föstudagur, apríl 22, 2005

I enjoy a nice pair of pants!


eđa: hvernig á ađ lifa af leiđindi kvefpesta



Kvefpest ein hvimleiđ og asnaleg hefur gengiđ um landiđ undanfariđ, eins og ég og svo margir ađrir höfum ekki fariđ varhluta af.
Ég hef, ţrátt fyrir stigvaxandi geđveiki, náđ ađ lifa af leiđindin sem fylgja ţví ađ vera lasinn heima. Mér líđur hálfpartin eins og handjárnuđum útigangsfress sem í fyrsta sinn er fastur í ól. Hinsvegar er ég hérna međ uppskrift af ţví sem ţarf til ţess ađ lifa ţetta af.




Dexomet, ein flaska af. Dexomet er hóstasaft. Veldur ofskynjunum. AhhaahahAHAHAHAHa halló herra bjarndýr.

Parasetamol, eitt bréf af. Hitastillandi. Verkjalyf. Mér líđur eins og ávexti. Ekki borđa mig mjálgi banani.

Panodil Hot, einn kassi af. Hitastillandi. Verkjalyf. Fljótandi. Hóstasaft. Gerviávaxtamintubragđ. Drekkist heitt. Líđur eins og ég sé ađ drekka mig.

Magnyl, eitt bréf af. Verkjalyf. Ég er viss um ađ ţađ eigi ekki ađ vera grćnt ţegar mađur bítur í tunguna.

Íbúfen, eitt glas af. Verkjalyf. Mér líđur eins og ég sé í lopapeysu kćrleika.

Coca~Cola, margir lítrar af. Skynaukandi bragđsemisáhrifasvaladrykkur.

Súkkulađi, ćt ást. Nauđsynlegt til ţess ađ halda endorfínflćđinu um líkamann til ađ lćkna mig frá sandölum.

Sandalar. Eitt par. Halda mér í jafnvagi.

Ágláp. Kvikmyndasafn Monty Pythons, the Critic ţćttirnir, South Park…. 110Gb af sjónvarpsefni.

Leđur-hćgindastóll. Brúnn. Heldur mér af gólfinu.

Teppi, bómullar. Grátt. Heldur mér af ţakinu.

Áhlustun. Syd Barret, ‘Wouldn’t you miss me’ af plötunni ‘Dark Globe’ mjög gott mál, sífelld endurtekning.

Internetspjall. Halda fast í skođanir sem hafa enga ţýđingu í nútímasamfélagi.

Ţćgilegt buxnapar. Svart.

Sígarettur. Tveir pakkar. Til ađ minna á afhverju ţú vilt ekki vera međ hálsbólgu, ţú vilt geta fengiđ ţér sígó.


Te-Toddy-Dauđa-Roddy-MacFuckingDowell!!!



Heitt Vatn, einn bolli af.
Melroses Te, eitt bréf af.
Hráhunang, ein teskeiđ af.
Whiskey, MacAllan, 65%vol, eitt skot af.
Sítróna, eitt dash af.

Drekkist međ lyfjum, drykkjum og matvćlum sem minnst er á hér ađ ofan, ásamt tónlist og áglápsefni. Afbragđs helgarskemmtun.

Góđar Stundir

(mig langar ađ gráta mér leiđist svo mikiđ)