miðvikudagur, september 20, 2006

Allt hljótt á Vesturvígstöðvunum



Í huga mínum er stormur, slydda og él... Sætafín fór austur á land á sunnudaginn með flugleiðavél.

Við kisustelpan höfum það annars ágætt fyrir utan það, þósvo að við séum á stundum svolítið einmana á Fálkagötunni.

Annars er ég líka farinn að vinna alla virka daga núna, breyttar vaktir. Það er svosum ágætt, ég er hérna 9 tíma á dag og það er um margt skárra en 12 og 1/2 tímar...

Ég er búnað vera afspyrnu dúlegur að semja undanfarið.. held að þetta verði pródúktívur vetur hjá Coburn, enda eru 'A Brief History of Time', 'Ritual Musick' og 'Allt að gerast, allt á sama stað og allir að dansa' á teikniborðinu og allar orðnar sneysafullar af efni. Meira um það síðar.

En jæja. Nóg af röfli í bili.