fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Af Hobbitum, Holum og Hálfvitum



Ég var kallaður Hobbiti um daginn.. ég skil það svosem, ég er lítill, með stórar tær, reyki pípu, klæði mig stundum svolítið óldskúl og bý í kjallaraholu!!.. það er nú svosem allt hið fínasta með að vera kallaður hobbiti, því sem betur fer var ég ekki kallaður framsóknarmaður.

Vinstri Grænir hrópuðu á Hægri Græna að þeir væru stóriðjufauskar sem líktust helst Stalínistum á þinginu í vikunni..

mér þykir það alveg magnað.

Þar sem Jósef Stalin hét ekki Stalin, heldur hét hann Jósef Djúgasvílí (hvernig sem maður nú stafsetur það..) Stalin var viðurnefni Jósefs, sökum þess að hann þótti stáli líkastur í þrótti og hörku.
Stál og ál er nú ekki alveg það sama, en ég hefi hinsvegar fengið hérmeð hugmynd fyrir næstu kosningar, og leiðtoginn ástsæli má nota þetta plakat hvenær sem hann vill. Svo lengi sem hann kallar sig Alín!


Álín