föstudagur, júlí 01, 2005

Tíminn



Tíminn er lækurinn sem við líðum áfram í, og fljótum áfram til sjávar, og fátt getum við gert, nema að njóta ferðarinnar, þótt á stundum séu miklar flúðir.

Greta Ósk -besta vinkona mín og einhver yndislegasta manneskja í heimi, ól sín fyrstu börn núna á Mánudaginn. Tvíburarnir, sem fæddust á 25 voru agnarsmáir og veikbyggðir. Annar Þeirra, Ragnar, lifði aðeins rúman sólarhring, en bróðir hanns, Friðrik, er allur að braggast og ég bið ykkur, mínir kæru lesendur, sama hverrar trúar þið eruð, að biðja, hugleiða, fremja seið eða bara hugsa hlýtt og senda ást á fæðingardeildina á Landspítalanum, þar sem þau mæðgin eru stödd, og verða í einhvern tíma í viðbót.



skrítið



Ég fékk skrítið símtal núna áðan.
Kona nokkur hringdi inn í verzlanir BT og spurðist fyrir um leik. Ekkert merkilegt við það svosem, nema hvað að hún lofaði mér kossi ef ég fyndi þennan leik, ég sagði henni að því miður, þótt ég gjarnan myndi þiggja það, þá væri ég í símveri og myndi því ekki hitta hana.
Eggjandi rödd þessarar ágætu konu svaraði því að þá fengi ég bara koss í gegnum síman, sem var nú bara ágætt.
Kona þessi andaði djúpt og var með svona hálfráma, en samt skæra rödd og aðlaðandi.
Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið, en hinsvegar veit ég, að þessi kona náði einhvernvegin bæði í senn að skelfa mig, gleðja, koma mér til og koma mér til þess að finnast ég áreittur.

Þetta er það sem feminismi á að ganga útá að mér finnst, hefði þessi kona verið að biðja mig um að gera eitthvað erfitt hefði hún snúið mér sér um fingur og það, mínir kæru lesendur, er magnað.

Þessi kona, sem heitir I. fær 69 rokkstig að 66,6 stigum mögulegum.

you go girl.