fimmtudagur, apríl 27, 2006

Mikil Tíðindi!!



Hin ofurmagnaða rokksveit Coburn og hin ofurmagnaða sveit Noise munu halda tónleika á hinu ofurmagnaða öldurhúsi Dillon þann ofurmagnaða 30 apríl og flytja ofurmagnaðann skrílinn yfir í ofurmagnaða aðfaranótt verkalýðsdagsins.

Tónleikarnir munu hefjast á hinum ofurmagnaða tíma 22:30 og eru það Coburn sem fyrstir stíga á hið ofurmagnaða svið, sem er í rauninni bara horn.

Munu Coburn spila sitt ofurmagnaða prógram sem er í bland bæði þekktari smellir sveitarinnar og sýnishorn inn í komandi ofurmagnaða plötu 'A Brief History of Time'.

Noise munu flytja ýmislegt ofurmagnað efni af sínum ferli og hver veit nema eitt og annað af ofurmagnaðri nýútkominni plötu þeirra slæðist með.

Ég vil hvetja alla til þess að mæta, eður vera ofurmagnaðir ferhyrningar.

Magnað.

(Orðaforði þessarar færslur var keyptur á seint greiddum launum, so spare me.)