þriðjudagur, desember 20, 2005

Gillzenæð og Léleg Blaðamennska


Nú hafa mál Eyva vinar míns Karls farið mikinn á netinu undanfarna daga.
Eyvindur, skrifaði grein um grunnhyggni samfélagsins, um þröngsýni fegðurðarunnenda og hundasýningar þar sem konur eru sýndar rétt eins og um Pedigree-tíkur væri að ræða, en ekki skyni bornar konur. Sem ég gerði einnig, eins og sjá má hér, en sem betur fer olli það engu fjaðrafoki.

Það skemmtilega við þetta mál var að Egill nokkur Gillzenegger Einarsson skrifaði grein um greinina hans Eyva (sem er þónokkuð skondið þar sem Eyvi var nýbúinn að skrifa grein um Gillz og Hnakkamenninguna- reyndar svolítið stolinn brandara frá Bill Hicks...)

Gillzenegger, sem jafnan er talinn einhver harðasti framvörður hnakkamenningarinnar virðist ekki alveg vera jafn harður og hann þykist þegar hann tekur af skarið og ræðst, að vanda, á yfirborð Eyva og hefur þau sterku rök, að Eyvindur hljóti að vera Abbó (það er satt, hann hefur marg oft lýst yfir vilja sínum við það að vera Miss World við mig).

Ég hef hlaupið til og kommentað og lesið komment lesenda Gillz og lesenda Eyva og það er alveg merkilegt hversu margir virðast EKKI lesa greinarnar áður en þeir kommenta. Egill Gyllinæðer er reyndar ekki einn þessara, en fylgissveinar hans eru að sjálfsögðu það málefnalegir að þykjast getað atað persónu Eyva drullu með málefnasneyddum kommentum sbr "hann er feitur og abbó"

Allt gott og blessað.
Eyvindur er það klár strákur að hann ætti að gera sér grein fyrir því að það tekur því ekki að vera að ráðast á hnakkasamfélagið, þar sem þessar manneskjur sem takmarka sig við útlitið eingöngu eru það vel heppnaðir einstaklingar að það er ekki hægt að hagga þeim frekar en múrsteinsveggir eru viðræðuhæfir fyrir einstaklinga sem vilja svör.

Hinsvegar verð ég nú að segja frá svolítið skemmtilegu máli.
DV lýsti yfir áhuga við Eyvind um að birta litla grein um þetta mál. Gott og blessað, það er alltaf gaman að fjalla um netrifrildi í gúrkutíð. Brynja Björk Garðarsdóttir blaðakona hringdi og tók við Eyvind viðtal, sem greinilega hefur sannað hana Brynju okkar sem eina af þeim einstaklingum sem lýst er hér að ofan.

Grunnhyggna, takmarkaða, vændis-penna afsökun fyrir blaðamann. Ég ætla ekki að ráðast hér á persónu Brynju, en guðirnir mínir hálfmáttugir hvað ég vorkenni þér Brynja að þurfa að vera svo mikil vændisblaðakona að þú þurfir að skrifa auglýsingar úr svona rifrildum.

Gillzenæðin er eimmitt að byrja með Sjónvarpsþátt. Ekkert sérlega frumlegan þátt heldur Hnakk-eye for the arty-guy. (Frábært, GRUNNHYGGNU FÁVITAHJARÐIRNAR GETA SLEFAÐ YFIR ÞESSU!!!) Þáttur þessi verður á sjónvarpsstöðinni Sirkus. Sirkus er í eigu fyrirtækis sem heitir 365. DV er í eigu 365. (Eyvindur var reyndar líka í eigu 365.. en hann fékk gullkind og er ekki lengur á meðal sjónvarpsefnis)

Sá einhvert ykkar smá munstur í síðustu línu.

365 Illa skrifaðar
auglýsingar



Brynjab Dv blaðakona, sem ekki ritar undir nafni (ég fékk þetta nafn þegar ég hringdi uppá DV til þess að fá upplýsingar fyrir þessa grein) sínir okkur sína innri manneskju þegar hún beinlínis lýgur að lesendum sínum (sem fæstir taka DV alvarlega þó..) að Eyvindur glotti og segi "Unnur Birna er andlit Miss World og þess vegna réðst ég á hana". Ég gerði mér grein fyrir því að snápar DV væru allstaðar, en það að þeir sjái svipbrigði á manninum í SÍMAVIÐTALI er ótrúlegt. Ennþá ótrúlegra þykir mér að Gillz og Brynja sjái ekki að hnakkamorð, sem talað er um í greininni, var djók. Skemmtilega lítill húmor þar á ferð.

Næst er talað um greinina hans Eyva um Gillz og félaga, en fyrir þá sem eru með löskuð húmorbein þá var hann að GRÍNAST kannski ekki smekklegasta grín í heimi, en þið getið fengið ágætis útskýringu á gríni á wikipedia, það er fyrir ykkur sem kunna að lesa. Þeir sem eru þetta langt komnir í greininni og eru ekki að átta sig á því hvert stefnir eru vinsamlegast beðnir að leggjast niður.

Eyvindur er feitur maður. Það er frábært. Hann er líka mjög góður maður, með sterka siðferðisvitund og góða sál. En þar sem hann er ekki fegurðardrottning þá er alltílagi að ráðast á útlit hans í DV til þess eins að auglýsa sjónvarpsþátt á 365 miðlum. Ef Eyvindur hinsvegar skrifar grein um yfirborðskennd samfélagsins með því að bauna á manneskju sem búin er að gera sig að ALMANNAEIGN OG ANDLITI FEGURÐARSAMKEPPNA þá er hann náttúrulega stríðsglæpamaður sem senda skal til Haag og flengja og steikja á teini. Mér skilst að einnig hafi því verið beinlínis logið að Eyvindur hafi talað um slátrun á þessum verðlaunagripum. En ef fólk sér ekki samlíkinguna á milli MissWorld og Sláturtíðar þá ætti fólk ekki að starfa þar sem lesturs krafist er.

Gillzenegger og Brynja fara beinlínis að lýsa yfir vilja til þess að breyta Eyva í hnakka. Að sjálfsögðu í sjónvarpi, á 365. Einhver að sjá munstur? Þvínæst setja þau útá kurteisi og framkomu Eyvindar. VÁ! þið eruð heppin að hafa ekki hitt mig ef það að vera greindarlega spurnarfullur gagnvart tregðu samfélagsins er dónaskapur í ykkar augum. Þið hraunið eins og drullupésarnir sem þið eruð yfir útlit Eyva og þykist kurteisir? Kenndu mömmur ykkar enga mannasiði? Brynja, ég ætla að gera ráð fyrir því að þú sért sæmilega meðalgrein manneskja víst þú getur haldið á penna fyrir 365. Ég ætla að vona að þú skiljir að það kemur Spaugstofunni ekkert við hverjar skoðanir Eyva eru og það er óþarfi að sýna fram á lágkúru með því að vera að draga pabba Eyva og samstarfsmenn hans inn í málið. Réttara væri að draga mömmu Gilz í þetta, því hún hefur ekki kennt litla hnakkanum sínum að dæma ekki eftir útliti.

Þið eruð ástæðan fyrir því að menn eins og ég og hann Eyvindur skrifum greinar um grunnhyggni. Ekki nóg með það að þið eruð smekklausir sjálfsauglýsendur. Ekki nóg með það að þið eruð hrokafullir bastarðar sem dæmið eftir útliti. Þið eruð sönnun eftirfarandi yfirlýsingar.

Beauty is only skin deep, but ugly goes to the bone