Helgur Patti
Jú. Í dag er dagur heilags Patreks, verndardýrlings Írlands.
Ekki frásögu færandi í raun, þótt að afbragðs fyllerísafsökun sé um að ræða. En þegar við tölum um St.Paddy's sem fyllerísafsökun erum við samt umtalsvert að missa af punktinum. Þó að milljónir Kana klæðist grænu og drekki (oj) grænan Guinness breytir það ekki undirlagi hátíðarinnar sem er Heilagur Padraig - sá sem hreinsaði Írland af snákum...
Afsakið mig kæru Harry-Potter aðdáendur... en ÞAÐ VORU ALDREI NEINIR SNÁKAR!!!
Það voru aldrei snákar á Írlandi eftir síðustu ísöld og það er vitleysa að halda öðru fram. Væntanlega var um druida Írlands að ræða- sem notuðu snáka mikið sem tákn.
Það að Íslendingar taki upp á því að fagna Breskum menningarnauðgara sem fór til Írlands og boðaði gyðingdóminn þar þykir mér fáránlegt, en margir gera það samt. (Já, þið lásuð rétt, ég kallaði kristni gyðingdóm, þetta er allt af þeim meiði runnið upprunalega, engin mórall, þetta er bara satt.) Við gætum líka fagnað Haraldi Hárfagra og Ólafi Hvíta fyrir að hafa þvingað Íslendinga til kristni. (Sem reyndar var gert árið 2000. Takk sr.Karl Sigurbjörnsson, næst fagnaru Kópavogsfundinum, Móðuharðindunum og Tyrkjaráninu)
Nú þekki ég mikið af kristnu fólki, (og er oftast um gott fólk að ræða, en það má líka segja um trúlausa)og mig langar að fólk spyrji sig einnar spurningar. Afhverju eru trúboðar gjörsamlega siðlausir og samviskulausir gagnvart menningararfi annara þjóða? Afhverju þurfa þeir að eyðileggja sögur og kvæði, helgimyndir og altari, hvers vegna telja þeir sig betri?
Persónulega er ég á þeirri skoðun að strangkristnir/moslimskir/gyðinglegir, sem eru oftar en ekki fordómafullir í garð annara trúarbragða, séu til vandræða. Margir þeirra hafa viðrað þá skoðun undanfarið gagnvar Moslimum, (sem eru jú líka gyðingar) að þeir skuli sendir heim. Mér þykir það rangt að gera upp á milli gyðingdómanna 3gja og því segi ég að annaðhvort verði þessum fordómum þessara storu trúarbragða sín á milli að lynna, eða við sendum þá alla heim, sama hvort þeir séu komnir í beinan karllegg af goðunum sjálfum- játiru trúarbrögð fordómapésanna verðuru sendur af eynni.
Ég ætla samt að fá mér öllara eða tvo í dag, því ég get drukkið til rísandi sólar, frjósemi og gleði - og svona til þess að fagna því að rómverjar kunnu að naglfesta ætla ég að fá mér súkkulaðiegg.

<< Home