Kitl
hann Geyvindur kitlaði mig
7 Hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey
1. Spila á CBGB's
2. Base-jömpa af Norskum fjöllum, svo freebasea Norsk fjöll.
3. læra á sítar
4. Lemja David Letterman, live
5. Gefa út nokkrar plötur í sama mánuðinum og segja öllum að ég sé bara svona gífurlega frjór (þó ég hafi verið að safna efni í 20 ár)
6. Verða flúent í tungumálunum sem ég get staglað í
7. Gera heimildamynd.
7 Hlutir sem ég get gert
1. Verið ófyndinn.
2. Spilað á gítar, píanó, orgel, Euphonium, og Ekkert sérstaklega illa.
3. Teiknað
4. Framkvæmt afspyrnuvondar hugmyndir
5. Talað endalaust um allt og ekkert
6. Hlegið að aðstæðum
7. verið ógeðslega góður í rúminu (ask around!)
7 Hlutir sem ég get ekki gert
1. Kosið sjáfstæðisflokkinn
2. verið vondur við dýr
3. Fílað Gíslamartein
4. Hlustað á Íslenskar sveitaballasveitir
5. Stutt ríkisvaldið
6. Fellt mig við hluti eins og skipulögð trúarbrögð og stjórnmálaflokka og annað pakk sem vill að fólk hugsi á einhvern ákveðin máta
7. Verið vondur við ketti og séð hvað í fjandanum Eyvindur fílar við stökkdýr
7 Hlutir sem heilla mig við hitt kynið
1. Húmor.
2. Konur sem eru góðar við köttinn minn
3. Ég er rosalega mikill sökker fyrir dökku hári og ljósum (grænum, grænbláum) augum.
4. Þolinmæði, þegar fólk er jafn mikið fífl og ég þá þarf maður þolinmæði
5. Metnaður
6. Konur sem kunna á hljóðfæri (alltaf jafn ótrúlegt..).. ég veit ekki afhverju, gæti líkast til verið vegna þess að konur sem kunna á hljóðfæri og semja eigin tónlist gætu skilið mig betur
7. Off takki. Stundum nenni ég ekki að blaðra.
7 Frægir kvennmenn sem heilla mig
1. Alyssa Milano
2. Christina Ricci
3. Brynhildur Guðjóns.
4. Debbie Harry (ca 1980)
5. Sophia Loren (ca 1960)
6. Gina Lollobrigida (ca 1960)
7. Nico (ca 1960)
7 orð sem eg segi oftast
1. Góðandagetégaðstoðað
2. Þessi vinna er að drepa sálina í mér
3. Má ég sparka?
4. það gera 2500 krónur. vessogú.
5. Ekki skíta í sturtuna!!
6. uhhuh, uhhuh...
7. Hey!
7 manneskjur sem eg ætla þokkalega að kitla
1. Gústav Vasa
2. Grandmaster Flash
3. Jósef Stalin
4. Gaurinn á Skarphéðinsgötunni sem kemur alltaf nakinn til dyra
5. Voldemort
6. Col. Sanders
7. Ronald McDonald Reagan

<< Home