miðvikudagur, júní 01, 2005

Penny Dreadful


Penny Dreadful : enskar glæpasmásögur í kiljuformi, kostuðu 1 penny

Maður vaknar, burstar tennurnar, tekur lyfin, gefur kettinum, greiðir sér, klæðir sig og mætir til vinnu.

Maður þrælar við það að gleðja vinnuveitendur og kúnna, sitt eigið veski og samstarfsfólk.

Eftir þrældóm dagsins, kemur maður heim, úrvinda. Leggst í sófann, kötturinn kemur og klórar mann og mjálmar. Maður stendur upp. Hendir smá túnfiski með í þurrmatinn.
Kötturinn mjálmar. Maður andvarpar. Tæmir kattasand í ruslapoka sem hann hendir rakleitt út í tunnu.
Leggst aftur í sófann, horfir á heimska sjónvarpsmenn hlægja að fyrirsögnum.
Maður malar. Kveikir sér í sígarettu og hugsar um gítarsóló.

Rispuð vinylplata semur nýjan hljómagang og sólin sest í tránum utan gluggans..


myrkrið fellur yfir og maður leggst í rúmið með bók og les hæglátlega um ævintýr sem hann myndi svo gjarnan vilja lifa.

köttur skríður uppí og malar. leggst þvert yfir maga manns og dormar.
maður slekkur ljósið og saman fljóta þeir um draumalandið uns sólin skýn inn um gluggan að morgni.