Emotional Blackmail
Ég var að lenda í athygliverðu atviki hérna í vinnuni.
Þýzk kona um fimmtugt kom hingða með frauðkassa fylltan fiski og spurði mig hvort hún gæti geymt kassa þennan (7,9kg að þyngd) til klukkan 11.
Ég jánkaði og sagði henni að það kostaði 400 kr.
Sem er ekkert sérstaklega ódýrt, en það er standardverð.
Kona þessi sagðist eiga 250kr, og fyrir flugrútunni, enda hefði hún gefið 'ein kinder' síðasta peninginn sinn. Ég sagði henni að ég gæti því miður ekki breytt lágmarksverðinu sem mér væri sagt að rukka fyrir geymslu.
Þá muldraði þessi kona fyrir sér eitthvað á Þýzku um ástand heimsins og kaldlyndi fólks. Ég ranghvolfdi augum*.
Hún tók kassann sinn, kjökrandi og gekk að borði sem er fyrir framan pakkamóttökuna þar sem ég vinn. Þar tók hún um höfuð sér og kjökraði.
Ég hef mjög takmarkaðan áhuga á því að hafa grátandi túrista fyrir framan borðið mitt þegar ég er að reyna að líta út fyrir að vera að gera eitthvað, svo ég hóaði í hana og bauðst til að geyma kassan til hliðar hjá mér (ekki í geymslunni) endurgjaldslaust. Hún tók gleði sína á ný og tók að segja mér sögur frá því að þetta væri 5 húsbílaferðin hennar til Íslands og hélt áfram að babla um Norrænu, flugrútuna, sprautur á Landsanum og svo framvegis. Ég hélt áfram að reyna að spila Tetris óáreittur.
Kona þessi spurði mig hvort ég seldi miða í flugrútuna sem ég kvaðst ekki gera, benti henni á réttan bás og færði mig út í reyk á meðan, svo hún hlífði mér frá frekari sögum. Ég tók svo eftir því að hún hafði tipsað mig persónulega um heilar 250kr sem hún hafði falið í límmiðarúllu sem ég hef mér til handagagns ef fávitar halda að þeir komist upp með að senda pakka ómerkta á rútuna (og hringja svo daginn eftir í mig og væla viðstöðulaust yfir því að pakkinn týnist).
Ég áttaði mig skömmu eftir á því að ég hafði látið glepja mig í tilfinningalega fjárkúgun að hætti 5 ára barna. Mér þykir þetta afar fyndið, en ég hafði engin önnur úrræði, ekki gat ég farið að rukka fólk fyrir að koma til mín og horfa á miðaldra Berlínarkonu gráta.
^~^~^~^~^~^
Skömmu síðar kom til mín Bresk kona sem spurði mig.
UK"Do you speak English
ÉG"Yes, incidentally, I do.
UK "Oh, great, are you English?
ÉG "Look at my teeth and ask me that again"**
*as you do...
**Ekki alveg.. en hafa skal það sem fyndnara reynist.

<< Home