miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Stubby



Já mér var tekið með vigtum (ekki viktum)og mér tjáð að ég líti hamingjusamlega út (kominn með bumbu) þegar ég gekk í Dónabúðina áðan.
Ingvar GTI sagði mig augljóslega vera með meira en 100.000 kr á mánuði - sem ég reyndar er.. þó rétt varla. Ég held samt að það sé ekki því að þakka að ég er með þessi *gríðarlegu* laun sem ég hef bætt á mig. Öðru nær.
Við sem erum með lág laun í þessu þjóðfélagi, erum einhleyp og búum ein þurfum aðeins hærri tekjur en þetta. Það nennir enginn að elda ofan í einn, það er peningasóun. Góður og hollur matur kostar meira en svo að menn geti leyft sér að borða slíkt á hverjum degi.
Þeir sem hafa lág laun hafa líka minni tíma til þess að stunda líkamsrækt, og oft er fólk í störfum þar sem lítil hreyfing fer fram. Ég sit við tölvu alla daga. Ekki mikil hreyfing í því.

Gæti verið að lág laun stuðli að vanheilsu starfsfólks um land allt?
Gæti verið að á meðan fólk lifir af launum sem varla eru mannsæmandi sé það að stuðla að frekari vanheilsu sinni? Gæti það verið að þessi stefna - störf verða aðallega innandyra, lág laun, skyndibitar ódýrasta lausnin - muni leiða til þess að Íslendingar verða jafn feitir og Bandaríkjamenn?

Stuðlum að aukinni hollustu, hækkum laun!