Who?
Snæði!
jamm og jú, ég er maður verstu brandara í heimi.
Ég fer að flytjast búferlum bráð-leg. ah.
Ég er mjög sennilega barasta meiraðsegja að fara að kaupa mér íbúð í wezzide.
Það er alveg afspyrnu hressandi - fyrir utan það að þeta er kannski helst til nálægt KRingum og KRvellinum og því öllu.
Mér þykir það samt ekki verra en það að ég er barasta hinn hressasti þessa dagana og sé einhvernvegin enga skugga á raunveruleikanum.
Ég held að sjaldan eða aldrei hafi ég verið jafn fókusaður og ákveðinn í því sem ég ætla að gera- verð samt að hyggja að þvi að það er enginn leikur búinn fyrr en feita kellan gaular og fullt af feitum kellingum geta manni reynst þúfuljár.
Iðnaðarmenn eru dæmi um svoleiðis.
Ég vaknaði klukkan 0900 í morgun við hávaðann sem Steinunn Valdís samþykkti víst án grenndarkynningar -úr næsta húsi.
Ég sem sæmilega vel greindur einstaklingur gerði mér grein fyrir því að ég þyrfti að sofa til 10 (svefnklukkan mín verður að vera nákvæm svo dagurinn sé ekki ónýtur..) og ég var enganvegin að nenna að stökkva yfir girðinguna og lemja sveitta húsasmiði til þagnar fyrir skitna kríu, svo ég - afsakið - snillingurinn ég stakk klósettpappír í eyrun til þess eins að geta náð mér í kríu - síminn minn er með víbring og ég get vaknað við hann í gegnum koddann...
nema hvað að ég náði ekki að festa almennilega kríu fyrr en 0950...
Engu að síður er svefnklukkan mín þannig að hún þarf ákveðið magn - ekki meira né minna.
Ég vaknaði klukkan 1100 (mætingartími minn) við það að hringt var í símann og ég víbraði eins og hjálpartæki ástarlífsins. Þökk sé Karíusi og Baktusi á Njálsgötunni sem eru svo duglegir að bora sér út húsnæði úr tönninni við hliðina á minni, mætti ég 40 mínútum of seint (ég þurfti á sturtu að halda).
Takk Steinunn Valdís fyrir að samþykkja þessa rótaraðgerð í jaxlinum við hlið minnar vísdómstannar á Skarphéðinsgötutanngarðinum, takk. Ef ég missi vinnuna líka - eins og ég missti af tækifærinu til þess að geta haldið áfram í námi og lifa sómasamlegu lífi á sama tíma vegna R-Listans, missi ég algjörlega alla virðingu fyrir vinstri -miðjumoðinu á Íslandi. Ég er fyrir löngu búinn að missa álitið á hægri, og nú gerið þér mér þetta?
Sem betur fer er ég að flytja.
En ef ég mæti seint í vinnuna aftur útaf þessum framkvæmdum þá kýs ég... að segja ekki frá atkvæði mínu.

<< Home