DV og önnur hrapaleg mistök
í gær var ég að lesa blaðið.. varð pirraður á grein svo ég sendi inn bréf til blaðsins.. án þess að átta mig (sökum anna, ekki þó Annþórs - vinar DV) á því að ég þyrfti að hreinskrifa... sem ég gerði of seint..
og hér birtist því greinin...
Nazistalógó
Ég rakst á grein í dálknum "Ha?" undanfarinn þriðjudag, þann 26/7. Þar var ýjað að því að stílfært einkennismerki Björgúlfs Thors sé nazískt merki og líti því talsvert illa út.
Ég er sjálfur heiðinn maður en enginn kynþáttahatari frekar en meðalmaðurinn, og reyndar öðru nær, en ef litið er til einkennismerkis Ásatrúarfélags Íslands þá sést glögglega að þar er á ferð Sólkross, ekki ósvipaður þeim sem White Pride samtökin hafa gert að sínu, ekki heldur ósvipað því sem merki Björgúlfs er, en stendur fyrir annan hlut.
Ef litið er í gegnum merkjafræði mannkyns má glögglega sjá að mörg tákn hafa fylgt okkar tegund í árþúsundir og má þar telja Hakakrossinn, Sólkrossinn, krossa og hringi, en þessi einföldu form finnast í nær öllum menningarheimum og eru einatt talin verndartákn, nema hvar nazistar stigu niður fæti, því þeir báru með sér ofbeldi og ófrið, en ekki sól og hlýju eins og þessi tákn merkja, eða öllu heldur merktu fyrir fólki áður en áróðursmeistarar þriðja ríkisins tóku þau upp á arma sér og fóru í heljarinnar ófrægingarför um heiminn, sem þekkt er orðið, en þeir sóttu einatt mikið í merkjafræði víkingarúna, og hafa því heiðnir menn og norrænir oft ekki farið varhluta þess, en þess má einnig geta, að sólkrossinn sem merki þetta er byggt á er einnig álitið merki Írlands af þeim sjálfum, og táknar þessi kross þar hin fjögur héruð Írlands og "Mide" ríki Tuatha de Danaan, barna Dönu, álfa og huldufólks.
Eins og ég drap á hér áður hafa ekki eingöngu nazistar hafa þó notað hakakrossinn, hið forna sólartákn, heldur þekkist þetta tákn,ásamt þeim sem ég taldi upp, í öllum heimsálfum. Ekki var nokkurntíman minnst á Hakakrossinn, eldra tákn Eimskipafélagsins, sem nazistatákn, enda væri það frásinna, rétt eins og þá að saka dýrkendur Ganesha á Indlandi um nazisma, þó svo að þeir noti Hakakrossinn mikið sem tákn, enda hefur fjöldi samtaka og fólks í gegnum tíðina notað þetta verndartákn sem tákn sólar, geisla hennar og þess að mótstöðu (skýjum) sé rutt í burtu (sbr. Ganesha, sem er "sá sem fjarlægir hindranir").
Ef við frónverjar þekkjum ekki okkar eigin menningararf og hvernig honum hefur verið stolið af misvönduðum sálum, mun enginn þekkja það í framtíðinni og því verður okkar menning glötuð í höndum barna okkar, sem aldrei munu frædd um arfinn. Ef við látum okkur halda það að tákn, sbr Sólkross, Þórshamar, Hakakross og rúnirnar séu sértákn misvitra einstaklinga sem fannst þetta flott hönnun fyrir um það bil 80-90 árum síðan, þá getum við allt eins farið að undirbúa það að Gyðingar og andfasistar allra landa hætti að verzla við Ísland því Íslendingar borða SS-pulsur.

<< Home