fimmtudagur, júní 23, 2005

Innbrot/Útbrot


Í gær þegar ég kom heim úr vinnu, beið mér ekki fögur sjón..
reyndar beið mín fyrst ekki fögur lykt, svo áttaði ég mig..
það hafði verið brotist inn hjá mér, farið inn um Eldhúsglugga, tölvunni minni, Skrauthnífum og tösku stolið, verst af öllu, kisi var skelkaður svo illa að hann varð veikur (skeit á sig af hræðslu, ergo, ekki fögur lykt).

Einhverjir dópistamelir, og munið, ég er ekki gjarn á að dæma fólk að ósekju, ruddust einfaldlega inn til mín um hábjartan dag, rændu mig, hræddu kisann minn útfyrir velsæmismörk (þó að það sé aldrei velsæmandi að hræða dýr, þá eru samt velsæmismörk á þessu)
Ég ætla hreinlega að vona það að lögreglan nái hinum seku, áður en ég næ til þeirra, því eins og ég sé þetta þá eru ekki margar mögulegar útkomur úr þessu, og farsælast væri ef þeir annaðhvort skilðuðu hlutunum mínum og létu ekki sjá sig aftur nálægt mér eða að þeir næðust... því annars mun ég finna þá, og lemja þá fyrir að hræða Yoda, svo fyrir að stela tölvunni minni...

en hinir seku munu gjalda fyrir þetta, ó já...