föstudagur, mars 24, 2006

Ravi Shankar á Meskalíni


Djöfulsinsdauðiogdjöfull.
Ég er búnað vera að reyna að meika sens úr öllu bullinu sem gerist í kringum mig, en mér sýnist það ekki vera að virka neitt svakalega vel.
Það er nú samt gaman frá því að segja að hlutirnir ganga svona 50/50.

Ólíkt orðrómum um annað er ég ekki búnað drepa sjálfan mig, sem er vonandi gleðilegt.

Ég er líka ennþá einhleypur, sem er legt, hvorki gleði né leiðin, bara legt.

Hljómsveitin hljómar ennþá drulluvel og tónlistin okkar er mun betri heldur en hjá þessum diet-rokk sveitum og öfgametal. Millivegur öfgana er langsamlega bestur.

Ég komst ekki til þess að sjá Laibach á miðvikudaginn. Það gerir mig Furious.

Ég er að opna aðra búð á netinu með nýjum varningi. Coburn varningi. Það verður hressandi. Kemur upp í næsta mánuði. Þá getið þið keypt Coburn boli með einhverjum esoterískum galdratáknum og nafni sveitarinnar og svona.

Getið til dæmis keypt bol með svona mynd á.

Tíminn líður, lífið heldur áfram og djöfulsins æfingar á manni að vera að vakna svona fyrir allar aldir.

Anyhues.

Lag dagsins er Sober með Tool. Hnjótið.