aaaaw Hamburgers!!
Heimurinn er Trunta. Kannski ekki vinsælasta skoðun í heimi, en þarsem heimurinn á það til að vera illgjarn við þá sem síst eiga það skilið, finnst mér hann bölvuð trunta.
Ég hef mikið verið að glápa á sígilda samfélagsádeilu South Park uppá síðkastið.
í Þeim þáttum er eimmitt, saklausasti, ljúfasti og "besti" einstaklingur þessa meinsjúka samfélags hafður að skotspóni og níddur af jafningjum sínum, auðblekktur og illa með farinn. Það hlustar enginn á Butters, því hann er ljúfur og góður, kurteis og samviskusamur, sem náttúrulega virkar ekki í nútímasamfélagi.

Leopold "Butters" Stotch
Butters er einstaklingur sem vill ekki vera foreldrum sínum til skammar, og skammar því sjálfan sig. Hann vill ekki vera vondur við neinn, og lætur því blekkja sig með allskonar öfugsálfræði, útí ýmsa vitleysu, eins og að trúa Eric Cartman að hann sé Vélmenni í (Awsom-O) og Draugur (Cartman Dies) hann lætur spila með sig til þess að mæta í sjónvarp með pung á hökunni og lætur yfir höfuð fífla sig.
Hann er samt sem áður fyrstur til þess að biðjast afsökunar og fyrstur að fyrirgefa.
Hann er vel upp alinn og góð fyrirmynd, (þósvo að foreldrar hans sjái það ekki, og setji hann í útivistarbann með reglulegu millibili, fyrir all og ekkert, og eru það hörð við hann, að hann skammar sjálfan sig)
Hef verið að hugsa svolítið útí þetta.
ég var að mörgu leiti hálfgerður Butters þegar ég var lítill, varð svo algjör Kenny.. svo algjör Tweek... og er nú.. erh.. fucking hell.. ég veit það ekki.. Deuushbag1?!
anyways.
það sem ég var að spékúlera með þessum pósti, var að við þekkjum öll einhverja Butters úr okkar umhverfi, en kannski þekkjum við þá ekki frá, þessar perlur sem leynast hérna í forinni.
Mig langaði bara að biðja alla þá Buttersa sem ég hef verið vondur við í gegnum tíðina afsökunar, því ég meinti ekkert illt með því.
on another note!
Hérna er linkur á lag sem mér finnst æðislegt, notandi mitt listamannsnafn og eigandi svalt ættarnafn..

<< Home