þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Hálfvitar með of mikinn péning



Undanfarin hlýindaskeið fjármála hafa skapað okkur Íslendingum nýja tegund vandamála.

Miðaldra Karlmenn í 19 aldar handrukkaragöllum (Leðurhönskum, Járnkylfum, Gaddaskóm) sem ganga um í íslenskri náttúru, ef þeir fara ekki um keyrandi, sveiflandi þessum kylfum án nokkura áhyggja um sína velferð eða annara.
Ég er að tala um Golfara.

Það er í rauninni ekki það versta að þessir hálfvitar vilja keyra um í innkaupakerrum útum víðan völl, lemjandi plastkúlu. Nei, þeir telja sig allir það góða í þessu að þeir vilja endilega fara áfram til útlanda til þess að sýna hversu mikil snobbhænsn þeir eru, sýna það að íslenskir hálfvitar eru alveg jafn bjánalegir og hinir hálfvitarnir í nágrannalöndunum, og sýna heiminum það að þrátt fyrir köflóttar buxur og fleira, kunna íslenskir hálfvitar EKKI mannasiði.

Ég svara í símann fyrir ferðaskrifstofu m.a.
Ég er ekkert svakalega stoltur, en ég skammast mín ekki, það er í rauninni bara vinna.
Ferðaskrifstofa þessi á það til að fara í golfferðir. Nokkuð oft á hverju ári. Ferðaskrifstofa þessi býður líka uppá það að þú fáir allar upplýsingar á internetinu og þyrftir því ekki að ónáða mig, með spurningum um uppáhalds 'íþróttina' þína.

Að þessu gefnu vil ég að eftirfarandi komi fram.

A) Ég hef ekki áhuga á því að vita hvaða handíkapp þú og konan þín hafið.
B) Ég á mér engan eftirlætisgolfara, nema máské Leo Diegel, sem hafði þann góða smekk að drepast 30 árum áður en ég fæddist.
C) Mér er nokk sama ef þú vilt fara út, sveifla kylfu og fá hjartaáfall. Ekki trufla mig þegar þú færð sjúkrahúsreikninginn.
D) hafir þú þann hroka og það yfirlæti að láta eins og ég sé eitthvað óæðri því að ég hef EKKI áhuga á eftirlætisíþrótt þinni, þá vil ég gjarnan að þú vitir að minn hugur til þín er ekki sá sami. Ég ætla að vona að þú njótir íþróttarinnar útí ystu æsar, njótir þess ótrúlega mikið að stunda golf, þangað til að einhver kemur því þannig fyrir að þú munir kafna á golfkylfu fucking gamli hálfviti!!
E) Hafir þú efni á því að eyða tugþúsundum í járnkylfur, hundruðum þúsunda í golffélagsaðild og enn fleiri peningum í golfferðir, ert þú fucking hálfviti með alltof mikla peninga!!! Það er fólk sem sveltur þarna úti og þú sóar þínu fé í það að eltast við einhverja fucking hvíta kúlu í álíka rökréttum tilgangi og að troða tannkremi aftur í túbuna. Þú ættir að skammast þín, fullorðin manneskjan að hegða þér svona!!! Og taliru aftur við mig á þennan máta þá veit ég hvar þú átt heima, og þú átt ágætis safn af kylfum sem hægt væri að nota í fleira en eitt....

erh..


kannski að ég sé full pissed off yfir einum gömlum dónalegum kalli sem ætlaði að snæða úr mér sálina fyrir það að ég hef ekki áhuga á golfi.
en mér er alvara með lið E.