.. Bókasafn
Ég var að hugsa um svolítið sem vinkona mín sagði við mig fyrir ca 1-2 árum síðan.
-Að ég ætti helvíti lítið af bókum miðað við annars vel lesinn einstakling.
Mig minnti að eitthvað af þessum bókum væru hérna á Álftanesinu og ég hafði engar áhyggjur af þvi.
Svo fór ég að spékúlera..
Ég hef alla tíð verið þannig maður að ég hef lánað bækur. Bækur eru nytsamlega fyrir hvern sem er, enda auðga þær vitneskju og ímyndunarafl hvers sem les þær, sama hversu léleg bókin er. Ég hef lesið bæklinga frá Krossinum sem skildu mig samt eftir auðugri þrátt fyrir að vera innihaldssnautt heimsendarúnk.
Bækur sem ég hef lánað hafa hinsvegar haft gott lag á því að skila sér ekki. Mér reiknast að ég eigi um það bil 4-5 kassa af bókum, gefnum út á árunum 1850-2004 sem ekki eru undir mínum höndum. Eru ekki lengur í minni nærveru, eru ekki að koma mér til góða - en ég hef gaman að því að lesa bækur aftur og aftur og aftur og aftur.
Það versta við þetta er að ég er maður sem er með fremur sérstæðan smekk og ég gæti þessvegna alveg eins öskrað á einhvern fyrir það að gefa mér asnalega bók (..ég er erfiður á stundum).
Þessvegna ákvað ég að vera svolítið meira en sniðugur og útbúa hérna góðan lista á Amazon.com með bókum og ýmsu sem ég væri alveg til í að fá gefins ef einhvern langar til að gleðja litla sæta mig, þar sem ég er nú lasinn heima hjá foreldrum mínum og hef fátt til þess að stytta mér aldur við.
annars er ég bara að vera heimtufrekur.

<< Home