(92)5250
Það var símanúmer foreldra minna þegar ég fæddist á köldum Októbermánuði á því herrans ári 1981. Fyrir kvartöld síðan. Já. Ég er á miðjum þrítugsaldri. Ef einhver hefði sagt mér hvar ég stæði nú fyrir ca 5 árum síðan, hefði ég hlegið.
Hversvegna ég hefði hlegið er svo önnur saga, en eins og flestir sem hafa lifað á þessari storð í meira en tvívetur vita, þá er sannleikurinn oft ótrúlegri nokkurri lygi, sökum þess þó einfaldlega að hann er miklu verr skrifaður.
Nú er ég búinn að reyna ýmislegt á þessari kvartöld sem ég hef lifað. 1/3 af þeirri ævilengd sem flestir vesturlandabúar geta búist við er fokinn frá mér, og mér finnst samt eins og ég sé ennþá blautur á bakvið eyrun. Þó er ég væntanlega lausari við sakleysi en flestir, enda búinn að sigla marga ölduna, en þrátt fyrir það að hyldýpin opnast og maður virði fyrir sér myrkrið, þá er mér eðlislægt að vera fáránlega bjartsýnn - eða hreinlega bara svona barnalegur. Hver veit nema það komi samt til með að breytast með vorinu...
Við Sætafín ætlum að yfirgefa ykkur í Maí -í hálft ár. Við ætlum að flytja til Spánar í góða veðrið og það verður athyglivert að fylgjast með mér bráðna og brenna í Júlí/Ágústhitanum, en fjandinn... þá verð ég bara með sólarvörn factor #52 innanhúss.
Við verðum hvort eð er væntanlega inni á hásléttu en ekki niðri við strönd, enda er ætlunin frekar að læra Castillískuna til hlýtar en að gera tilraunir með litblöndun frá næpuhvítu til blóðrauðs á húð minni.
Það verður skemmtilegt, þá getum við Sætafín eytt einhverjum tíma saman, maður er orðinn svolítið einmana sem grasekkill í borginni. Sem betur fer er hún að koma heim yfir helgina, og þá fer að styttast í að hún komi af hálendinu og í vesturbæinn í einhvern tíma. Hún má nú eiga það stelpan að hún er fáránlega dugleg og merkilega góð í því að safna sér fyrir ferðum hversskonar. Eitthvað sem ég er alveg ömurlegur í. Það að spara. Það er svolítið gaman frá því að segja, en ég kann alls ekki að spara, hef ekki sparað fyrir neinu síðan '95 þegar ég safnaði klinki til þess að kaupa MAD magazine, og þaðanáður frá því að ég var 5 ára aurapúki og safnaði mér einum 20.000 krónum á hálfu ári - sem hlýtur að teljast afrek miðað við þávirði peninganna og aldur minn á þeim tíma.
Þess vegna ætla ég að safna í ferðasjóð með öðrum aðferðum. Ég verð með tónleika á GrandRokk í byrjun nóv. (nánar auglýst síðar) til þess að fagna því að ég er í það minnsta 1/4 liðinn undir lok og til þess að láta vini mína gefa mér pening í ferðasjóð. Blóm og kransar ss. hjartanlega afþakkaðir.
Ég er ekki kominn með allar upplýsingar á hreint, enda mun ég funda með Þorsteini GrandRokkeiganda á eftir um lykilatriði málsins. Þau bönd sem hafa boðið fram krafta sína eru eftirfarandi: Mezziaz&co (SteveSampling), Noise, Shima, Hraun og svo auðvitað Coburn.
Heljarinnar húllumhæ.
Stay tuned for more info.
Update
Tónleikarnir verða haldnir þann 4/11 klukkan 20:00 og standa til ríflega miðnættis. Áfengi er selt á staðnum og því er fólk beðið að koma ekki með sitt eigið, frítt er inn en fólk má gjarnan styrkja ferðasjóðinn með frjálsum framlögum. 20 ára aldurstakmark (-sem er miður fyrir þá sem ekki eru 20 :-().

<< Home