þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Varist reykingar


Ég er ekki reyklaus, og held að ég hafi takmarkaðan áhuga á því að verða reyklaus í bráð, sérstaklega þar sem fólk sem hættir að reykja breytist í sjálfumglaða, dómharða fasista. Reykurinn er fíkn, og fíkn er jú sjúkdómur.
Svo er víst að fíkn er oft meðhöndluð af réttarkerfinu sem glæpur þegar fíknin er í ólöglega hluti, en það sem vekur mér furðu er það að Lýðheilsustöð, Tóbaksvarnarráð og Heilbrigiðsráðuneytið hafa jú ákveðið að tóbaksfíkn sé hálfglæpur, enda eigum við reykingamenn oft erfiðara með heilsuna, sérstaklega þegar á efri ár dregur. Því erum við sektaðir daglega í formi aukinna skatta og álags á tóbak, til þess að við getum greitt niður þann 'gífurlega' kostnað sem við völdum ríkinu árlega vegna reykinga okkar.
Ég skil þó ekki hví sykurvara og feitur matur er ekki einnig notuð sem tekjulind fyrir ríkið þar sem feitir eru jú alveg jafn stór böggull á þjóðinni og við reykingamenn. Nú eða bílsstjórar, enda spæna þeir malbik upp í andrúmsloftið, keyra á fólk og hluti og valda mengun og slysum sem ekki eru minni skaðvaldar.
Af hverju reykleysi? Því hræsnararnir sem ríkja hér á Íslandi í okkar félagslega bálkni gera þig að annars flokks einstaklingi ef þú reykir.
Hversvegna reykleysi? Vegna þess að þú neyðist til þess að borga heilbrigðisþjónustu undir feitt fólk sem borðar óhollan mat, drekkur mikið og stundar einstaklega óheilbrigðan lífsstíl, keyrir um beltislaust og veldur stórslysum á sjálfum sér og öðrum sökum þess að þú reykir.
Hví reykleysi? Vegna þess að heilbrigðisfasistar á Íslandi ætla að leggja niður alla skemmtistaði á Íslandi með því að meina reykingar á einkalóðum, sem samkvæmt öllu réttu kæmu ekki ríkinu við.
Afhverju ættir þú að hætta að reykja? Vegna þess að ríkið vill skipta þér að sjálfsákvörðunarrétti þínum sem þú öðlaðist við það að verða fullorðinn einstaklingur og meina þér og hindra þig frá því að neyta löglegrar vöru sem ríkið sjálft flytur inn, því væri best ef þú hefðir aldrei byrjað.
Hversvegna ætti enginn að byrja að reykja? Vegna þess að ef áfram horfir eins og nú með vaxandi heilbrigðisfasisma í Íslenskum stjórnvöldum, gætu reykingamenn endað í útrýmingabúðum í Vestmannaeyjum fyrir það eitt að kveikja sér í löglegri vöru sem þeir borga nánast allt heilbrigðiskerfið með (og það er ekki eins og við reykingamenn borgum ekki tekjuskatt).

Nei. Mín skoðun er sú að það eigi fólki að vera í sjálfsvald sett hvort að það reyki, en það er heimskulegt að byrja á því í dag, úrþví að við vitum af skaðlegum áhrifum reykinga. Nefnilega sviftingu sjálfstæðis, persónufrelsis og réttar til einkalífs af völdum gerræðissinnaðra stjórnvalda. Ég vildi að ég hefði aldrei byrjað að reykja, því ég er fíkill í tóbak, en fíkn mín er orðinn hálfglæpur og næst á ég von á því að ég megi ekki reykja nema undir teppi, með ljósin slökkt.