miðvikudagur, september 28, 2005

Bólur og blóm


og aðrir hlutir sem eiga það til að springa



Ég hreinlega veit ekki.
síðasta færsla var líkast til einhverskonar stundarbrjálæði einsemdar sem hefur magnast upp.. líkast til í bland við áfengisneyslu kvöldsins áður.
ekki svo að maður þurfi að vera drukkinn til þess að líka við þessa stúlku, nei, hún hefur allt til að bera. Ég á það bara til að gleyma því að ég er giftur 6 strengjum.

Ég á afmæli eftir tæpan mánuð.
ef þið viljið senda blóm og kransa er ykkur beint á þennan lista

Ég tók netpróf í dag, hef reyndar tekið það áður...
Hvaða teiknimyndavondukall ert ÞÚ?
Það er búið að setja bjöllu um hálsinn á mér, ekki séns að ég nái eitthvað að veiða úr þessu.


Er Búinn að vera að semja eins og motherfucker undanfarið.
Mun birta texta um leið og ég er búinn að slá þá inn á tölvutækt form.


Ég er nokkurnvegin kominn með það á hreint hver stal tölvunni minni í sumar.

-ó hvað hann á eftir að sjá eftir því að sparka í Yoda.

nú fær hann spark frá Loka!!!!