mhuhuhuhuhuhu
mhuhuhuhuhu
mhuhuhuhuhuhuhu

eða eins og gítarinn minn myndi orða það
chugguchuggu chuggunuhhuuuuh!!!
squeenoohhlooosqueenoohloosqueenoohloosqueee!!!!!