sunnudagur, ágúst 14, 2005

Skuggabaldrar og Skoffín


já.. ég veitekki hvað skal segja, ég er aðallega búnað vera að gera allt og ekkert undanfarið...

er að spila um næstu helgi á ákveðnu öldurhúsi kendu við Matt Dillon ásamt hinni geðþekku hlýrasveit Coburn ... nánari tímasetning auglýst síðar.

annars er eiginlega bara fátt að frétta af mér annað en S,D og R&R... sem er næs..

hérna kemur áhugaverður fróðleikur úr þjóðsögum Jóns Árnasonar

Skoffín er sagt að sé afkvæmi tófu og kattar og er kötturinn móðir. Verða skoffín því ætíð drepin áður en þau komast upp. Skuggabaldrar eru í föðurætt af ketti, en í móðurætt af tófu, og eru þeir eins skæðir að bíta sem stefnivargur eða refi sem galdramenn magna til að rífa annars fé, og ekki kveikja neinar byssur þegar á þá er hleypt. Einn skuggabaldur hafði eitt sinn gjört sauðfé Húnvetninga mikinn skaða. Fannst hann loks í holu einni við Blöndugil og varð þar drepinn með mannsöfnuði. Sagði skuggabaldurinn í því hann var stunginn: „Segðu henni Bollastaðakisu að hann skuggabaldur hafi verið stunginn í dag í gjánni.“ Þetta þótti undarlegt. Kom bani skuggabaldurs að Bollastöðum og var þar nótt. Lá hann uppi í rúmi um kvöldið og sagði frá þessari sögu. Gamall fressköttur sat á baðstofubita. En þegar maðurinn hermdi orð skuggabaldurs hljóp kötturinn á hann og læsti hann í hálsinn með klóm og kjafti, og náðist kötturinn ekki fyrr en höfuðið var stýft af honum, en þá var maðurinn dauður.

og úr því er rétt að koma þessum texta með þar sem hann er viðeigandi á síðu Norðurmýrarkisa.

Lookin for a fox


Blues Brothers
I’m all alone and fancy free
But that ain’t the way I wanna be
Now girls get your game up tight
We’re gonna have a wing, ding doodle tonight
But right now

I’m looking for a fox

Tonight the skys the limit
I got some money and I wanna spend it
It’s saturday night and I wanna play
I’m gonna groove til the break of day
Now look a here

I’m looking for a fox


Got a brand new pin stripe suit of clothes
Big wide polka-dot tie
Cuff links as big as j-bird eggs
And look at that shoes made out of alligator hide
Well say something else here
I’m ripe and ready and hot to trot
Girl you can get everything I got
I got got the money if got the time
All you gotta do is gimme a sign

Im lookin for a fox.