miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Uppeldi



Ég held að uppeldi hafi ýmislegt með það að segja hvernig einstaklingur maður verður á fullorðinsárunum.
Það er hinsvegar, að ég tel, fáránlegt þegar fullorðið fólk lætur við aðra fullorðna einstaklinga (sem það þekkir ekki) eins og það séu börn sem þarf að ala upp.

Í morgun var maður, sem var n.b. dónalegur til að byrja með, að reyna að fá mig til þess að segja 'gjörðu svo vel'.

Ég er einfaldlega þannig alinn upp að ég gef respect þegar respect er áunnið og er ekki til þess fallinn að láta eins og aumingi ef einhver er dónalegur við mig. Ég ætlaði nú ekkert að vera dónalegur við hann, en mér fannst það ekki vera virði þess að segja 'gjörðu svo vel' við mann sem stendur fyrir framan skilti sem á stendur 'Sýnið tillitssemi - Ekki tala í GSM síma' með GSM síma og talar í hann. Mér fannst það einfaldlega ekki virði þess.

Að svona líka dóni ætli að vera með þann derring að hann ætlist til þess að ég verði kurteis og láti hann ala mig upp á meðan hann er með yfirgang og dónaskap! Fucking hell. Ég er alltaf að komast nær því að biðja um leyfi frá framkvæmdastjóra Kynnisferða til þess að fá að hella mér yfir þá einstaklinga sem eru dónalegir við mig.. þá get ég líka bara farið úr peysunni og bent á að ég sé kominn í kaffi og sé ekki í vinnuni lengur!!

Talandi um uppeldi, þá eru ekki allir þeir kúnnar sem hingað koma dónar og fífl.

Verbinski mæðgur, þær Claire og *Mama* Verbinski, systir og móðir Gores V. komu hér og geymdu farangur sinn hjá mér. Voru þær báðar afspyrnu kurteisar og ljúfar og tipsuðu mig um 500 kall og Trópí flösku. (Ólíkt þeim hundruðum sem hlaupa hérna fram og aftur og varla brosa...) Verbinski Grrls, you rock :D.

Eins kom hingað æðislegur náungi, Appolo frá NY. Hann lét mér eftir vinylplötur tvær og smáskífur á geislaformi sem ég kom í nokkrar mismundandi hendur, innihalda þær skífur upptökur af söngli hans við hið aldagamla Jiddíska þjóðlag 'Hava Nagila'. Mjög gaman að þessu. Kannski ekki beint tónlist eins og ég myndi skapa, eða útsetja, en smekkur manna er jú misjafn, og þetta er alveg andsk. hressandi. Set upp link seinna, og þá mynd sem prýðir umslag plötunnar, en þar sést hinn æðislegi Appolo íklæddur Keffyeh klúti, Davíðsstjörnum, krossum, Rastasvitabandi og gervilim (ekki nef), Hitler-skeggi, furðulegu augnmeiki og svo framvegis... Appolo, you the man!

Þegar mér er hugsað til þess hvað þetta fólk var alltsaman afspyrnu kurteist og skemmtilegt og Bílstjórafávitinn í morgun leiðinlegur, þá verð ég að segja að oft eru Íslendingar skítapakk...

Jæja..

Nóg í bili.