föstudagur, júlí 22, 2005

Halló



Ég hef ákveðið að koma hreint fram, sem einstaklingur í góðu jafnvægi og segja frá mínum helsta Akkilesarhæl, ójafnvægi mínu.

Ég heiti Einar, ég er Bipolar.
Fyrir ykkur sem ekki vitið hvað Bipolar-röskun er það nýtt nafn yfir það sem áður var kallað "Manískt-Þunglyndi".
Ég hef alla tíð borið viss einkenni þessa sjúkdóms, en geðsveiflurnar hafa jafnan verið ósymmetrískar og mislangar, en þó mest í swing takti.. einhvernvegin svona..

~~^^~~~^~^~~^~~~^^^~~~~^~^^~~~
..

Pési frændi Yfirsáli.. (sem er hlekkur á hérna ykkur á vinstri hönd,) segir reyndar að ég sé sennilegast Bipolar II / Hipomanic sökum þess að ég hef ágætis stjórn á þessu og er að passa mig.
..

aftur á móti þá vil ég að þið lesendur mínir, vinir mínir vitið af þessu, stundum þarf ekki mikið til þess að ýta mér úr jafnvægi og þá þarf ég bara að fá að pústa út eða hvíla mig, ég þarf þá bara að hafa tímann til þess að gera það sem ég þarf að gera til þess að vera.. sæmilega heilbrigður..

Ég áttaði mig á því að ekki allir vita þetta.. þó einhverjir geri það.. í gærkveldi þegar manneskja spurði mig.. "ertu eitthvað 'Dán'?" ég brosti og hristi höfuðið.. en það er oft frekar augljóst.. en.. ég býst við því að ég hafi verið frekar dán undanfarið.. stundum ýta minnstu sandkorn klettum fram af björgum og jú.. ég er búnað vea í lítilli sveiflu undanfarið.. það er væntanlega sökum þess að eins og fíflið hann Newton sagði.. þá verður það sem fer upp að koma niður aftur (nema ef þú ert gerfihnöttur eða Cheech Marin) og ég er búnað eiga nokkrar frekar góðar stundir undanfarið, þannig að smá niðurtúr er eðlilegur.

Það leiðinlega við þetta mál alltsaman, er týzkan við það að vera þunglyndur, því það er jú svo cool að vera Brooding snillingur, að vera fölnaða laufið, að vera blómið sem eitt sinn var... fólk er ekkert að gera sér grein fyrir því að það gæti allt eins öfundað Biafrabörn af því þau eru svo grönn.


Ég er einn af þeim heppnu, engu að síður þar sem ég er Bip. II en ekki Bip. I þar sem ég get lifað án þess að vera á einhverjum lyfjum, enda vil ég það ekki, þar sem ég virkja sjávarföllin innra með mér til listsköpunar.

hinsvegar vil ég biðja ykkur vini mína að gera mér smá greiða.
ef ég er að verða geðveikur, sýnið mér pínu umburðarlyndi og ef ég lýt út fyrir að vera dapur, megið þið alveg brosa og gefa mér knús :) það sandkornið sem hrindir manni af björgum fram, getur líka verið sandkornið sem hindrar fallið :)

lifið heil