það var svona Halló-vín um daginn. Ég var í kattarbúningi sem hún móðir mín hafði saumað, ég skemmti mér þetta líka fjandi vel, enda loðinn og þokkafullur með afbrigðum.
Ég bið nærstadda afsökunar á öllum þeim skandölum sem ég gæti hafa valdið, þeir sem voru hvergi nærri geta hinsvegar farið í rashghatt (sem er Indverskt gufubað...)
Magnað samt, hversu mikil fífl eru Íslendingar þegar þeir eru fullir? Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er ekki barnanna bestur, en andskotinn hafi það... MAÐUR Á EKKI AÐ TOGA Í EYRU EÐA SKOTT ÞÓ AÐ ÞAÐ SÉ ROSALEGA FYNDIÐ (fyrir ykkur), HEIMSKU AFDALA SMÁBÖRNIN YKKAR!! Ég ætla ekki að biðja manninn sem ég henti niður Bankastrætið afsökunar af þeim sökum.
Þessi vika er búin að vera tussuleg(vagina-uterus), ég er búnað aðhafast lítið.. gildir einu.
Ef einhver veit um myndir af þessu Halloween-djammi á DOOOM!-kikker (boomkikker fyrir ykkur sem eruð með dyslexísk húmorbein) ætla ég að biðja þann sama um að láta mig vita, því að ég væri alveg til í að eiga myndir af sæta-loðna-fulla-kisa... þar sem ég er jú afspyrnu myndarlegur og væri því gott efni í Americas next top-cat...
<< Home