Halló
Ég fór í bæinn í dag og fékk mér varanlegt.
Ég á hvíta strigaskó með topplúgu
Ég er að fara að flytja bráðum.
Er kominn með íbúð á Whazzteek. Eða Vatnsstíg. Man ekki hvort.
Það verður í hæsta máta hressandi. Þá getur maður farið að gera eitthvað af viti.... og gengið í og úr vinnu.
Veit einhver um hlaupahjól sem þarf nýjan eiganda, eða hvar ég gæti fengið varadekk á mitt eigið? Það myndi stytta vinnuför mína um alveg 5 mínútna labb...
Ennishús. Ég kem til með að halda smáteit þegar við kisa verðum búnað koma okkur (og vonandi sem oftast Sætufínni, stúlkunni sem ég hef minnst á í fyrri færslum..) fyrir.

<< Home