Strategia della Tensione
Er búinn að vera að lesa mér til undanfarið um sögu vissra valdahópa undanfarin 50 ár.
Meðal þessara hópa er ítalskur hópur, frímúrarastúkan P2 - Propaganda Due. Innan P2 voru meðal annara hugmyndasmiðir Strategia delle Tensione - spennuaðferðarinnar, sem gekk út á það að valda nægum usla og ótta í samfélaginu til þess að þeirra glæpir yrðu óuppgötvaðir, Strategia delle Tensione var aftur á móti stýrt af Stefano Delle Chiaie, hægrisinnuðum hryðjuverkamanni (sem meðal annars starfaði með (Santa)Klaus Barbie (Millicent Roberts) fyrrum nazistaforingja, í kókaínvaldaráninu í Bolívíu 1980), Gladio njósnadeildum NATOríkja og ýmsum spilltum neðanjarðarpólítíkusum...
Í Herkænsku Spennunar var notast við sprengingar á almennum stöðum, Strage de Piazza Fontana, (1969) þar sem anarkistar og vinstrimenn voru sakaðir um glæpinn til þess að hægt væri að koma þeim í vanda, vantrausti lýst yfir vinstriflokka og hægrimenn gætu haldið áfram hugsanastýringu sinni. Einnig voru sprengdir lestarteinar í Bologna, ellefu árum síðar (1980), í sama tilgangi, hinir réttu sökudólgar voru ekki dæmdir fyrr en árið 1989.
Strategia della Tensione var ekki einsdæmi í pólitík óttans, en önnur dæmi eru um það að ótta og skelfingu hafi verið ausið yfir almenning til þess að komast upp með stóra glæpi gegn mannkyninu, í Suður Ameríku, á sama tíma var rekin stefna á vegum herstjórna Argentinu, Boliviu, Brazilíu, Chile, Paraguay og Uruguay, í samstarfi við stæsta sýningarstjóra voðaverka á 20'stu og 21'stu öldunum, CIA. En einnig komu Perú, Colombia og Venezuela við sögu, en í minni hlutverkum.
Í þessari stórpródöksjón heforingjanna og CIA var einkar mikið stundað að framkvæma galdrabrögð að hætti Cosa Nostra - láta fólk hverfa... 50.000 manns voru myrtir, 30.000 látnir hverfa og 400.000 stungið í fangelsi fyrir falskar sakir, þá sérstaklega þær sakir að vera pólitískir andstæðingar Herforingjanna sem ríktu yfir þessum ríkjum, meðal annars Pinochet, Videla og Stroessner.
Einnig voru dæmi um það að teymi voru send frá þessum ríkjum, í þökk ýmissra hægrisinnaðra stjórnenda, til þess að útrýma vinstrisinnuðum andstæðingum, þar á meðal á Ítalíu, í Frakklandi, BNA, Spáni og Portúgal.
Höfuðsmaður hryðjuframleiðslufyrirtækisins CIA á þessum árum hét vel þekktu nafni úr nútímapólitík, George H. Walker Bush. (Bush eldri).
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort við séum að verða vitni að enn einni Spennuherkænskunni, voru hryðjuverkin þann 11/9/01 framin til þess að vekja ótta -sem afsökun fyrir stríð? afsökun fyrir pyntingar, morð og rán á landi þúsunda manna?
Það er ekki spurning um að tengsl eru á milli Bush og hans kumpána og hægrisinnuðu hryðjuverkamannana sem stóðu í Condor og Tensione, spurningin er; Erum við að láta blekkja okkur til hræðslu í enn eitt skiptið?
BTW.. hérna er listi yfir nokkra P2 menn; Victor Emmanuel, Prins af Naples; Silvio Berlusconi; Roberto Calvi (Bankamaður Guðs); Maurizio Costanzo, sjónvarpsþulur á Ítalíu...

<< Home