Hot Patootie - Bless my Soul!
I really love that Rock'n'Roll
Tónlistin mín er líf mitt. Þið sem þekkið mig vitið það.
Ég er að spá í að taka líf mitt öðrum hönskum núna, eins og ég minntist á í síðustu færslu.
Ég held ég sé samt ekki að fara að breyta tónlistinni minni mikið, ég var eiginlega meira að meina tónlist lífs míns.
Nema hvað.
Undanfarið ár eða svo hef ég verið að fikta meira við alternate stillingar, DAEADE, DADGAE, DADGAD, CFCFCF, EBEG#BE og svo framvegis, líf mitt hefur hinsvegar verið í mjög áþekkum stillingum og áður. Það rann upp fyrir mér í gær, þar sem ég nota að staðaldri 11° strengi í gígju sem hefur verið notuð með 10° í 40 ár og stilli upp og niður eins og mér væri borgað fyrir það að ég þurfti að stilla innbyrðis, gítarinn minn er með lausum stól og því þarf að stilla staðsetningu og hæð hans í samræmi (þannig að lausir strengir séu réttri áttund frá streng sem spilað er á áttund ofar og allt rétt þar á milli).
Þetta var ekkert ofurauðvelt, öðru nær, sem betur fer á ég KORG AW-1 túner sem uppáhalds manneskjan mín gaf mér í jólagjöf.
Ég náði þessu, þótt ég væri svolítið rokkskaddaður þá tókst þetta.
Veit ekki hvort að ég þurfi að fá mér túner á eigið líf, en ég held nær örugglega að ég þurfi að stilla sjálfan mig aðeins innbyrðis. Spurning um hvernig ég fer að því.
Spurning...
Einhverjar Uppástungur? (Nei, ég er ekki að bjóða í "uppá-stungur" og ekki "upp-ás-tungur". "Upp-ást-ungur" er bara bull. Komið með hugmyndir.)

<< Home