fimmtudagur, maí 19, 2005

Gaddavírsmýkt



Mér er illa við dónalegt fólk. Ég veit það sjálfur að ég á það til að vera dónalegur þegar mér líður sjálfum illa, en það er oftast vegna þess að eitthvað hefur verið gert á minn hlut og mér finnst allt ómögulegt.
Jafnan reyni ég þó að vera kurteis.
Enda þá smitar dónaskapur, yfirgengni og frekja út frá sér, og smitar út frá sér, og hinir smituðu smita út frá sér, og á endanum erum við komin á vonarvöl dónaskapar, ruddaskapar og haturs.. Frumskógarlögmálið tekur við og allt verður frekar lame...

Óþarfa viðkvæmni fer líka í taugarnar á mér, þó ég eigi það sjálfur það til að vera soldið hvumpinn sjálfur...en það er náttúrulega af því að ég er maður, og við mennirnir erum upp til hópa hræsnarar, á misháum levelum..
Mér finnst samt að nettur húmor skuli vera fyrir hlutunum. En fólk hefur engan húmor, enga þolinmæði og engan skilning á breyskleikum náungans nútildags, enda á allt að vera perfect, súkkulaðihúðað og metrósexúal. Allir eiga að vera með strípur og eiga nóg af peningum. þú beinlínis virðist ekki vera mennskur ef þú átt ekki GTIkerru í dag, stífbónaða, gula með kókaínlínum...

Dónalegt fólk er hinsvegar eitthvað sem ég get eiginlega mjög illa sætt mig við.
Sérstaklega fólk sem er dónalegt í síma.

SBR þetta símtal sem ég tók fyrir stórfyrirtæki sem ég er málpípa fyrir...
~^~^~^~^~^~^~^~^~^~^



"****** *" góðan daginn, get ég aðstoðað

!AHGAHAEHRTA!

erh.. nei.. ég heiti reyndar Einar, en ef þú hinkrar augnarblik á línunni þá skal ég gefa þér samband við hann...

bzzzt.. Halló Einar heiti ég og er að hringja frá Skúlason (fyrirtækið sem ég vinn fyrir) er hann !Ahgahaehrta! við?

= nei því miður hann er á fundi =

Okey.. ég segi manninum það.

... Halló..

!AHGAHAEHRTA!

Nei, þvímiður er hann á fundi, get ég tekið skilaboð eða beðið þig að hringja seinna?

''Hvað er beint númer hjá AHGAHAEHRTA!!?!?!?!?

þvímiður má ég ekki gefa þér það upp númerið hjá honum, þar sem það er bara ekki leyfilegt innan starfsreglna minna, því miður..

AHGAHAEHRTAHARAHARHAHAHAHAHAH!!!!

~^~^~^~^~^~^~^~^~^

uhm..
allavega ber ég enga ábyrgð á því þótt að kúnnar fyrirtækisins sem ég vinn fyrir hafi verið að kúka einhverstaðar.. það er algjör óþarfi að núa því mér um nasir.


ég held ég sé bara svangur.. það ætti að útskýra pirringinn..

en í alvöru held ég að fólk mætti alveg bera meiri virðingu fyrir hvert öðru, ekki festast bara í innantómum hugleiðingum um eigið ágæti og öðru efnishyggjukjaftæði.



by the way
sandalar eru snilld

And it seems to me,
you lived your life
like a sandal in the wind
sortof not moving
and smelling funny...