Zionazi
Í nótt hélt nágranni minn fyrir mér vöku með því að hafa sjónvarpstöðina 'Krossinn' í botni inni hjá sér. Þar var Óli Jóhanns að tala um fyrirmyndarríkið Ísrael og hvað Palestínumennirnir/Filistear væru nú vondir, og að við hefðum Biblíuna til þess að sýna okkur að Ísraelsmenn ættu fullan rétt af þessu landi.
Óli er fínn kall, vann með honum fyrir nokkrum árum. En Gunnar Gunnarsson var líka fínn kall, þrátt fyrir furðulegt vinarþel hans til 3ja Ríkisins.
Mér reis löngun til þess að banka að næstu dyrum og kvarta yfir þessum hávaða, þar sem það hljómaði eins og Ólafur væri ekki aðeins inní stofu hjá mér, heldur sæti á rúmi mínu og segði mér sögur af því hversu góðir Íraelsmenn nú eru; en ég ákvað að sleppa því þar sem hægt væri að skjóta því til baka að granninn fílaði ekki 'Floyd og því hefði ég ekkert að segja í þessu máli, og ef ég ætlaði að kvarta þá þyrfti ég að gjöra svo vel að setja hljóðkúta á þær stelpur sem hjá mér gista... (allar 3 íbúðirnar á 3ju hæðinni á Fálkagötu eru skipaðar piparsveinum).
Mér varð hugsað til þess ef ég færi nú og bankaði og hótaði að skella 'Triumph des Willens' eftir Leni Riefenstahl í græjurnar, en mér hreis nú hugur við því þó að ég gæti verið sakaður um Semítaandúð, þrátt fyrir það að ég beri Keffyeh klút Palestínumanna (sem eru jú líka Semítar, ólíkt flestum gyðingum sem eru Azkenazhy gyðingar; afkomendur Khazara frá Armeníu, eða Japhetar og því ekki Hebrear, en Khazarar snérust til gyðingdóms á 9 öld okkar tímatals.), þar sem ég lúkkaði svolítið í hlutverkið í nótt, íklæddur hlýrabol, tattúveraður með norrænum táknum....
Nei. Þess í stað ákvað ég að sofna út frá talandi höfuði Ólafs sem boðaði fagnaðarerindi naZíonismans útfrá hinni góðu bók, Biblíunni.*
Mér varð ósjálfrátt draumgengt um hvað þriðja ríkið og það fjórða, fyrirgefið, 'Landið Helga**' eiga sameiginlegt. Bæði eru útvíkkunarríki, sem hafa sterk tengsl á milli ríkisbálknsins og auðugra samsteypa. Bæði hafa tákn sem álitin eru sér-X tákn af þeim þjóðum sem tákn þessi sér eigna, í miðju sinna þjóðfána. Bæði ríkin eru/voru af meirihluta skipuð þjóðum sem var/er vorkun vegna e-s, Þýzkalandi var vorkun vegna slæmrar útkomu Versalasamninganna og Ísraelum er/var vorkun vegna verulegra slæmrar hegðunar hinna. Bæði ríkin innihéldu einnig stóran minnihlutahóp sem farið er virkilega illa með, og þeir minnihlutahópar báðir lokaðir í Ghettóum, á bakvið múra.
Bæði ríkin krefjast landssvæðis vegna sögulegs eignarréttar, Ísrael skírskotar í Biblíuríkið, sem er talsvert óræð stærð, á meðan 3ja ríkið skírskotaði til hins Heilaga Rómverska Keisaradæmis (sem var ekkert rosalega Rómverskt btw.), sem þó eru til sögulegar heimildir fyrir, utan trúarrita, og stendur okkur talsvert nær í veraldarsögunni.
Bæði ríkin voru ætluð til þess að standa í 1000 ár (YEAH RIGHT! miðað við mannkynssöguna eru 100 ár bara talsvert miklu meira en gott..)
Mér er spurn. Ef ég kæmi fram á einhverri trúarsjónvarpsstöð og afsakaði 3ja ríkið með því að við Germanir værum jú Herraþjóð (eða 'Guðs útvalda þjóð) og skírskotaði í einhvert trúarrit mér til stuðnings, segði öll 'Júðsk' áhrif neikvæð fyrir okkar fólk og að þeir væru jú glæpamenn upp til hópa sem dræpu börn; væri mér ekki stungið inn?
Ég er ekki að segja að Ólafi skuli stungið inn, né nágranna mínum (fyrir að vera það mikill andlegur dvelli að finna sér ekki betra sjónvarpsefni klukkan fjögur að morgni), nei, ég er bara að spyrja hvort að þetta eigi rétt á sér? Er einhver munur á kúki og skít? Er nokkurntíman réttlætanlegt að koma fram í sjónvarpi og útvarpa fordómum gagnvart hópi fólks sem stendur höllum fæti, og hæla kúgurum þeirra?
Mér er spurn?

0 Comments:
Post a Comment
<< Home