fimmtudagur, febrúar 15, 2007

Afhommarinn.



Það bar svo til um þessar mundir að afhommari nokkur kom í kastljós og kastaði þar af sér sínum skoðunum. Mér varð þetta að einhverskonar yrkisefni...

~^~^~^~
Hvað skal gera við fréttasnápnum,
sem juðar af þér skrápnum,
er það er víst,
að þú - ekki síst,
ert fastastur inní skápnum.
~^~^~^~

En húsgagn það þyrfti að losa,
svo holdið mætti í tosa -
það ylti á því,
að þú tækir streit-frí,
með Sissó, Beggó og Flosa.
~^~^~^~

Til hymmis þá snériru aftur,
ó hvílíkur Sódómukraftur,
sem fer fyrir bý,
bara útaf því,
að það lítur þér ekki við kjaftur.
~^~^~^~

Að endurhommast er gaman,
berir leika sér drengirnir saman,
þótt syndinni hafnir,
í frelsarans nafni,
finnst þér gott -bæð'að aftan og framan.