Jólnir
Ég hef mikið heyrt og sagt frasann 'Gleðileg Jól' undanfarna daga.
Færri gera sér grein fyrir því hvaðan orðið jól kemur, en þar eru margir möguleikar þó einna helst detti mér í hug tvennir möguleikar.
Jólnir var eitt nafna Óðins, og tengingin við heiðinn sið er augljós. Jólnir er samt talsvert merkingarlaust, nema að maður brjóti niður orðið og sæki mögulegar útskýringar. Jólnir gæti verið tengt orðinu Hjól, þar sem nú rýs sól á loft á ný, eftir ragnarök hvers árs þegar náttúran sigrar í dauðabaráttu sinni gegn myrkrinu. Í Ragnarökum berst Óðinn née Jólnir við Fenrisúlf og báðir farast. Úlfur étur Sólu, sem þó fæðist á ný, þá er spurningin kannski hvort Jólnir sé tilvísun í hross Óðins, Sleipni - Uggs-drösul- og þá tengt inn á annað heiti Óðins sem rétt eins og Jólnir vísar til Jóla - Jólfur (Jó-ólfur). Jórinn var jú þarfasti þjónninn, en ég er samt ekki alveg 100% sáttur við skýringuna að Jól séu Hesta&Úlfamót... en þar sem Goð á fráum fákum sækja hratt að óvættum og úlfum með augu eins og Sívalaturn í Ragnarökum og við upplifum eilítinn heimsendi hvert ár þegar Sóla hefur gengið til hvílu í myrkrinu og nýr hringur hefst - aftur komum við að Hjólinu....
Hvernig svo sem það virkar, þá tengist orðið Jól ekkert kristinni trú, enda fæddist Ieshua væntanlega í Ágúst eða September að mati fræðimanna og því vil ég ekki draga þann ágæta dreng inn í þetta frekar, þósvo að ég virði það að kristni á rétt á sér, þá er sögufölsun sögufölsun og sannleikurinn sagna bestur - við erum að fagna sigri ljóssins, ekki ósvipað því sem kristnir segja páskahátíðina - Oestara snúast um (enda augljóslega tilefni til þess að snæða súkkulaðiegg þegar búið er að negla vesalings manninn uppá spýtuna)
Ég sé litlar ástæður til þess að hafa þetta lengra, þó ég gæti eflaust bullað endalaust um það hvað Jól þýða og hvernig fólk virðist alveg missa af sjálfum sér í verzlunarösinni, sem þó á fullkomlega rétt á sér.
Jólin eru nýgengin í garð samkvæmt landslögum og vil ég því segja;
KWANZA!!
erh..
FESTIVUS!!
eerrh..
CHANUKAH!!
uhhmm.
KYNDILMESSA!!
eða bara

<< Home