miðvikudagur, janúar 11, 2006

Eiturpennar


Niður með óábyrga ritsjórnarstefnu DV!!!



Ég sver það, meiraðsegja Hearst hefði skammast sín fyrir þessa ónærgætnu stefnu.


Hversvegna þarf sífellt að klæmast á versta sora mannlífsins í stórum fyrirsögnum?
Hversvegna kveður DV upp dóma götunnar yfir mönnum áður en þeir eru dæmdir fyrir dómstólum?

Í gær tók maður eigin líf eftir að DV birti mynd af honum á forsíðu, nafn hans og staðhæfingu um að hann nauðgi drengjum.
Ég ætla ekki, ólíkt DV, að ákveða hvort þessi maður var sekur eða saklaus. Hinsvegar get ég lofað ykkur því að DV kom þarna í veg fyrir að réttlætið fengi fram að ganga, hann yrði sýknaður eða sakfelldur. DV kom líka í veg fyrir það að meint fórnarlömb þessa manns fengu bætur sínar.
DV felur sig á bak við fyrirslátt eins og að þeir séu að sinna þjóðþrifaverki með því að birta mynd af einhverjum kauða á Ísafirði? Ísafjörður er lítið pláss. Þar þekkja allir alla og erfitt væri þessum manni að dyljast hvort eð er...

Ég held að nú, höfum við Íslendingar í fyrsta sinni orðið vitni að því að pressan hafi drepið mann, sama hvort hann var sekur eða saklaus, þá eru böðulsréttindi DV ekki stjórnarskrárbundin og ættu þeir kumpánar hjá DV að hafa vit á því að skammast sín og breyta um stefnu.